Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
þrenns konar ídýfum
Grænmeti með
Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina
og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Námskeiðum í Slysavarnaskóla sjómanna
lýkur með því að sjómennirnir eru æfðir í að
taka á móti björgunarþyrlu og að vera bjarg-
að úr sjó. Slíkar æfingar eru haldnar alla
föstudaga þegar námskeiðin eru haldin, að
sögn stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.
Í gær voru björgunarskip og bátar frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg við Engey
vegna björgunaræfingar. Þyrla kom svo á
staðinn og fengu menn að finna hvernig gust-
urinn frá þyrlunni þeytti léttum bátum til.
Nokkrir voru svo hífðir upp í þyrluna.
Sjómenn æfðir í sjóbjörgun við Engey
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slysavarnaskóli sjómanna og Landhelgisgæslan þjálfa sjómennina
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Störfum hjá fjármálafyrirtækjum
hefur fækkað um 2.000 frá því vorið
2008. Útibúum bankanna hefur
fækkað um helming á sama tíma.
„Þetta hefur verið hreint hörmung-
arástand,“ segir Friðbert Trausta-
son, formaður Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja.
Tilkynning Landsbankans um
hagræðingu með fækkun útibúa og
starfsfólks er ein af mörgum frétt-
um af þessu tagi á síðustu árum.
Þrátt fyrir lokun útibúa víða um land er bankinn enn
með víðfeðmasta útibúanet landsins.
Friðbert segir að starfsmenn fjármálafyrirtækja
hafi verið 5.700 þegar störfin voru sem flest en hefð-
bundin bankastörf eru komin vel niður fyrir 4.000.
Ennþá eru starfandi 300-400 manns hjá skilanefndum
og slitastjórnum við uppgjör gömlu bankanna. „Þetta
eru tímabundin störf og þegar vinnu þessa fólks lýkur
verðum við komin niður fyrir þá tölu starfsfólks sem
var hér á níunda áratug síðustu aldar,“ segir Frið-
bert.
Helmingi færri útibú
Friðbert Traustason segir að útibú bankanna hafi
verið 175 þegar þau voru flest en verði komin niður
fyrir 90 í byrjun næsta mánaðar. Auk fækkunar úti-
búa viðskiptabankanna hefur sparisjóðakerfið skropp-
ið mjög saman. Sparisjóðirnir voru einu sinni 26 en
eru nú 10 og þar af eru aðeins þrír sem ekki eru í
eigu ríkis eða viðskiptabanka. „Þetta er háalvarlegt
fyrir kerfið í heild. Það er ekki gott, í hvaða atvinnu-
grein sem er, að vera með fákeppni,“ segir Friðbert.
Hann segir að rafræn þjónusta hafi aukist mjög en
enn sæki viðskiptavinir ótrúlega mikið til útibúanna.
„Það er ljóst að lokun útibúa á minni stöðum úti á
landi hefur keðjuverkandi áhrif. Þetta hófst með því
að Pósturinn lokaði en bankarnir tóku víða við þjón-
ustunni. Það segja við mig menn úti á landi að nú
þegar búið er að loka pósthúsinu, heilsugæslunni og
bankanum geti þeir lokað kirkjunni og grunnskól-
anum og farið. Samdráttur í þjónustu hefur áhrif um
allt samfélagið; um leið og þjónustan hverfur, þá fer
byggðin,“ segir Friðbert.
Ríkið ber ábyrgð
Hann vísar til ábyrgðar ríkisins á þróun byggð-
anna. Bendir á að flugsamgöngur og ýmsar aðrir sam-
göngumátar séu niðurgreiddir af ríkinu til þess að
halda uppi samgöngum við afskekktari byggðir. Frið-
bert svarar því ekki beint þegar hann er spurður
hvort hann telji rétt að ríkið niðurgreiði fjármálaþjón-
ustu á landsbyggðinni. „Það er kominn tími til að rík-
isvaldið átti sig á því að það þarf vissa grunnþjónustu
til að samfélögin lifi. Um leið og fólk þarf að leita í
burtu eftir þjónustunni leitar sú spurning á hugann af
hverju það flytji sig ekki eftir þjónustunni.“ Vekur
Friðbert athygli á því að Norðmenn hafi styrkt
grunnþjónustu í norðlægum byggðum vegna þess að
vilji sé til að hafa þar byggð áfram.
Störfum í bönkum
fækkað um 2.000
Útibúum fækkað um helming Störf hjá fjármálafyr-
irtækjum undir 4.000 Óttast afleiðingar skertrar þjónustu
Friðbert
Traustason
Hæstiréttur staðfesti síðdegis í gær að þeir Annþór Krist-
ján Karlsson og Börkur Birgisson skuli sæta gæsluvarð-
haldi til 13. júní nk. Verjendur þeirra höfðu ekki fengið af-
hent rannsóknargögn lögreglu í gær.
