Morgunblaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Kaffi á könnunni og næg bílastæði
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
kl. 10–18
OG LAUGARDAGA
kl. 10–14
Fiskislóð 39
Faxaflóahafnir sf. bjóða íbúum Reykjavíkur til
gönguferðar um Gömlu höfnina í Reykjavík undir
leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns hafnar-
stjórnar laugardaginn 26. maí 2012.
Á undanförnu ári og fram á árið 2012 hefur stýrihópur á vegum
Reykjavíkurborgar unnið að rammaskipulagi Gömlu hafnarinnar
í Reykjavík í samvinnu við Graeme Massie arkitekta í Skotlandi.
Nú þegar þeirri vinnu er að mestu lokið vill hafnarstjórn gefa
almenningi kost á að kynna sér skipulagið og ræða það.
Lagt verður af stað í gönguna frá styttu Ingólfs Arnasonar á
Arnarhóli stundvíslega kl 11:00, gengið verður um austurhöfnina
og út á Grandagarð að Sjóminjasafninu Víkinni þar sem formaður
mun kynna þær hugmyndir sem unnið er að.
af reiðmennsku og tamningum. For-
eldrarnir voru að sjálfsögðu við-
staddir skólaslitin en Kristinn afhenti
verðlaun við brautskráninguna frá
Landssambandi hestamannafélaga.
Hekla segist vera mjög ánægð með
dvölina og námið á Hólum, á hverju
ári hafi bæst við þekking til að byggja
á. „Þriðja árið er erfiðast, eins og það
á að vera.“
Hún hefur verið á kafi í hesta-
mennskunni frá barnsaldri og tók því
snemma stefnuna á nám á Hólum.
„Þetta er það sem mig langar að
starfa við og þá reynir maður að
mennta sig eins og maður getur.“
Hekla fer strax að starfa í sumar á
hestabúi sínu í Árbæjarhjáleigu við
reiðkennslu, tamningar og sýningar.
„Síðan kemur framtíðin bara í ljós, ég
mun grípa þau tækifæri sem gefast.“
Á sýningunni á Hólum í gær var hún á
stóðhestinum Klæng frá Skálakoti,
sem hún fékk lánaðan. „Ég var svo
lánsöm að fá þennan góða hest og
vonandi náum við að sýna okkur eitt-
hvað á keppnisbrautinni í sumar,“
segir Hekla.
Alls luku 28 nemendur námi við
hestadeild Hólaskóla, þar af tólf með
BS-gráðu í hestafræði. Þar fór fram
sameiginleg brautskráning með
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri og mætti Ágúst Sigurðsson, rekt-
or á Hvanneyri, í Skagafjörðinn og að-
stoðaði starfsbróður sinn, Skúla
Skúlason, við þann hluta athafn-
arinnar í Miðgarði, sem greint er frá
nánar hér til hliðar.
Verðlaunahafar Þórarinn Ragnarsson og Hekla Katharina Kristinsdóttir með verðlaun sín fyr-
ir góðan árangur á reiðkennarabraut og Hekla með Morgunblaðshnakkinn í hægri hönd.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Feðgin Hestamaðurinn Kristinn Guðnason í Skarði var stoltur af dóttur sinni, Heklu , við braut-
skráninguna frá Hólaskóla í gær. Hekla mun keppa áfram á stóðhestinum Klæng í sumar.
Góð tilfinning að klára námið
Hekla Katharina Kristinsdóttir fékk Morgunblaðshnakkinn fyrir hæstu aðaleinkunn á reiðkenn-
arabraut hestadeildar Háskólans á Hólum Sópaði til sín verðlaunum ásamt Þórarni Ragnarssyni
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er mjög góð tilfinning að klára
og sérstaklega ánægjulegt að þetta
skuli vera í höfn,“ segir Hekla Kat-
harina Kristinsdóttir, sem útskrifaðist
sem reiðkennari frá Háskólanum á
Hólum í gær. Hún fékk Morgunblaðs-
hnakkinn, verðlaun sem Morg-
unblaðið gaf fyrir hæstu aðaleinkunn,
8,8, á reiðkennarabraut við hestadeild
skólans. Brautskráning og skólaslit
fóru fram í gær en á undan voru tíu
útskriftarnemendur frá hestadeild
með reiðsýningu á Hólum. Létu þeir
sunnanrok ekki á sig fá á reiðvellinum
við Þrárhöllina og að sýningu lokinni
voru veitt verðlaun fyrir góðan náms-
árangur á reiðkennarabraut.
