Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 32
30
kynntumst við foreldrum okkar, áttum
með þeim ógleymanlegar gleðistundir,
sem entust ævilangt og urðu til þess að
það leið ekki sá dagur á þeirra efri árum
á Hávallagötunni, að við litum ekki inn
til þeirra - sérstaklega eftir að þau áttu
erfiðara með að koma til okkar vegna
aldurs.
Foreldrar okkar voru sjálf svo miklir
vinir og raunar fjölskyldan öll, tengda-
synirnir og barnabörnin. Við höfðum
alltaf gaman af viðræðum við þau og eins
börnin okkar eftir að þau stálpuðust.
Það voru að sjálfsögðu oft skiftar
skoðanir hjá okkur öllum, en alltaf var líf
og fjör og pabbi lét brandarana fjúka
óspart. Þrátt fyrir allt annríki var alltaf
tími heima á Hávallagötu til þess að
spjalla um það, sem efst var á baugi. Það
er áreiðanlega mikils virði, að fjölskyld-
ur geri það.“
Auður: „Mér finnst svo skemmtilegt
að hugsa til þess, þegar pabbi fór með
okkur systurnar á sunnudagsmorgnum,
þegar við vorum litlar, niður að sjó og
sýndi okkur fuglana og fræddi okkur um
líf þeirra. Og enn kemur þessi skemmti-
lega tilfinning upp í huga minn, þegar ég
sé unga feður ganga í rólegheitum á
sunnudagsmorgnum með börnin sín og
ég hugsa - þetta eru góðir pabbar, sem
gefa sér tíma til að sinna börnum sínum
og ræða við þau. Þeir stinga þeim ekki
bara aftur í bílinn sinn eða gefa þeim
pening, svo að þau geti farið í bíó og séu
ekki fyrir.“
En þar kom, að þröngbýlið sagði til
sín, að ekki varð lengur við unað. Á
þeim tíma hafði margt gerst, meðal ann-
ars hafði Jónas haft forgöngu um bygg-
ingu héraðsskóla víðs vegar um landið,
sem bjuggu við rúman húsakost eftir því
sem þá var um að ræða. En Samvinnu-
skólinn sat við sitt. Jónas segir sjálfur í
grein einhvers staðar á þá leið, að í lands-
málum sé ýmislegt, sem ekki þoli bið, en
samvinnuhreyfingin hafi hina rólegu,
sígandi þróun. Og nú skulum við aftur
gefa honum orðið í „Samvinnuskólinn 30
ára“:
„Þegar her Breta settist að hér á landi
vorið 1940, reistu þeir herbúðir sínar á
öllum auðum blettum í bænum og víða í
nágrenninu. Þá fullbyggðist á skömmum
tíma sú lóð á Arnarhólstúni, sem fyrr átti
að vera járnbrautarstöð. Bjó þar mikill
fjöldi hermanna. Þeir lögðu undir sig
hina hálfgerðu og mannlausu Þjóðleik-
húsbyggingu, og stungu reykpípum út
um glugga, þar sem við mátti koma.
Lagði þykkan reykjarmökk úr eldstæð-
um Breta yfir Sambandshúsið. Á hverj-
um morgni höfðu fjölmennir herflokkar
æfingar í portinu bak við húsið. Tók nú
að gerast þröngbýlt í Sambandshúsinu.
Hafði Sambandið mjög fært út kvíar á
liðnum árum. Var Landsverzlunin (sem
framan af leigði hluta af Sambandshús-
inu -innsk. S.H.) fyrir löngu flutt burt úr
húsinu og Sambandið eitt um hituna að
fullnota til sinna þarfa tvær neðri hæð-
irnar og kjallarann. En meira þurfti með,
og kom þá til tals að skólastjóri flytti úr
húsinu út í bæ. Kom þá fyrir atvik, sem
flýtti fyrir þessari framkvæmd. Þormóð-
ur Eyjólfsson hafði þá um langa stund
verið helzti forvígismaður sfldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði, og löngum
formaður í stjórn þeirra fyrirtækja. Hann
var tíður gestur í Sambandshúsinu og
kunnugur þar öllum málefnum. Þótti
honum nú orðið erfitt um búsetu mína í
Sambandshúsinu, í vaxandi þröngbýli og
örtröð af mörgu tagi. Hreyfði hann þessu
máli við forustumenn Sambandsins, að
ástæða væri til að fjölskylda mín flytti
burt úr húsinu. Málið var áður komið á
dagskrá hjá þeim, en ábending Þormóðs
flýtti fyrir framkvæmdum. Beittu sam-
býlismenn mínir í Sambandshúsinu sér
fyrir því, að Sambandið reisti íbúðarhús
fyrir skólastjóra Samvinnuskólans og
fjölskyldu hans, en breytti gömlu skóla-
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Hlutverk
Hlutverk Lánasjóðs íslenskra náms-
manna er að veita íslenskum
námsmönnum, sem fullnægja
skilyrðum sjóðsins varðandi
lánshæfni, fjárhagsaðstoð til
framhaldsnáms.
Tegund aðstoðar
Lánasjóðurinn veitir:
Almennt námslán tíl greiðslu kostnaðar
vegna framfærslu á námstíma, bóka- og
efniskaupa og skólagjalda;
Ferðastyrk;
Lán vegna sérstaks aukakostnaðar.
Umsókn
Umsækjandi um námsaðstoð
verður að fylla út sérstakt eyðublað
sem fæst í afgreiðslu sjóðsins,
sendiráðum íslands erlendis og
flestum lánshæfum skólum
hérlendis.
Nýliðar
Bjnjandi í lánshæfu námi fær 1.
hluta námsláns afgreiddan að
loknu íyrsta misseri, ef hann
fullnægir kröfum sjóðsins um
námsárangur.
Lánskjör
Námslán eru til 40 ára, verðtryggð
en vaxtalaus. Upphæð árlegrar
endurgreiðslu miðast við 3.75% af
útsvarsstofni tekna ársins á undan.
Ráðgjöf
Sérfræðingar sjóðsins svara íyrir-
spumum og veita sérhæfða ráðgjöf í
síma og í viðtalstímum.
Afgreiðsla
Skrifstofa LÍN er við Laugaveg 77 í
Reykjavík. Sími sjóðsins er 2 50 11.