Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 11
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 11
HaLLa jÓnsDÓTTir
í Danmörku kennaranemar í Háskólanum í Óðinsvéum, í Finnlandi voru það kennara-
nemar í Åboháskóla, í Noregi kennaranemar í Háskólanum í Volda og á Íslandi
nemendur við Háskóla Íslands (HÍ). EVA bar ábyrgð á úrvinnslu allra gagna og gerð
skýrslunnar Rekrutteringsproblematikken på de nordiske læreruddannelser (Norræna ráð-
herranefndin, 2010). Höfundur þessarar greinar sá um rannsóknina fyrir Íslands
hönd. Niðurstöður er lúta að samanburði allra landanna, bæði hinum megindlega
hluta, þ.e. spurningakönnun, og hinum eigindlega, þ.e. rýnihópaviðtölum, svo og
töflur og myndir, sem birtar eru í greininni, eru fengnar úr sameiginlegri skýrslu um
rannsóknina. Upplýsingar um samsetningu hópsins má finna í töflu 1.
Tafla 1. Upplýsingar um þátttakendur
Óðinsvé Åbo Reykjavik Volda Gautaborg
Konur 64% 72% 83% 70% 70%
Innflytjendur 6% 5% 2% 3% 13%
Foreldri með að minnsta kosti framhaldsskólamenntun 70% 74% 61% 69% 56%
Aldursmeðaltal 25 21 25 23 25
Fjöldi kennaranema (framhaldsskólanema)* 169 (138) 96 (78) 118 (44) 61 (97) 611 (135)
Árafjöldi frá því framhaldsskóla lauk þar til kennara-
nám hófst, meðaltal
5 1 3 4 5
* Fyrri talan táknar fjölda kennaranema, innan sviga er fjöldi framhaldsskólanema
Heimild: Norræna ráðherranefndin, 2010, bls. 56–57
Spurningakönnun
Íslenska rannsóknin var gerð skólaárið 2009–2010. Spurningalisti var lagður fyrir
og tekin voru tvö rýnihópaviðtöl. Rannsóknin var einungis gerð meðal staðnema á
fyrsta ári í grunnskólakennaranámi á Menntavísindasviði HÍ 2009. Það skapaðist af
mjög ströngum reglum þeirra sem um gögnin héldu, þ.e. að fyrirlögn skyldi vera í
kennslustund en spurningalisti ekki sendur út. Spurningalistinn skyldi lagður fyrir
í lok september en þá voru fjarnemar ekki á staðnum. Alls svöruðu 118 grunnskóla-
kennaranemar spurningalistanum, tæplega helmingur skráðra nema á 1. ári. Einnig
var þess krafist að framhaldsskólanemar svöruðu spurningalistanum í sínum eigin
skóla. Framhaldsskólinn, sem valinn var, uppfyllti það skilyrði að margir nemendur
úr þeim skóla höfðu hafið nám við kennaradeild Menntavísindasviðs síðustu fimm
árin áður en rannsóknin var gerð. Framhaldsskólinn auglýsti eftir nemum á lokaári
sem voru tilbúnir að svara og tilkynntu 44 þátttöku sína. Þetta er lítill hópur og því
mikilvægt að skoða niðurstöður í því ljósi. Spurningalistarnir voru forprófaðir með
því að lítill hópur kennaranema á öðru ári í námi svaraði þeim og gerði athugasemdir.
Í spurningalistunum, sem samdir voru sérstaklega fyrir þessa rannsókn, var mikill
fjöldi staðhæfinga sem þátttakendur áttu að taka afstöðu til. Spurt var um kyn, aldur,
þjóðerni, tungumál, menntun og lokaeinkunn á stúdentsprófi, menntun foreldra,