Morgunblaðið - 26.05.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Í umræðum þingmanna um til-lögu Vigdísar Haukdsóttur um
að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði
um hvort halda skyldi aðlög-
unarferlinu að ESB áfram kom
fram að kosningar um slíkt tíðk-
uðust ekki í öðrum ríkjum. Þar
væri ekki kosið fyrr en samningur
lægi fyrir.
Nú er munurinn að vísu sá aðhér á landi er enginn stuðn-
ingur við aðild að ESB, hvorki í rík-
isstjórn, á þingi né á meðal þjóð-
arinnar.
Þegar af þessum ástæðum eruallt aðrar forsendur fyrir slíkri
kosningu hér á landi þó að heittrú-
aðir þingmenn Samfylkingar eigi
bágt með að koma auga á það.
En þessum sömu mönnum þykiralveg sjálfsagt að láta kjósa
um tillögu að stjórnarskrá sem fyr-
ir liggur og vitað er að getur aldrei
orðið að stjórnarskrá.
Og til að gera þá fráleitu kosn-ingu enn óskiljanlegri þykir
þessum þingmönnum sjálfsagt að
láta í leiðinni kjósa um nokkrar
spurningar sem hægt er að túlka út
og suður að kosningu lokinni.
Ætli þingmenn Samfylking-arinnar geti nefnt mörg
dæmi um að viðlíka aðferðum hafi
verið beitt við endurskoðun stjórn-
arskrár í öðrum Evrópuríkjum?
Eða í nokkru ríki veraldar ef út í
það er farið?
Fróðlegt væri ef einhver gætibent á jafnvitleysislega aðferð
við endurskoðun stjórnarskrár og
íslensk stjórnvöld standa nú fyrir.
Einstök aðferð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.5., kl. 18.00
Reykjavík 10 súld
Bolungarvík 11 rigning
Akureyri 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skúrir
Vestmannaeyjar 8 alskýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 27 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 20 léttskýjað
Glasgow 23 heiðskírt
London 22 heiðskírt
París 26 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 22 léttskýjað
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 7 alskýjað
Montreal 26 skýjað
New York 17 alskýjað
Chicago 22 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:37 23:14
ÍSAFJÖRÐUR 3:05 23:56
SIGLUFJÖRÐUR 2:46 23:40
DJÚPIVOGUR 2:58 22:51
„Við vorum með frumvarp um
kirkjugarðana á okkar vinnslu-
borði en það reyndist þurfa meiri
skoðunar við innan stjórnsýsl-
unnar,“ segir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra um fjárhags-
vanda kirkjugarða landsins.
Kirkjugarðar geta ekki starfað
áfram nema tekjur þeirra verði
auknar, að því er fram kom hjá
Þórsteini Ragnarssyni, formanni
Kirkjugarðasambands Íslands, í
fréttaskýringu í blaðinu í gær.
Ögmundur segir að ráðuneytið
sé meðvitað um þennan vanda og
telji að taka þurfi á honum. Mis-
munandi áherslur séu innan stjórn-
sýslunnar og þar sem verið væri að
ræða um lausnir til framtíðar
þyrfti að vanda vinnubrögðin. „Við
ákváðum að gefa okkur sumarið til
þess að reyna að ná samstöðu um
málið og skilgreina þann ágreining
sem er uppi,“ segir Ögmundur.
Fram kom í greininni í gær að því
hefði verið haldið fram að kirkju-
garðarnir ættu næga peninga.
Kirkjugarðarnir benda á að um sé
að ræða bundna sjóði til að standa
undir lífeyrisskuldbindingum.
helgi@mbl.is
Þarf meiri
tíma til að
finna lausn
Ágreiningur um
vanda kirkjugarða
Í ráði er að skipa nefnd til að fara
yfir lög og hlutverk sveitarfélaga
og ríkisins við ákvarðanir um lagn-
ingu vega þar sem ágreiningur er á
milli Vegagerðarinnar og sveitarfé-
laga.
Tilefni skipunar nefndarinnar er,
samkvæmt upplýsingum Ögmund-
ar Jónassonar innanríkisráðherra,
umræða sem hefur orðið um þá
ákvörðun ráðherrans að Vegagerð-
in hætti að vinna að hugmyndum
um styttingu hringvegarins í Aust-
ur-Húnavatnssýslu og Skagafirði.
Ögmundur telur umræðuna gefa
tilefni til að velta fyrir sér endur-
skoðun skipulagslaga og vegalaga
og veltir því fyrir sér hvort bræða
þurfi saman vinnu þeirra tveggja
sjálfstæðu stjórnsýslustiga sem
vinna að þessum málum.
Til að auðvelda ákvarðanir
Reiknað er með að skipaðir verði
fulltrúar innanríkisráðuneytis,
Vegagerðarinnar, umhverfisráðu-
neytis og Sambands íslenskra
sveitarfélaga í nefnd til að fjalla
um málið. Hlutverk nefndarinnar
verður að fara yfir gildandi lög og
taka einnig til skoðunar lögin um
samgönguáætlun með það í huga
að auðvelda ákvarðanir um lagn-
ingu vega þannig að öll sjónarmið
komi til álita.
helgi@mbl.is
Nefnd fer yfir vegi og skipulag
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vegagerð Ágreiningur kemur
stundum upp um lagningu vega.
Ráðherra skipar nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveit-
arfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega