Morgunblaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman,
þá varð eg villur vega,
auðigur þóttumst
er eg annan fann,
maður er manns gam-
an.
(Hávamál.)
Aldingarður eldri
borgara
Á Íslandi er eins og að stjórn-
málamenn ætli sér ekki að verða
gamlir, því lítið heyrist frá þeim
varðandi málefni aldraðra nema
rétt fyrir kosningar. Einhverra
hluta vegna eru málefni eldri borg-
ara látin sitja á hakanum ár eftir ár
í umræðunni þegar okkar heittelsk-
aða, en jafnframt umdeilda velferð-
arkerfi er til skoðunar.
Í stefnuskrá stjórnmálahreyfing-
arinnar Hægri grænna, flokks
fólksins notumst við við nýja stefnu
í umönnun og hjúkrun aldraðra,
sem heitir „The Eden Alternative“
eða Eden-hugmyndafræðin á ís-
lensku og er alþjóðleg hreyfing
sjálfseignarstofnana sem eru stað-
ráðnar í því að bæta umhyggju, bú-
setu, umhverfi og lífsgæði eldri
borgara. Eden-hugmyndafræðin
veitir forsvarsmönnum öldr-
unarheimila leiðsögn í að breyta
stofnanahugsun í að færast nær því
að geta skapað virkt samfélag eldri
borgara, nokkurs konar aldingarð
eldri þegna þjóðfélagsins, þar sem
virðing er borin fyrir hverjum
manni, vist- og lífsgæði endurmetin
svo allir hafi ánægju af dvöl sinni á
meðal jafningja þegar hausti hallar.
Eden-hugmyndafræðina setti dr.
William Thomas fram fyrir hartnær
tveimur áratugum.
Eden hugmyndafræðin
– 10 lyklar
Plágurnar þrjár; einmanaleiki,
vanmætti og depurð eru því miður
fylgifiskar ellinnar.
Lífsgæðasamfélag eldri borg-
ara felur í sér að skapa lífsvið-
urværi, þar sem lífið snýst um sam-
skipti og umhyggju fyrir plöntum,
dýrum og börnum. Það
eru þessi samskipti
sem veita ungum jafnt
sem öldnum leið til
frekari lífshamingju.
Ástrík samskipti
eru mótvægi einmana-
leika. Eldri borgarar
eiga að hafa auðvelda
leið til samskipta við
dýr og menn.
Lífsgæðasamfélag
eldri borgara skapar
tækifæri fyrir um-
hyggju, hvort sem hún
er þegin eða gefin. Umhyggja er
mótvægi vanmáttar.
Lífsgæðasamfélag eldri borg-
ara býður upp á daglegt líf litað af
sjálfsprottinni fjölbreytni og sí-
breytileika, þar sem umhverfið
skapar óvænt og ófyrirsjánleg sam-
skipti. Þetta er mótvægi depurðar.
Innantómar og tilgangslausar
athafnir slæva hugann. Tækifæri til
athafna á gefandi og á þýðingarmik-
inn hátt er grundvöllur betri heilsu.
Lyfja- og læknismeðferð á að
þjóna, en ekki stjórna þeim sem á
henni þarf að halda.
Lífsgæðasamfélag eldri borg-
ara virkjar þá varðandi hefðbundna
stjórnunarhætti elliheimila, þannig
að þeir sjálfir, nákomnir ættingjar
eða vinir hafa meira um þjónustuna
að segja.
Lífsgæðasamfélag eldri borg-
ara er samfélag í stöðugri þróun. Í
virkri þjónustu við aldraða má aldr-
ei skilja mannlega þáttinn frá.
Góð leiðsögn, sjálfstæð hugsun
og styrk forysta eru lykilatriði í
baráttunni við plágurnar þrjár.
Í dag finnast aldingarðar eldri
borgara, sem starfa samkvæmt
Eden-hugmyndafræði um víða ver-
öld, meðal annars í öllum 50 fylkjum
Bandaríkjanna. Flokkurinn vill
breyta risastórum stofnanavæddum
elliheimilum og gjörbreyta um-
gengni við eldri borgara þjóðfélags-
ins með litlum aldingörðum sem
líkjast heimilum fólks, þar sem þeir
geta lifað með fullri reisn, eftir eig-
in höfði og unnið að sínum áhuga-
málum. Yfirstigið einmanaleika,
vanmátt og depurð. Nýtt hæfileika
sína og reynslu til góðra verka, m.a.
til lesturs fyrir börn og unglinga.
