Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 114
112
AF HINU ÓFORMLEGA
FÉLAGSSTARFI BIFRÖSTUNGA
Það væri æði mikil bjartsýni að halda, að þessum þætti væri hægt að gera einhver tæmandi skil, enda ekki
ætlunin heldur aðeins að koma með dæmi um þetta starf, sem ekki hefur beinlínis farið fram á vegum nem-
endasambandsins. Hér er sagt frá elsta saumaklúbbnum sem enn starfar og fyrstu byggingasamvinnufé-
lögunum.
Það má líklega slá því föstu að samskipti félagsmanna utan hins fasta ramma NSS hafi verið kynskipt.
Karlar hafa byggt saman hús, stundað íþróttir og teflt og spilað en konur hafa gjarnan haldið sig við hefð-
bundinn vettvang og hist á heimilum sínum yflr kaffibolla, oftast hefur einn bekkur myndað þar hóp en
stundum fleiri. Samkomur þessar sem í sumum tilfellum hafa verið kjölfesta bekkjarstarfs viðkomandi
bekkjar eru tíðast nefndar saumaklúbbar, þó saumaskapur sé víða í lágmarki og saumaklúbburinn sé jafn-
vel hádegisverðarfundur úti í bæ, eins og dæmi eru um.
Handavinnan á undanhaldi
aumaklúbburinn Eilífur (uppnefndur „Æðsta ráðið")
hefur nú samfellt í rúman aldarfjórðung fyllt upp í félags-
legar eyður í tilveru okkar kvennanna sem útskrifuð-
umst frá Bifröst það herrans ár 1958.
Stofndagurinn var 15. nóvember 1962 og stofnendur 4.
Reyndar höfðu nokkrar bekkjarsystranna hafið vísi að slíkum
klúbbi strax veturinn 1958-59 en þá urðu miklar breytingar á
heimilishögum margra, giftingar og barneignir helltust yfir og
sumar fóru út á land og aðrar til útlanda. En haustið 1962 var
þráðurinn sem sagt tekinn upp aftur og hefur ekki slitnað
síðan.
Hinsvegar hefur orðið aukning á félagatölu, þar sem með-
limirnir hafa skilað sér til höfuðborgarsvæðisins aftur í fullu
samræmi við dreifbýlisreglur.
Handavinna var lengi vel firna mikil en segja má að hin síðari
ár hafi málefni dagsins tekið svo mikinn tíma að fátt hafi orðið
um framkvæmdir, þó Katrín sé alltaf nokkur undantekning
hvað þetta varðar.
Önnur starfsemi hefur verið allnokkur:
Þorrablót voru vinsæl um tíma og fengu þá makar að fljóta
með. Hvítasunnuferðir hafa tvær verið farnar, önnur í sumar-
bústaðinn hennar Önnu Finns í Grímsnesinu og hin til Vest-
mannaeyja (á söguslóðir Lólóar) og urðu báðar eftirminnileg-
ar.
Hámenningarlegust mun þó vera hin árlega Jónsmessuferð.
Haldið til fjalla á Jónsmessunótt eða þar um bil og velt sér upp
úr fegurð og tign okkar fagra lands.
Þá hefur skipulag afmælishalds bekkjarins að verulegu leyti
hvílt á herðum klúbbsins og hefur hann haft uppi ótal hug-
myndir hvað þau varðar enda samheldni og framtakssemi ’58
árgangsins viðbrugðið.
Dagbjört Torfadóttir útskr. 1958.
Einn saumaklúbbur samvinnuskólameyja ab störfum.