Morgunblaðið - 26.05.2012, Page 40

Morgunblaðið - 26.05.2012, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012 „Amma af hverju ertu ekki eins og aðrar ömmur; Lítil, feit með gráar fléttur og svuntu, prjónandi í ruggustól?“ Ég var ekki há í loftinu þegar ég áttaði mig á því að amma mín, þessi eina sem ég átti, var ekki eins og fólk er flest. Hún var dama á háum hælum með hanska og hatt og fór aldrei út úr húsi ótilhöfð. Það gustaði af henni og hún var ekki skoðanalaus, hafði meiningar um allt og fylgdist með öllu hvort sem það viðkom fjöl- skyldu eða þjóðmálum. Vellugang þoldi hún illa og vildi heyra skemmtisögur af börnum, ekki rapport um veikindi eða almenn leiðindi, nema ef það voru stjórn- mál, þá mátti ræða málin. Hún amma tók alltaf við okkur systkinum þegar foreldrar okkur brugðu sér á bæ og var gott að hafa ömmu heima. Það var fírað upp í eldhúsinu á morgnana, heitt súkkulaði og skorpulaust dúkku- brauð á boðstólum áður en við fórum í skólann. Hún bjó til bún- inga á okkur úr hillupappír og rabbabarablöðum, steikti spæ- legg á dúkkupönnu yfir spritt- kerti, spilaði við okkur rússa og kenndi okkur að leggja kapal. Alltaf mátti ég fikta í skartgrip- unum hennar og glingrinu, raða á mig perlufestum og demöntum, prófa hatta og hanska en það varð allt að vera í stíl. Hún var ekki venjuleg amma, það var eiginlega fátt venjulegt við hana Frið- björgu Ingjaldsdóttur. Það kom að því að ég gat að- stoðað hana og voru ófáar ferð- irnar sem að ég keyrði hana að hitta stelpurnar þegar þær spiluðu brids, flestar yfir 80 ára gamlar. Það hélt heilabúinu gang- andi, sagði hún og lagði hart að mér að læra þá list. Ég skvísaðist líka heilmikið með henni því svona dama eins og hún gat ekki látið sjá sig óplokkaða með ljótar tær, ferðir á snyrtistofuna voru því í miklu uppáhaldi hjá okkur báðum. Hún var ekki allra, sumum fannst hún hvöss og stjórnsöm en hún stóð fast á sínu fram á hinstu stund. Stjórnaði okkur öllum eins og herforingi en allt gerði ég fyrir hana með bros á vör og sól í hjarta því hún var amma mín, hjartagull. Hrafnhildi, Sigríði Dóru og öllu starfsfólki á A6 er þakkað fyrir umönnunina og aðstoðina við að hjálpa henni að halda reisn sinni fram á síðasta dag. Hún var orðin þreytt, þessi elska, þráði veisluna sem beið hennar í Paradís þar sem afi Gag- gadú klappar fyrir steikinni og henni Björgu sinni. Veit ég í Friðbjörg Ingjaldsdóttir ✝ Friðbjörg Ingj-aldsdóttir fæddist í Reykjavík 8. október 1918. Hún lést á Land- spítalanum 14. maí 2012. Útför Frið- bjargar fór fram frá Dómkirkjunni 23. maí 2012. hjarta mínu að þar hafa beðið vinir í varpa er von var á gesti. Út úr húsi fer dótturbarnið ekki öðruvísi en með málaðan túlla og vasaklút. Þakka ég elsku ömmu fyrir allt og allt. Það voru sönn forréttindi að fá að þekkja hana og elska. Þóra Bjarnadóttir. Amma var fædd frostaveturinn mikla og því var við hæfi að þegar hún kvaddi um miðjan maí, þá var snjór á jörðinni. Amma var ein- stök kona, sem kenndi mér mikið og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Þegar ég var 8 ára kenndi hún mér með- al annars að labba dömulega um, í háhæluðum skóm. Þá var ég látin ganga um í alltof stórum skóm með bók á höfðinu, fram og til baka. Ég virðist reyndar hafa glatað þeim hæfileikum núna. Hefði átt að vera duglegri að æfa mig. Þegar ég talaði við ömmu í síma þá spurði hún alltaf hvort ég væri búin að heyra nýjan brand- ara, ef ekki, þá sagði hún mér nýjasta brandarann sem hún hafði heyrt. Seinast þegar við töl- uðum saman í síma þá hafði hún miklar áhyggjur af því að ég væri ein heima