Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 138
136
Gísli Haraldsson, 1975-1976.
Útskr. 1974. Starfaði við ýmis
skrifstofustörf, einkum hjá Kf.
Hafnfirðinga. Kaupfélagsstjóri
hjá Kf. Fram á Neskaupstað, en
hefur nýlega látið þar af störfum.
Jóhannes Bekk Ingason,
1981-1983.
Útskr. 1978. Hefur unnið ýmis
störf en einkum þó skrifstofustörf í
Reykjavík, lengst hjá Sambandi
ísl. samvinnufélaga í Tölvudeild.
Stundar nú nám á háskólastigi í
Samvinnuskólanum að Bifröst.
Unnur S. Björnsdóttir,
1976-1977.
Útskr. 1975. Hefur sinnt ýmsum
félagsmálum, einkum bæjarmál-
um í Kópavogi. Var við skrifstofu-
störf í Reykjavík og á Hvamms-
tanga og er nú framkvæmdastjóri
Tinnu hf. í Kópavogi.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir,
1983-1984.
Útskr. 1977. Hefur unnið ýmis
störf, einkum við hótelrekstur.
Lauk prófi frá Framhaldsdeild
SVS og síðar námi við Félagsvís-
indadeild Háskóla íslands. Stund-
aði nám í hótelrekstri í Englandi
og er nú hótelstjóri Valaskjálfar á
Egilsstöðum.
Reynir Ingibjartsson, 1978-1979.
Útskr. 1963. Hefur starfað að fjöl-
mörgum félagsmálum í tengslum
við samvinnuhreyfinguna og
stjórnmálasamtök. Starfsmaður
Landssambands ísl. samvinnu-
starfsmanna frá stofnun til 1983,
en síðan verið framkvæmdastjóri
Húsnæðissamvinnufélagsins Bú-
seta.
Fríða Eyjólfsdóttir, 1984-1985.
Útskr. 1980. Stúdent frá Fram-
haldsdeild SVS og hefur lokið
kennaraprófi frá Kennaraháskóla
íslands. Starfað að félagsmálum,
einkum innan NSS. Er nú kennari
við Grunnskólann á Hofsósi.
Lára Stefánsdóttir, 1979-1980.
Útskr. 1976. Stúdent frá Fram-
haldsdeild SVS 1985. Hefur með
skrifstofustörfum og kennslu verið
við nám í tölvufræðum í Háskóla
íslands og í Tölvuháskóla Versl-
unarskólans. Kennirnú tölvufræði
við Fjölbrautaskólann í Ármúla í
Reykjavík.
Halla Höskuldsdóttir, 1985-1986.
Útskr. 1985. Starfaði við
skrifstofustörf í Reykjavík, en
flutti síðan til Englands og bjó þar,
þar til nú að hún hefur hafið nám á
háskólastigi við Samvinnuskólann
að Bifröst.