Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 115
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 115
Jóna G. inGólfsdóttiR
Menntavísindasviði Háskóla íslands
Uppeldi og menntun
23. árgangur 1. hefti 2014
„Að vera á rófinu“
Jarþrúður Þórhallsdóttir. (2013). Önnur skynjun – ólík veröld:
Lífsreynsla fólks á einhverfurófi. Reykjavík: Háskólaútgáfan og
Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum. 204 bls.
Bók Jarþrúðar Þórhallsdóttur fötlunarfræðings og sjúkraþjálfara, Önnur skynjun –
ólík veröld: Lífsreynsla fólks á einhverfurófi, er byggð á meistaraprófsverkefni hennar í
fötlunarfræðum við Háskóla Íslands árið 2010. Um er að ræða eigindlega rannsókn og
var markmið hennar að afla þekkingar á því hvernig það er að vera „á einhverfurófi“,
sérstaklega hvað óvenjulega skynjun og skynúrvinnslu varðar. Óvenjuleg skynjun
er einmitt eitt aðaleinkenni einhverfuraskana. Einhverfuróf (e. autism spectrum) er
hugtak sem er notað sem yfirheiti yfir allar einhverfuraskanir, sem er þá raðað á eins
konar skala sem hugsaður er svipað og litróf (Wing,1988).
Uppbygging bóKarinnar
Bókin skiptist í fimm meginkafla, sem hver um sig skiptist í um 10–20 undirkafla. Að
auki eru aðfaraorð, inngangur, eftirmáli, viðauki, heimildaskrá og útdráttur bæði á
íslensku og ensku. Við lesturinn fannst mér vanta að fyrirbærið einhverfa, mismun-
andi stig hennar og hugtakið einhverfuróf væri útskýrt í upphafi bókarinnar. Það er
reyndar gert í fræðilegu samhengi aftar í bókinni (bls. 29), en það myndi auðvelda
þeim lesturinn sem ekki eru málefninu þaulkunnugir að fá þessi hugtök útskýrð í
stuttu máli strax í upphafi.
Í inngangi bókarinnar gerir Jarþrúður ítarlega grein fyrir rannsókninni, fræðileg-
um bakgrunni hennar, sínum eigin bakgrunni, tengslum við viðfangsefnið og upp-
byggingu bókarinnar. Fram kemur að í rannsóknarvinnunni hafi hún ekki fundið
nema eina erlenda rannsókn sem talist getur sambærileg (bls. 17) og sýnir það hve
einstök þessi rannsókn er. Þótt einhverfa hafi þótt áhugavert og dularfullt rannsóknar-
efni er ljóst að veruleiki fólks sem er á einhverfurófinu hefur ekki verið mikið rann-
sakaður.