Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
„Amma af hverju
ertu ekki eins og aðrar ömmur;
Lítil, feit með gráar fléttur og
svuntu, prjónandi í ruggustól?“
Ég var ekki há í loftinu þegar
ég áttaði mig á því að amma mín,
þessi eina sem ég átti, var ekki
eins og fólk er flest. Hún var
dama á háum hælum með hanska
og hatt og fór aldrei út úr húsi
ótilhöfð. Það gustaði af henni og
hún var ekki skoðanalaus, hafði
meiningar um allt og fylgdist með
öllu hvort sem það viðkom fjöl-
skyldu eða þjóðmálum. Vellugang
þoldi hún illa og vildi heyra
skemmtisögur af börnum, ekki
rapport um veikindi eða almenn
leiðindi, nema ef það voru stjórn-
mál, þá mátti ræða málin.
Hún amma tók alltaf við okkur
systkinum þegar foreldrar okkur
brugðu sér á bæ og var gott að
hafa ömmu heima. Það var fírað
upp í eldhúsinu á morgnana, heitt
súkkulaði og skorpulaust dúkku-
brauð á boðstólum áður en við
fórum í skólann. Hún bjó til bún-
inga á okkur úr hillupappír og
rabbabarablöðum, steikti spæ-
legg á dúkkupönnu yfir spritt-
kerti, spilaði við okkur rússa og
kenndi okkur að leggja kapal.
Alltaf mátti ég fikta í skartgrip-
unum hennar og glingrinu, raða á
mig perlufestum og demöntum,
prófa hatta og hanska en það varð
allt að vera í stíl. Hún var ekki
venjuleg amma, það var eiginlega
fátt venjulegt við hana Frið-
björgu Ingjaldsdóttur.
Það kom að því að ég gat að-
stoðað hana og voru ófáar ferð-
irnar sem að ég keyrði hana að
hitta stelpurnar þegar þær
spiluðu brids, flestar yfir 80 ára
gamlar. Það hélt heilabúinu gang-
andi, sagði hún og lagði hart að
mér að læra þá list. Ég skvísaðist
líka heilmikið með henni því
svona dama eins og hún gat ekki
látið sjá sig óplokkaða með ljótar
tær, ferðir á snyrtistofuna voru
því í miklu uppáhaldi hjá okkur
báðum.
Hún var ekki allra, sumum
fannst hún hvöss og stjórnsöm en
hún stóð fast á sínu fram á hinstu
stund. Stjórnaði okkur öllum eins
og herforingi en allt gerði ég fyrir
hana með bros á vör og sól í
hjarta því hún var amma mín,
hjartagull.
Hrafnhildi, Sigríði Dóru og öllu
starfsfólki á A6 er þakkað fyrir
umönnunina og aðstoðina við að
hjálpa henni að halda reisn sinni
fram á síðasta dag.
Hún var orðin þreytt, þessi
elska, þráði veisluna sem beið
hennar í Paradís þar sem afi Gag-
gadú klappar fyrir steikinni og
henni Björgu sinni. Veit ég í
Friðbjörg
Ingjaldsdóttir
✝ Friðbjörg Ingj-aldsdóttir
fæddist í Reykjavík
8. október 1918.
Hún lést á Land-
spítalanum 14. maí
2012.
Útför Frið-
bjargar fór fram
frá Dómkirkjunni
23. maí 2012.
hjarta mínu að þar
hafa beðið vinir í
varpa er von var á
gesti.
Út úr húsi fer
dótturbarnið ekki
öðruvísi en með
málaðan túlla og
vasaklút. Þakka ég
elsku ömmu fyrir
allt og allt. Það voru
sönn forréttindi að
fá að þekkja hana og
elska.
Þóra
Bjarnadóttir.
Amma var fædd frostaveturinn
mikla og því var við hæfi að þegar
hún kvaddi um miðjan maí, þá var
snjór á jörðinni. Amma var ein-
stök kona, sem kenndi mér mikið
og er ég þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast henni. Þegar
ég var 8 ára kenndi hún mér með-
al annars að labba dömulega um, í
háhæluðum skóm. Þá var ég látin
ganga um í alltof stórum skóm
með bók á höfðinu, fram og til
baka. Ég virðist reyndar hafa
glatað þeim hæfileikum núna.
Hefði átt að vera duglegri að æfa
mig. Þegar ég talaði við ömmu í
síma þá spurði hún alltaf hvort ég
væri búin að heyra nýjan brand-
ara, ef ekki, þá sagði hún mér
nýjasta brandarann sem hún
hafði heyrt. Seinast þegar við töl-
uðum saman í síma þá hafði hún
miklar áhyggjur af því að ég væri
ein heima og að mér leiddist,
skildi ekkert í því að ég væri ekki
með partí.