Hekla fékk einnig LH-styttuna frá
Landssambandi hestamannafélaga
fyrir bestan námsárangur í kennslu-
fræði og reiðkennslu. Þá fékk Þór-
arinn Ragnarsson einnig tvenn verð-
laun fyrir bestan námsárangur í
reiðmennsku og þjálfun en verðlaunin
gáfu Félag tamningamanna og hesta-
vöruverslunin Ástund.
Með reiðmennsku í blóðinu
Hekla býr í Árbæjarhjáleigu í
Holta- og Landsveit og á ekki langt að
sækja hæfileikana í hestamennskunni
þar sem faðir hennar er Kristinn
Guðnason í Skarði og móðirin Marjo-
lijn Tiepen, sem hefur langa reynslu
Skúli Skúlason, fráfarandi rektor
Hólaskóla – Háskólans á Hólum,
sleit skólanum í gær á sínu síðasta
og 13. starfsári sem rektor. Hann
tók við árið 1999 og síðan þá hefur
nemendafjöldi þrefaldast við skól-
ann.
Brautskráningin í gær var sú
stærsta í sögu skólans, en alls út-
skrifuðust 65 nemendur frá þremur
deildum Hólaskóla; 34 frá ferða-
máladeild, þrír af fiskeldis- og fiska-
líffræðideild og 28 af hestadeild.
Að jafnaði hefur athöfnin farið
fram í Hóladómkirkju en vegna fjöl-
mennis varð að flytja hana í Menn-
ingarhúsið Miðgarð í Varmahlíð,
eftir að reiðsýningu var lokið á Hól-
um.
Einnig fór fram sameiginleg út-
skrift nemenda í BS-námi í hesta-
fræði frá Hólaskóla og Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri, eins
og greint er frá hér til hliðar.
Skúla varð í ræðu sinni við skóla-
slitin tíðrætt um hlutverk og mik-
ilvægi háskólanna hér á landi. Hann
sagði mikinn skort vera á umræðu
um hvað háskólarnir í landinu væru
raunverulega að gera.
„Fjölbreytt hlutverk þeirra við
eflingu menningar og atvinnulífs er
því miður alltof lítið rætt og þá oft-
ast á frekar yfirborðslegan hátt, og
jafnvel með yfirborðssölumennsku
frekar en upplýstri umræðu. Það er
ábyrgð háskólanna sjálfra að bæta
úr þessu og ekki stendur á okkar
skóla,“ sagði Skúli m.a. en nefndi
einnig að háskólarnir væru að gera
margt jákvætt, t.d. háskólanetið og
aukið samstarf háskólanna.
Heiðursmerki í fyrsta sinn
Heiðursmerki fyrir vel unnin
störf í þágu Hólaskóla gegnum tíð-
ina voru afhent í fyrsta sinn í gær.
Þau hlutu þeir Trausti Pálsson, fv.
umsjónarmaður fasteigna skólans,
sem einmitt er 60 ára búfræðingur
frá Hólum í ár, og landbún-
aðarráðherrarnir fyrrverandi
Guðni Ágústsson og Jón Bjarnason.
Jón var skólastjóri Bændaskólans á
Hólum frá 1981 til 1999 og tók Skúli
við af honum.
Ávarp fyrir hönd útskriftarnema
flutti Ólafur Björgvin Valgeirsson,
57 ára að aldri, en hann var að ljúka
BA-námi í ferðamálafræði. Þetta
var í annað sinn sem Ólafur lauk
námi frá Hólaskóla en hann varð bú-
fræðingur þaðan árið 1973, eða fyr-
ir 39 árum.
Við athöfnina í Miðgarði var flutt
tónlist á milli atriði af þeim Jóhönnu
Marín Óskarsdóttur á píanó og
Kristínu Höllu Bergsdóttur á fiðlu.
Lauk dagskránni með kaffisamsæti
í boði Hólaskóla. bjb@mbl.is
Skúli Skúlason rektor sleit Hólaskóla á sínu síðasta starfsári
Stærsta brautskráningin
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Heiðraðir Þrír fengu heiðursmerki Hólaskóla í gær úr hendi Skúla Skúla-
sonar rektors, þeir Jón Bjarnason, Trausti Pálsson og Guðni Ágútsson.
Nýr rektor Hólaskóla – Háskól-
ans á Hólum er Erla Björk Örn-
ólfsdóttir og tekur hún form-
lega við um mánaðamótin. Skúli
Skúlason verður kvaddur með
athöfn næstkomandi fimmtu-
dag en hann fer ekki langt.
Hann mun starfa áfram á Hólum
sem prófessor við fiskeldis- og
fiskalíffræðideild skólans en
rúm 20 ár eru liðin síðan hann
kom fyrst til starfa við skólann.
Réð Jón Bjarnason hann beint
frá Kanada til Hólastaðar.
Skúli áfram
við Hólaskóla
NÝR REKTOR TEKUR VIÐ