og að mér leiddist, skildi ekkert í því að ég væri ekki með partí. Elsku amma, ég kveð þig með söknuði og vona að ég hafi náð að gleðja þig jafn mikið og þú gladd- ir mig. Þín Ásta. Svilkona mín, Friðbjörg Ingj- aldsdóttir, er látin á 94. aldursári. Björg, eins og hún var jafnan nefnd, var fædd 8. október 1918 en lést 14. þessa mánaðar eftir löng og erfið veikindi. Foreldrar hennar voru Þóra Pétursdóttir húsfreyja og Ingjaldur Þórarins- son verkamaður – bæði úr Kjós- inni. Björg var næst yngst sex systkina; þriggja systra og þriggja bræðra. Sjálf var hún fædd vestast í Vesturbænum og taldi sig alla tíð mikinn Vest- urbæing. Björg giftist ung Oddi Helga- syni útgerðarmanni. Hann var sonur hjónanna Helga Magnús- sonar járnsmiðs og kaupmanns og Oddrúnar Sigurðardóttur hús- freyju í Reykjavík. Björgu og Oddi varð sjö barna auðið sem öll komust á legg og urðu mikið myndarfólk. Björg hafði alltaf góðar sögur að segja af sínu fólki. Hún fylgd- ist með hópnum af áhuga og skýrði mér frá sigrum þeirra í líf- inu þegar við töluðum saman. Síð- ustu tvo áratugi ræddum við sam- an í síma oft einu sinni á dag og stundum oftar en hittumst sjaldn- ar. Eftir að við urðum báðar ekkj- ur og fækka tók fólki sem til- heyrði „gömlu fjölskyldunni“ urðu bönd okkar nánari. Við höfð- um þó þekkst í tæp 70 ár og oft lágu leiðir okkar saman. Við fór- um til dæmis saman í mína fyrstu utanlandsferð með hinu fræga skipi Eimskipafélagsins, Gull- fossi, árið 1954. Börn okkar voru sum á svipuðum aldri, léku sér saman og áttu margt sameigin- legt. Við giftumst inn í stóra og samheldna fjölskyldu þar sem gjarnan var mikið um að vera, bæði í Bankastræti 7 og seinna á Miklubraut 50 þar sem tengda- móðir okkar og mágkonur bjuggu. Það er sannarlega margs að minnast á svona tímamótum; sigra og sorga sem við deildum með öðrum í fjölskyldunni á ára- tuga langri vegferð. Oddur og Björg giftu sig í Kaupmannahöfn árið 1938. Björg hafði þá nýlokið húsmæðraskóla- námi sínu þegar Oddur sigldi út til hennar. Þau gengu í heilagt hjónaband í Holmenskirke í Höfn þar sem þjónaði íslenskur prest- ur, séra Haukur Gíslason frá Dalsmynni í Þingeyjarsýslu. Það er víst ekki ofsögum sagt að Björg hafi verið glæsileg kona, bæði ung og gömul. Að henni sóp- aði og eftir henni var tekið hvar sem komið var. Hún hafði létta lund, gat verið ákveðin og jafnvel hvöss, en alltaf fann maður fyrir hlýju og væntumþykju í viðmóti hennar þegar upp var staðið. Björg var vel gefin kona með framúrskarandi gott minni. Eitt helsta einkenni Bjargar var gjaf- mildi, hún vildi alltaf vera að gefa og gleðja fólk. Þessum eiginleika sínum fékk hún meðal annars svalað í starfi sínu fyrir Hringinn, en hún tók þátt í vinnu margra nefnda félagsins árum saman og lá aldrei á liði sínu. Síðustu árin hafa oft verið Björgu erfið vegna mikilla veik- inda. Að lokum varð hún að láta í minni pokann og ganga á vit feðra sinna södd lífdaga. Nú þegar komið er að kveðju- stund sendi ég og mín fjölskylda öllum núlifandi ættingjum Bjarg- ar okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim Guðs blessunar. Ég sakna vinar í stað en veit fyrir víst að það hefur ver- ið vel tekið á móti Björgu handan við móðuna miklu. Katrín Sigurðardóttir. Þegar við bræðurnir kveðjum ömmu Björgu í hinsta sinn er okkur efst í huga virðing og þakk- læti fyrir að hafa átt þessa ein- staklega skemmtilegu konu sem ömmu. Amma Björg var alveg mögn- uð. Hennar persónuleiki ein- kenndist af lífsgleði, jákvæðni, bjartsýni, dugnaði og einstökum sálarstyrk og æðruleysi. Það voru forréttindi að fá að kynnast lífs- viðhorfum hennar. Það var alltaf gaman að hitta ömmu, heyra hana segja sögur frá því í „gamla“ daga og þær voru ófáar sögurnar sem voru sagðar. Merkilegast af öllu var að hún sagði aldrei sömu söguna tvisvar. Sögurnar voru fróðlegar, skemmtilegar, kærleiksríkar og sumar hverjar átakanlegar. Þær höfðu skýran boðskap, sem hún greinilega vildi koma til skila til komandi kynslóða. Eflaust var þetta hennar leið til að takast á við lífið og þau veikindi og áföll sem hún gekk í gegnum. Já- kvæðni, bjartsýni og æðruleysi var hennar boðskapur, sem hún taldi vera forsenda vonarinnar. Með það að leiðarljósi var lífið fullt af möguleikum í stað hindr- ana. Hjá ömmu Björgu var glasið ávallt hálffullt. Í mörgum sögum hennar var afi Oddur í aðalhlutverki. Stíl- færði hún sögurnar þannig að við vorum stödd í einhvers konar James Bond bíómynd og afi var sjálfur James Bond. Slíkar voru lýsingarnar á skemmtilegum lífs- takti hans og þeim samkomum sem hann fór með hana í. Það var ætíð gaman að sjá glampann í augum ömmu þegar hún sagði okkur afa Odds sögurnar. Það var ástar- og kærleiksglampi. Virð- ingin sem hún bar fyrir honum var ólýsanleg og ætti að vera okk- ur öllum góð fyrirmynd. Hún kom til dyranna eins og hún var klædd og talaði aldrei í kringum hlutina. Kvöld eitt fyrir skömmu heimsóttum við bræð- urnir hana á spítalann. Þegar við gengum inn á herbergið hennar spenntir að fá að hitta hana, sagði hún: „Ég var einmitt að hugsa um að eina manneskjan sem mig langar til að tala við núna er hún amma ykkar, Steinþóra. Eruð þið með síma?“ Við réttum henni far- síma og talaði hún við ömmu Steinu í um 10 mínútur. Að sím- talinu loknu sagði hún: „Allt í lagi strákar mínir. Takk fyrir kom- una.“ Amma var mjög vanaföst eða öllu heldur íhaldssöm. Það var stranglega bannað að hringja í hana þegar verið var að sýna Leiðarljós, íþróttaleiki eða fréttir í sjónvarpinu. Ef við hringdum á þessum tíma var símtalið stutt og hnitmiðað: „Sælir, ég er að horfa á fréttir, heyrumst síðar, bless.“ Amma var úrræðagóð og heyrðum við t.a.m. oft sögur af því hvernig málum var reddað ef skortur var á mat og stór veisla í vændum. Hjá ömmu var alltaf boðið upp á kaffi í fínasta postu- líninu. Hún töfraði fram smákök- ur eða annað góðgæti og lét gest- um líða eins og þeir væru staddir í veislu hjá kóngafólki. Amma Björg var fyrirmyndar- kona í einu og öllu. Hún smitaði út frá sér lífsgleði og jákvæðni, sem gerði það að verkum að það var einstaklega gaman að vera í kringum hana. Megi lífsviðhorf hennar vera okkur styrkur og leiðarljós alla tíð. Blessuð sé minning ömmu Bjargar. Davíð Freyr og Friðbjörn. Elsku amma, nú er afi loksins búinn að fá „mimmu“ sína. Rosa- lega held ég að hann sé kátur og glaður að vera búinn að fá þig. Sem barn upplifði ég þig sem ömmuna sem átti fullt af fram- andi hlutum sem ekki mátti snerta og allt átti að vera í röð og reglu. Þetta var skemmtileg and- stæða við það sem ég upplifði hjá móðurömmu minni þar sem ég komst upp með að leika mér í hveitiskúffunni í eldhúsinu og gat búið til síðkjóla á barbídúkkurnar mínar úr servéttum og títuprjón- um. Þið voruð því eins og svart og hvítt fyrir mér sem varð til þess að sem barn leitaði ég ekki nógu mikið til þín, jafnvel þó að móð- uramma mín væri ekki lengur til staðar. Fyrir nokkrum árum fór ég til miðils og fékk þá skilaboð frá móðurömmu minni um að ég ætti nú að hafa meira samband við þig. Nú er ég yfir mig ánægð því ég fór að koma til þín af og til og átti yndisleg samtöl við þig í rólegheitunum enda ég ekki leng- ur á handóða tímabilinu. Fannst mér skemmtilegast