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði og vona að ég hafi náð að
gleðja þig jafn mikið og þú gladd-
ir mig.
Þín
Ásta.
Svilkona mín, Friðbjörg Ingj-
aldsdóttir, er látin á 94. aldursári.
Björg, eins og hún var jafnan
nefnd, var fædd 8. október 1918
en lést 14. þessa mánaðar eftir
löng og erfið veikindi. Foreldrar
hennar voru Þóra Pétursdóttir
húsfreyja og Ingjaldur Þórarins-
son verkamaður – bæði úr Kjós-
inni. Björg var næst yngst sex
systkina; þriggja systra og
þriggja bræðra. Sjálf var hún
fædd vestast í Vesturbænum og
taldi sig alla tíð mikinn Vest-
urbæing.
Björg giftist ung Oddi Helga-
syni útgerðarmanni. Hann var
sonur hjónanna Helga Magnús-
sonar járnsmiðs og kaupmanns
og Oddrúnar Sigurðardóttur hús-
freyju í Reykjavík. Björgu og
Oddi varð sjö barna auðið sem öll
komust á legg og urðu mikið
myndarfólk.
Björg hafði alltaf góðar sögur
að segja af sínu fólki. Hún fylgd-
ist með hópnum af áhuga og
skýrði mér frá sigrum þeirra í líf-
inu þegar við töluðum saman. Síð-
ustu tvo áratugi ræddum við sam-
an í síma oft einu sinni á dag og
stundum oftar en hittumst sjaldn-
ar. Eftir að við urðum báðar ekkj-
ur og fækka tók fólki sem til-
heyrði „gömlu fjölskyldunni“
urðu bönd okkar nánari. Við höfð-
um þó þekkst í tæp 70 ár og oft
lágu leiðir okkar saman. Við fór-
um til dæmis saman í mína fyrstu
utanlandsferð með hinu fræga
skipi Eimskipafélagsins, Gull-
fossi, árið 1954. Börn okkar voru
sum á svipuðum aldri, léku sér
saman og áttu margt sameigin-
legt. Við giftumst inn í stóra og
samheldna fjölskyldu þar sem
gjarnan var mikið um að vera,
bæði í Bankastræti 7 og seinna á
Miklubraut 50 þar sem tengda-
móðir okkar og mágkonur
bjuggu. Það er sannarlega margs
að minnast á svona tímamótum;
sigra og sorga sem við deildum
með öðrum í fjölskyldunni á ára-
tuga langri vegferð.
Oddur og Björg giftu sig í
Kaupmannahöfn árið 1938. Björg
hafði þá nýlokið húsmæðraskóla-
námi sínu þegar Oddur sigldi út
til hennar. Þau gengu í heilagt
hjónaband í Holmenskirke í Höfn
þar sem þjónaði íslenskur prest-
ur, séra Haukur Gíslason frá
Dalsmynni í Þingeyjarsýslu.
Það er víst ekki ofsögum sagt
að Björg hafi verið glæsileg kona,
bæði ung og gömul. Að henni sóp-
aði og eftir henni var tekið hvar
sem komið var. Hún hafði létta
lund, gat verið ákveðin og jafnvel
hvöss, en alltaf fann maður fyrir
hlýju og væntumþykju í viðmóti
hennar þegar upp var staðið.
Björg var vel gefin kona með
framúrskarandi gott minni. Eitt
helsta einkenni Bjargar var gjaf-
mildi, hún vildi alltaf vera að gefa
og gleðja fólk. Þessum eiginleika
sínum fékk hún meðal annars
svalað í starfi sínu fyrir Hringinn,
en hún tók þátt í vinnu margra
nefnda félagsins árum saman og
lá aldrei á liði sínu.
Síðustu árin hafa oft verið
Björgu erfið vegna mikilla veik-
inda. Að lokum varð hún að láta í
minni pokann og ganga á vit feðra
sinna södd lífdaga.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund sendi ég og mín fjölskylda
öllum núlifandi ættingjum Bjarg-
ar okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum þeim Guðs
blessunar. Ég sakna vinar í stað
en veit fyrir víst að það hefur ver-
ið vel tekið á móti Björgu handan
við móðuna miklu.
Katrín Sigurðardóttir.
Þegar við bræðurnir kveðjum
ömmu Björgu í hinsta sinn er
okkur efst í huga virðing og þakk-
læti fyrir að hafa átt þessa ein-
staklega skemmtilegu konu sem
ömmu.