Ræktað sitt grænmeti, haft gælu-
dýrin sín hjá sér og lifað gefandi lífi
fyrir sjálfan sig og aðra.
Eldri borgurum fjölgar
Á seinasta ári var hlutfall 60 ára
og eldri af þegnum landsins 16,7%.
Hagstofa Íslands hefur gert mann-
fjöldaspá til ársins 2060. Henni er
skipt í þrennt: háspá, miðspá og
lágspá. Samkvæmt lágspánni mun
hlutfall sextíu ára og eldri vaxa
nokkuð jafnt og þétt til ársins 2060,
þegar 31,6% landsmanna verða sex-
tíu ára og eldri. Sé miðað við mið-
spána verður hlutfallið 28,8% og
26,2% sé miðað við háspána. Háspá-
in gerir ráð fyrir að Íslendingar
verði 493.800 árið 2060 og sextíu ára
og eldri verði þá rétt rúmlega
129.000. Af þessum tölum má sjá að
mikill vöxtur er í þeim aldurshópi
sem er að fara á eftirlaun og mikil
þörf er fyrir húsnæði fyrir aldraða.
Verða Íslendingar að endurhugsa
húsnæðisþörfina og þjónustuna sem
við ætlum að veita eldri borgurum
þjóðfélagsins. Ríkið hefur nú þegar
lokað St. Jósefs spítala í Hafnarfirði
(3700 m²), Arnarholti á Kjalarnesi
(5000 m²), Víðinesi (2200 m²) og Víf-
ilsstöðum (4000 m²), sem eru sam-
tals 14.900 m² af tómu húsnæði sem
liggur undir skemmdum. Að sjálf-
sögðu kostar viðhald, upphitun
o.s.frv. tugi milljóna á ári. Hægri
grænir, flokkur fólksins, vilja
breyta þessum byggingum í ald-
ingarða fyrir eldri borgara og leysa
þar með tvö vandamál; þörfina fyrir
nýtt rými fyrir aldraða og kostn-
aðinn og eyðilegginguna sem felst í
að hafa byggingar grotnandi niður.
Það er löngu kominn tími til þess að
hugsa betur um þá sem ruddu
brautina fyrir okkur sem yngri eru.
Plágurnar þrjár
Eftir Guðmund F.
Jónsson » Á seinasta ári var
hlutfall 60 ára og
eldri af þegnum lands-
ins 16,7%
Guðmundur F. Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur og
formaður Hægri grænna, flokks
fólksins.
Ólafur Ragnar hefur gert forseta-
embættið svo pólitískt að ófært er
að hann sitji áfram að Bessastöð-
um, hann hefur
fært úr lagi það
sameiningartákn
sem embættið
var þegar Krist-
ján þéraði bænd-
ur og búalið og
Vigdís gróð-
ursetti stilka svo
sauðkindin mætti
hafa eitthvað að
éta, til spari,
þegar hún loks
kæmist yfir girðingar.
Í þessum eða líkum tón tala
menn og vilja Ólaf Ragnar burt!
Ekki er spurt hvort þetta sé rétt.
Enda gæti svarið verið óþægilegt.
Rétt er reyndar að pólitík var
meira áberandi í embættisfærslum
Ólafs Ragnars en fyrirrennara hans
í embætti en þá er kannski skyn-
samlegt að spyrja: Hvers vegna?
Jú, það spurðist annað slagið
þegar hann sat á valdastóli að ein-
dreginn og óaflátanlegur þjóðarvilji
stæði til hins eða þessa. Í kjölfarið
var farið með bílfarma af manna-
nöfnum til Bessastaða og þótti ei
leiðin löng. Voru þessar bænaskrár
svo langar að skottið á þeim skreið
um Engidalinn þegar Ólafur hóf
lesturinn við útidyrnar á Bessastöð-
um.
Það vill segja, þjóðin bað um
pólitík! Ekki alltaf sami mannskap-
urinn í hvert eitt sinn, en alltaf
þjóðin. Fólkið í landinu vildi endi-
lega að herra Ólafur Ragnar
Grímsson sargaði það niður úr
þeim snörum sem misvitrir stjórn-
málamenn höfðu brugðið yfir fúin
krosstré í þeim ásetningi sínum að
hengja þjóð sína og skipti þá engu
hvort það átti að vera fyrir bakara
eða smið. Þjóðin bað forseta sinn
um hjálp, enda hefur þessi sama
þjóð ávallt haldið því fram að rétt
sé að hafa mann í hlutverki örygg-
isventils (svo smekklegt sem það
er) suður á Bessastöðum. Og slíkur
öryggisventill vildi Ólafur vera –
með sax.