þegar þú varst að skammast yfir einhverju og ég fékk tækifæri til að benda á einhverja jákvæða punkta. Við það varðst þú afar þögul og hugsi smá stund en svo birtist líka þetta fallega bros sem sprakk með hlátri. Veitti það mér mikla ham- ingju, elsku amma. Ég hefði ekki vilja missa af þessum stundum okkar. Nú, svo þegar dóttir mín var komin af handóða tímabilinu kom ég með hana til þín og fannst mér ánægja ykkar beggja vera mikil þegar við fyrir nokkru síðan plönuðum að hafa „sleep over“. Inga Björg varð því mjög sorg- mædd þegar hún heyrði um brottför þína án þess að hún næði að gista hjá langömmu sinni. Þín er því sárt saknað hér á þessum bæ af tveimur fyrrverandi hand- óðum stelpum. Elsku amma, ég vona að þú hafir það gott og gaman með afa og svífir í ilmvatnsskýi Elisabetar Taylor. Guð veri ávallt með þér. Katrín Helgadóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, mágur, afi og langafi, KEN C. AMIN, Kópavogsbraut 47, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 15. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Parkinsonssamtakanna á Íslandi (parkinson.is). Sigurbjörg Jónsdóttir, Aron Árnason, Sigríður Elín Þorkelsdóttir, Ervin Árnason, Dagbjört Sigfinnsdóttir, Anita Árnadóttir, Sigurjón Páll Kolbeins, Örn Árnason, Margrét Þóra Einarsdóttir, Orri Árnason, Fanney Elín Ásgeirsdóttir, Vishnu Amin, Harpa Jósefsdóttir Amin, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KARITAS JÓNA FINNBOGADÓTTIR, Sunnubraut 18, Keflavík, sem lést sunnudaginn 20. maí, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 11.00. Þórdís Kristjánsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Sigurbjörn Gústavsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Páll Fanndal, Hildur Björk Gunnarsdóttir, Tryggvi Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartkær maður minn, faðir okkar, afi, tengdafaðir, tengdasonur og bróðir, RAGNAR HÖSKULDSSON, Hátúni 7, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugar- daginn 19. maí. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Gunnarsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Pétur Örn Pétursson, Ragnar Haraldsson, Lára Rún Ragnarsdóttir. ✝ Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS SIGFÚSDÓTTIR frá Vogum í Mývatnssveit, Hörðalandi 8, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 15.00. Sólveig Ólöf Jónsdóttir, Pétur R. Guðmundsson, Guðmundur H. Pétursson, Elín B. Gunnarsdóttir, Eva Sólveig, Ásdís Eir og Erla Margrét, Birgir Tjörvi Pétursson, Erla Kristín Árnadóttir, Kristín Klara og Árni Pétur, Ásdís Ýr Pétursdóttir, Haraldur Örn Ólafsson, Sólveig Kristín og Ólafur Örn, Bryndís Ýr Pétursdóttir, Jürgen Maier, Ísak Þorri, Freyja og Marta. ✝ Ástkær faðir okkar og vinur, BJÖRGVIN HERMANNSSON húsgagnasmíðameistari, Boðahlein 22, Garðabæ, lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu- daginn 24. maí. Útför hans verður gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 11. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landsamtök hjartasjúklinga. Vilhjálmur Pétur Björgvinsson, Hermann Björgvinsson, Sigríður Jóhannsdóttir. ✝ Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR KRISTJÓNSSON rafverktaki, Eikjuvogi 17, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 29. maí og hefst athöfnin kl. 15.00. Guðný Ásbjörnsdóttir, Guðný Svavarsdóttir, Sveinn Óttar Gunnarsson, Jörundur Svavarsson, Sif Matthíasdóttir, Erla Kristín Svavarsdóttir, Sigríkur Smári Ragnarsson, Lilja Steinunn Svavarsdóttir, Bjarni Jónsson, Auður Ólína Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.