Amma Björg var alveg mögn-
uð. Hennar persónuleiki ein-
kenndist af lífsgleði, jákvæðni,
bjartsýni, dugnaði og einstökum
sálarstyrk og æðruleysi. Það voru
forréttindi að fá að kynnast lífs-
viðhorfum hennar.
Það var alltaf gaman að hitta
ömmu, heyra hana segja sögur
frá því í „gamla“ daga og þær
voru ófáar sögurnar sem voru
sagðar. Merkilegast af öllu var að
hún sagði aldrei sömu söguna
tvisvar. Sögurnar voru fróðlegar,
skemmtilegar, kærleiksríkar og
sumar hverjar átakanlegar. Þær
höfðu skýran boðskap, sem hún
greinilega vildi koma til skila til
komandi kynslóða. Eflaust var
þetta hennar leið til að takast á
við lífið og þau veikindi og áföll
sem hún gekk í gegnum. Já-
kvæðni, bjartsýni og æðruleysi
var hennar boðskapur, sem hún
taldi vera forsenda vonarinnar.
Með það að leiðarljósi var lífið
fullt af möguleikum í stað hindr-
ana. Hjá ömmu Björgu var glasið
ávallt hálffullt.
Í mörgum sögum hennar var
afi Oddur í aðalhlutverki. Stíl-
færði hún sögurnar þannig að við
vorum stödd í einhvers konar
James Bond bíómynd og afi var
sjálfur James Bond. Slíkar voru
lýsingarnar á skemmtilegum lífs-
takti hans og þeim samkomum
sem hann fór með hana í. Það var
ætíð gaman að sjá glampann í
augum ömmu þegar hún sagði
okkur afa Odds sögurnar. Það var
ástar- og kærleiksglampi. Virð-
ingin sem hún bar fyrir honum
var ólýsanleg og ætti að vera okk-
ur öllum góð fyrirmynd.
Hún kom til dyranna eins og
hún var klædd og talaði aldrei í
kringum hlutina. Kvöld eitt fyrir
skömmu heimsóttum við bræð-
urnir hana á spítalann. Þegar við
gengum inn á herbergið hennar
spenntir að fá að hitta hana, sagði
hún: „Ég var einmitt að hugsa um
að eina manneskjan sem mig
langar til að tala við núna er hún
amma ykkar, Steinþóra. Eruð þið
með síma?“ Við réttum henni far-
síma og talaði hún við ömmu
Steinu í um 10 mínútur. Að sím-
talinu loknu sagði hún: „Allt í lagi
strákar mínir. Takk fyrir kom-
una.“
Amma var mjög vanaföst eða
öllu heldur íhaldssöm. Það var
stranglega bannað að hringja í
hana þegar verið var að sýna
Leiðarljós, íþróttaleiki eða fréttir
í sjónvarpinu. Ef við hringdum á
þessum tíma var símtalið stutt og
hnitmiðað: „Sælir, ég er að horfa
á fréttir, heyrumst síðar, bless.“
Amma var úrræðagóð og
heyrðum við t.a.m. oft sögur af
því hvernig málum var reddað ef
skortur var á mat og stór veisla í
vændum. Hjá ömmu var alltaf
boðið upp á kaffi í fínasta postu-
líninu. Hún töfraði fram smákök-
ur eða annað góðgæti og lét gest-
um líða eins og þeir væru staddir
í veislu hjá kóngafólki.
Amma Björg var fyrirmyndar-
kona í einu og öllu. Hún smitaði
út frá sér lífsgleði og jákvæðni,
sem gerði það að verkum að það
var einstaklega gaman að vera í
kringum hana. Megi lífsviðhorf
hennar vera okkur styrkur og
leiðarljós alla tíð.
Blessuð sé minning ömmu
Bjargar.
Davíð Freyr og Friðbjörn.
Elsku amma, nú er afi loksins
búinn að fá „mimmu“ sína. Rosa-
lega held ég að hann sé kátur og
glaður að vera búinn að fá þig.