Hólmgeir Elías Flosason, lögmaður og samstarfsmaður
Guðmundar St. Ragnarssonar, verjanda Annþórs, sagði að
samkvæmt lögum um meðferð sakamála væri lögreglu,
eða þeim sem sæju um rannsókn máls, heimilt að halda eft-
ir ákveðnum gögnum teldu þeir það geta skaðað rannsókn-
ina að afhenda gögnin.
„Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að einhverj-
um gögnum sé haldið eftir á frumstigi, en það er hins vegar
mjög óeðlilegt að á sama tíma skuli upplýsingar um gögn
renna til fjölmiðla,“ sagði Hólmgeir. Hann nefndi t.d. að
verjendur hefðu frétt það í fjölmiðlum að dánarorsök hins
látna hefði verið innvortis blæðing. Eins hefðu verjendur
ekki vitað að fyrir lægi bráðabirgðakrufningarskýrsla eða
myndbandsupptökur úr fangelsinu, nema vegna frétta um
það í fjölmiðlum. Þá sagði Hólmgeir að hann hefði verið
viðstaddur uppkvaðningu gæsluvarðhaldsúrskurðarins á
Litla-Hrauni klukkan 11.11 í fyrradag. Hálftíma síðar var
komin frétt um gæsluvarðhaldið og gildistíma þess í net-
miðli. Hann taldi að þá hefðu engir vitað af þessu nema
dómarinn, lögmennirnir og skjólstæðingar þeirra, fjórir
eða fimm lögreglumenn og sex eða sjö fangaverðir sem
voru á staðnum.
Ingi Freyr Ágústsson, verjandi Barkar Birgissonar,
sagði að einu gögnin sem verjendur hefðu eitthvað getað
lesið út úr væru krafa lögreglu um gæsluvarðhald og úr-
skurður Héraðsdóms Suðurlands. gudni@mbl.is
Gæsluvarðhald staðfest
Verjendur segjast hafa frétt af gögnum í fjölmiðlum
Ekki hefur verið
sótt um auka-
fjárveitingu
vegna kostnaðar
lögreglunnar á
höfuðborgar-
svæðinu við
heimsókn kín-
verska forsætis-
ráðherrans Wens
Jiabaos. Auka-
kostnaður emb-
ættisins er talinn vera um fjórar
milljónir króna og segir Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra að
gæslan sé talin hluti af hefð-
bundnum verkefnum lögreglunnar.
Mikil löggæsla var við opinbera
heimsókn Wens Jiabaos og fylgd-
arliðs hingað til lands í síðasta mán-
uði. Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu annaðist gæsluna. „Það er ekki
hugsuð sérstök fjárveiting til gæslu
fulltrúa erlendra ríkja sem hingað
koma, það er eitt af hefðbundnum
verkefnum lögreglunnar, ekki síst
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og ríkislögreglustjórans vegna sér-
sveitar sem eftir atvikum kemur við
sögu,“ segir Ögmundur.
Hann segir að málið hafi verið
rætt í ráðuneytinu og komið fram að
kostnaður væri áætlaður fjórar
milljónir kr. helgi@mbl.is
Kostnaður
við komu
4 milljónir
Ögmundur
Jónasson
Ekki aukafjárveiting
til gæslu Wens Jiabaos
Afrekskonan Annie Mist Þór-
isdóttir sló heimsmet í tveimur
greinum sem hún tók þátt í á fyrsta
degi Evrópumeistaramótsins í
crossfit í Kaupmannahöfn í gær.
Annie Mist tekur einnig þátt í liða-
keppni með liði frá Crossfit Reykja-
vík. Það lenti í fyrsta sæti í þeim
tveimur keppnum sem liðið tók þátt
í í gær.
Þeir sem enda í þremur efstu
sætunum fá rétt til keppni á heims-
meistaramótinu sem fram fer í
Bandaríkjunum í júlí. Evrópumeist-
aramótinu lýkur á sunnudag.
Annie Mist sló tvö
heimsmet á Evr-
ópumeistaramóti
Morgunblaðið/Ómar
Heimsmeistari Annie sló tvö heimsmet.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
mun í sumar auka umferðareftirlit
á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi
og Reykjanesbraut í samvinnu við
embætti ríkislögreglustjóra.
Sérstök áhersla verður lögð á
eftirlit seinnipart föstudags þegar
íbúar halda út úr höfuðborginni og
svo seinnipart sunnudags þegar
þeir snúa aftur. Fylgst verður með
hraða og búnaði ökutækja.
Aukið umferðar-
eftirlit um helgar