Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 131
129
I kennslustund að Bifröst fyrir nokkrum árum. Hér er bókasafnið notað sem kennslustofa.
um eru gerðar. Nemendur hans munu vonandi halda áfram að
útskrifast með góðar minningar í farteskinu, minningar sem
þeir vilja viðhalda og deila með sínum gömlu félögum. Þar
kemur NSS til skjalanna, starfsemi þess byggir á því að gamlir
skólafélagar fái tækifæri til að hittast, eiga saman góðar stundir
og rifja upp gömlu góðu dagana. Einnig fá menn tækifæri til að
hitta aðra Samvinnuskólanema, kynnast nýju fólki og bera
saman bækur sínar. Hvernig sem á því stendur þá er það alltaf
svo að þegar tveir Samvinnuskólanemar hittast þá berst talið
yfirleitt að gamla skólanum þótt þeir hafi ekki verið þar sam-
tímis. Þannig mun það áfram verða þótt skólinn hafi tekið
miklum stakkaskiptum, þetta verður áfram skóli með nemend-
ur sem vilja viðhalda kynnum sínum innbyrðis og við skólann.
Það er von mín og trú að á meðan Samvinnuskólinn heldur
áfram að vaxa og dafna, muni NSS gera það einnig.
Svar Guðbjarts Össurarsonar
er á þessa leið:
Nú, þegar nám við Samvinnuskólann breytist og verður eftir-
leiðis á háskólastigi fer ekki hjá því að eldri Samvinnuskóla-
nemar- félagar í NSS -staldri við og hugsi: „Hvert verður okk-
ar hlutverk og staða gagnvart því fólki sem útskrifast frá Sam-
vinnuskólanum með háskólapróf?“ „Á þetta fólk erindi í
NSS?“ „Á það samleið með okkur hinum og verða e.t.v. til
fyrsta og annars flokks félagar í NSS?“
Allar þessar áhyggjur eru að mínu viti ástæðulausar. Nem-
endasambandið er þegar í dag skipað fólki ólíkrar gerðar og
margvíslegra prófa. Ekki fæ ég séð að sú staðreynd hafi háð
sambandinu, ellegar skapað þar flokkadrætti.
Rétt er þó að taka fram, að sá er þetta ritar hefur lítið getað
tekið þátt í starfi NSS sökum landfræðilegra aðstæðna. Ég
vona, og tel raunar fullvíst, að Samvinnuskólinn muni áfram
starfa á óbreyttum hugsjónagrundvelli, þrátt fyrir að vegna
breyttra námskrafna í þjóðfélaginu hafi reynst nauðsynlegt að
færa nám þar ofar í menntakerfinu. Stúdentspróf þykir í dag
jafn sjálfsagður áfangi og landspróf eða gagnfræðapróf þótti
fyrir um tuttugu árum. Samvinnuskólinn varð að stíga þetta
skref, annars stefndi hann í að verða steinrunnið nátttröll í
námskerfi þjóðarinnar. Ég á þá eina ósk til handa Samvinnu-
skólanum að Bifröst að hann megi hér eftir sem hingað til halda
sínu orðspori sem virt menntastofnun og að námsvist þar verði
áfram jafn eftirsótt sem hingað til.
Ég býð þá sem útskrifast þaðan með háskólapróf upp á vas-
ann velkomna til starfa innan NSS og óska þeim velfarnaðar í
starfi innan samvinnuhreyfingarinnar eða utan hennar. Þeir
verða samvinnumenn, ekki síður en við hin. Hugsjónin má
ekki glatast, það er aðalatriðið.
L