Sem barn upplifði ég þig sem
ömmuna sem átti fullt af fram-
andi hlutum sem ekki mátti
snerta og allt átti að vera í röð og
reglu. Þetta var skemmtileg and-
stæða við það sem ég upplifði hjá
móðurömmu minni þar sem ég
komst upp með að leika mér í
hveitiskúffunni í eldhúsinu og gat
búið til síðkjóla á barbídúkkurnar
mínar úr servéttum og títuprjón-
um. Þið voruð því eins og svart og
hvítt fyrir mér sem varð til þess
að sem barn leitaði ég ekki nógu
mikið til þín, jafnvel þó að móð-
uramma mín væri ekki lengur til
staðar. Fyrir nokkrum árum fór
ég til miðils og fékk þá skilaboð
frá móðurömmu minni um að ég
ætti nú að hafa meira samband
við þig. Nú er ég yfir mig ánægð
því ég fór að koma til þín af og til
og átti yndisleg samtöl við þig í
rólegheitunum enda ég ekki leng-
ur á handóða tímabilinu. Fannst
mér skemmtilegast þegar þú
varst að skammast yfir einhverju
og ég fékk tækifæri til að benda á
einhverja jákvæða punkta. Við
það varðst þú afar þögul og hugsi
smá stund en svo birtist líka þetta
fallega bros sem sprakk með
hlátri. Veitti það mér mikla ham-
ingju, elsku amma. Ég hefði ekki
vilja missa af þessum stundum
okkar. Nú, svo þegar dóttir mín
var komin af handóða tímabilinu
kom ég með hana til þín og fannst
mér ánægja ykkar beggja vera
mikil þegar við fyrir nokkru síðan
plönuðum að hafa „sleep over“.
Inga Björg varð því mjög sorg-
mædd þegar hún heyrði um
brottför þína án þess að hún næði
að gista hjá langömmu sinni. Þín
er því sárt saknað hér á þessum
bæ af tveimur fyrrverandi hand-
óðum stelpum.
Elsku amma, ég vona að þú
hafir það gott og gaman með afa
og svífir í ilmvatnsskýi Elisabetar
Taylor. Guð veri ávallt með þér.
Katrín Helgadóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir, mágur, afi og langafi,
KEN C. AMIN,
Kópavogsbraut 47,
Kópavogi,
sem lést þriðjudaginn 15. maí, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á minningarkort Parkinsonssamtakanna á Íslandi
(parkinson.is).
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Aron Árnason, Sigríður Elín Þorkelsdóttir,
Ervin Árnason, Dagbjört Sigfinnsdóttir,
Anita Árnadóttir, Sigurjón Páll Kolbeins,
Örn Árnason, Margrét Þóra Einarsdóttir,
Orri Árnason, Fanney Elín Ásgeirsdóttir,
Vishnu Amin, Harpa Jósefsdóttir Amin,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KARITAS JÓNA FINNBOGADÓTTIR,
Sunnubraut 18,
Keflavík,
sem lést sunnudaginn 20. maí, verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn
30. maí kl. 11.00.
Þórdís Kristjánsdóttir,
Laufey Kristjánsdóttir, Sigurbjörn Gústavsson,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Páll Fanndal,
Hildur Björk Gunnarsdóttir, Tryggvi Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær maður minn, faðir okkar, afi,
tengdafaðir, tengdasonur og bróðir,
RAGNAR HÖSKULDSSON,
Hátúni 7,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugar-
daginn 19. maí.
Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 29. maí
kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Gunnarsdóttir,
Anita Ragnarsdóttir, Pétur Örn Pétursson,
Ragnar Haraldsson,
Lára Rún Ragnarsdóttir.
✝
Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS SIGFÚSDÓTTIR
frá Vogum í Mývatnssveit,
Hörðalandi 8,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 30. maí kl. 15.00.
Sólveig Ólöf Jónsdóttir, Pétur R. Guðmundsson,
Guðmundur H. Pétursson, Elín B. Gunnarsdóttir,
Eva Sólveig, Ásdís Eir og Erla Margrét,
Birgir Tjörvi Pétursson, Erla Kristín Árnadóttir,
Kristín Klara og Árni Pétur,
Ásdís Ýr Pétursdóttir, Haraldur Örn Ólafsson,
Sólveig Kristín og Ólafur Örn,
Bryndís Ýr Pétursdóttir, Jürgen Maier,
Ísak Þorri, Freyja og Marta.
✝
Ástkær faðir okkar og vinur,
BJÖRGVIN HERMANNSSON
húsgagnasmíðameistari,
Boðahlein 22,
Garðabæ,
lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu-
daginn 24. maí.
Útför hans verður gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 11. júní
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Landsamtök hjartasjúklinga.
Vilhjálmur Pétur Björgvinsson,
Hermann Björgvinsson,
Sigríður Jóhannsdóttir.
✝
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVAVAR KRISTJÓNSSON
rafverktaki,
Eikjuvogi 17,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 29. maí og hefst athöfnin
kl. 15.00.
Guðný Ásbjörnsdóttir,
Guðný Svavarsdóttir, Sveinn Óttar Gunnarsson,
Jörundur Svavarsson, Sif Matthíasdóttir,
Erla Kristín Svavarsdóttir, Sigríkur Smári Ragnarsson,
Lilja Steinunn Svavarsdóttir, Bjarni Jónsson,
Auður Ólína Svavarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.