Aftur og aftur hefur þessi sama
þjóð grenjað yfir því að þingmenn-
irnir sem hún kjósi sér séu oftast
fávitar, líklega hennar vegna eða
hvað? – og því hefur hún sagt slag í
slag að rétt sé að hún sjálf, þjóðin
altso, fái það sem kallað er á
sunnudögum beint lýðræði. En það
er það kallað þegar allir eru alltaf
spurðir um allt svo aldrei megi
komast að neinni niðurstöðu.
Ólafur svaraði kallinu; köllunum
– og kerlingunum. Og Ólafur Ragn-
ar Grímsson sendi hin ólíkustu mál
í dóm þjóðarinnar og eins og við
var að búast klufu þær sendingar
forsetans þjóðina í fylkingar.
Og hefði þá ekki mátt ætla að all-
ir væru glaðir? Eða var það ekki
nákvæmlega það sem að var stefnt?
Öllum mátti ljóst vera – sama
hvaða skoðanir þeir höfðu á þessum
einstöku málum – að aldrei yrði
sátt um verk forsetans. Því eru það
ólíkindalæti af versta tagi – og í
raun nokkuð meira í ætt við hráa
hræsni – að halda því fram að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson hafi gert for-
setaembættið pólitískt. Nema jú á
þann hátt að hann gerði það sem
þjóðin – svo sem ekki allir í einu
hljóði en andskoti magnaður nafna-
haugur í hvert eitt sinn – bað um
að hann gerði.
Og þá er rétt að ítreka það sem
að ofan var sagt: Hann er vandset-
inn skítabekkurinn.
GUÐMUNDUR S.
BRYNJÓLFSSON,
rithöfundur á Eyrarbakka.
Hann er vandsetinn
skítabekkurinn
Frá Guðmundi S. Brynjólfssyni
Guðmundur S
Brynjólfsson
Bréf til blaðsins
ESB notar hvert tækifæri til að
sýna okkur Íslendingum hversu
miklir vinir okkar það er.
Tökum Icesave fyrst: Stendur
ESB með okkur íslensku þjóðinni
eða ræningjunum Bretum og Hol-
lendingum? ESB hefur upplýst að
það muni styrkja ræningjana af
alefli gegn íslenska hryðjuverka-
pakkinu – þvinga íslensku þjóðina
til að greiða hundruð milljarða –
lán sem við tókum í raun aldrei
þjóðin. Hvernig er þá staðan varð-
andi tilteknar auðlindir, s.s. hvala-
stofninn og makrílstofninn? Jú, það
er þannig að ef við lofum ekki að
hætta að veiða úr þessum stofnum í
okkar eigin landhelgi, þá hóta vinir
okkar í Brussel að setja á okkur
viðskiptabann. Þar sem við erum
enn ekki orðin leppríki ESB sýnist
mér að við ráðum því bara sjálf
hvað og hversu mikið við veiðum úr
okkar eigin fiskveiðilögsögu. Það er
kannski kominn
tími til að við
finnum okkur
aðrar við-
skiptaþjóðir – og
þá helst þjóðir
sem eiga ekki þá
hugsjón að
leggja okkur
undir vald sitt
með góðu eða
illu. Ennþá er
margt að varast í samskiptum okk-
ar við valdaræningjana ESB. Ís-
lensku ESB-fulltrúunum skyldum
við hreinlega vara okkur á. Þeir
hafa örugglega ekki hreint mjöl í
pokahorninu og eru tilbúnir að
beita ýmsum brögðum til að ná
sínu fram, þar á meðal að fjarlægja
óþægilegar hindranir á leið sinni til
Brussel. Að vísu er ég rólegri á
meðan örugglega er rétti húsbónd-
inn á Bessastöðum, hr. Ólafur
Ragnar. Allavega er það fáranlegt
að íslenska þjóðin er í stórillindum
Vinir okkar í
Brussel, forsetakosn-
ingar framundan
Frá Karli Jónatanssyni
Karl Jónatansson
Höfum pláss fyrir eina eign á skrá í viðbót – Er það þín eign?
REDKEN ONLY SALONÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR
Komdu inn í sumarið
Viltu breyta til með aðstoð fagmanna?
Nýju vor- og sumarlínurnar frá Haute Coiffure Frances, Intercoiffure Mondial og Pivot Point komnar
HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRALITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
S. 568 7305 • SALONVEH.IS
SALONVEH