Morgunblaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Það er vor í lofti þessa dagana í
Grundarfirði; sunnanþeyr og gróðr-
arskúrir svo horfa má á grasið vaxa
og trén laufgast. Sannarlega kær-
komið eftir kaldan og hretviðrasaman
vetur. Vorinu fylgja endalok skóla-
starfs, þannig lauk Tónlistarskólinn
sínu starfsári með glæsilegum tón-
leikum sl. sunnudag en þeir voru
haldnir í sal Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga sem var með skólaslit og útskrift
í gær. Grunnskólinn í Grundarfirði á
eftir nokkra daga af starfsárinu en
brátt tekur við frelsi sumarsins hjá
nemendum hans.
Miklir annatímar hafa verið á
höfninni nú í vor. Fyrir utan heima-
báta og togara hefur verið þar tals-
verð umferð af aðkomubátum og
löndunartölur sjaldan verið hærri.
Fjölmargir smábátar hófu strand-
veiðar 2. maí sl. Gekk þeim misvel að
ná dagskammtinum en skrúfað var
fyrir veiðarnar eftir sex daga þar sem
heildarkvóta svæðisins hafði þá verið
náð og ríflega það. Reiknað er með
því að fleiri bátar bætist í hópinn þeg-
ar ræst verður út í júnítímabili. Það
er því líflegt um að litast í smábáta-
höfninni um þessar mundir. Þar taldi
fréttaritari nú fyrir helgina 36 smá-
báta af ýmsum stærðum og gerðum. Í
vetur hefur verið unnið að lagfæringu
á leguplássi fyrir þá til þess að koma
til móts við sívaxandi smábátaútgerð
í Grundarfirði. Til þess að geta komið
fleiri bátum fyrir var samið við fyr-
irtækið Suðu um smíði á svokölluðum
fingrum sem festir eru þvert á aðra
flotbryggjuna en Loftorka sá síðan
um að útbúa flot undir fingurna.
Skyndibitamenning í Grundar-
firði tók góðan kipp á síðasta sumri
þegar opnaður var pylsuvagn hér í
bæ. Var þar um að ræða útibú frá
samskonar vagni sem rekinn hefur
verið í Stykkishólmi í allmörg ár. Við-
tökur voru góðar, reyndar svo góðar
að tveir Grundfirðingar tóku sig til og
keyptu vagninn og opnuðu nýlega
fyrir sumartraffíkina. Í góðviðrinu að
undanförnu hefur mátt sjá biðraðir
við pylsuvagninn, sem nú heitir Meist-
arinn, í kringum matmálstíma.
Útgerð og fiskvinnsla er það
sem lífið snýst að mestu um í Grund-
arfirði. Hjá fyrirtækinu GRUN hf. eru
menn ekki hressir með sífelldan nið-
urskurð í úthlutun til skipa þess á
makrílkvóta en togararnir tveir, Helgi
og Hringur, hafa stundað svokallaðar
tvíburaveiðar á makríl sl. ár. Þessar
viðbótarveiðar hafa gert fyrirtækinu
kleift að halda úti vinnslu mestan
hluta sumarsins en nú eru sem sagt
blikur á lofti hvað það varðar.
Matís hefur nú ákveðið að opna
starfsstöð í Grundarfirði. Ráðnir hafa
verið tveir starfsmenn og fyrst um
sinn verða þeir með aðstöðu í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. Þessi
ákvörðun Matís um uppbyggingu á
starfsemi við Breiðafjörð er ekki síst
tekin vegna frumkvæðis Snæfellinga.
Fjölmargir möguleikar eru til eflingar
á matvælaiðnaði á svæðinu og mörg
ónýtt tækifæri fyrir hendi.
Líflegt í smábátahöfninni
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Fingur Frá niðursetningu fingranna. Suða sá um smíðina en Loftorka sá síðan um að útbúa flot undir fingurna.
Flugdagur Flugmálafélags Íslands
verður haldinn á Reykjavíkur-
flugvelli, við Hótel Natura (áður
Loftleiðir), mánudaginn 28. maí
milli klukkan 12:00 og 16:00.
Þessar flugsýningar eru árlegur
viðburður og hafa þær ætíð verið
fjölsóttar.
Boðið verður upp á flugsýningu
Flugmálafélags Íslands þar sem
hægt verður að skoða fjölda flug-
véla af öllum stærðum og gerðum.
Fjölbreytt flugatriði verða svo
sem listflug, nákvæmnisflug á
þyrlu, flugmódel, svifflugur, svif-
vængir, í raun flest sem flogið get-
ur. Landhelgisgæslan verður einn-
ig með sýningarflug.
Í tilefni af 75 ára afmæli Ice-
landair er Catalina-flugbátur kom-
inntil landsins.
Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugdagurinn Fjölmenni sækir flugsýn-
inguna á Reykjavíkurflugvelli á hverju ári.
Fjölmörg atriði á
flugdegi annan
í hvítasunnu
Lífríki Vífilsstaðavatns verður í
forgrunni í gönguferð sem Háskóli
Íslands og Ferðafélag Íslands
standa að í sameiningu undir yf-
irskriftinni „Með fróðleik í far-
arnesti“ sunnudaginn 27. maí,
hvítasunnudag, kl. 14. Hjónin
Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor
við Kennaradeild Háskóla Íslands,
og Sigurður Snorrason, prófessor
við Líf- og umhverfisvísindadeild,
leiða gönguferðina.
Ferðin er sérstaklega sniðin að
börnum, ungmennum og fjöl-
skyldum þar sem skoðaður verður
gróður og lífríki vatnsins auk fugla.
Hægt verður að skipta hópnum í
tvennt svo að þeir sem vilja ganga
fái til þess tækifæri og yngri kyn-
slóðin finnur sér ýmis verkefni til
dundurs á meðan. Lagt verður af
stað frá bílastæðinu við Vífils-
staðavatn og er gert ráð fyrir að
ferðin taki um það bil tvær stundir.
Lífríki Vífilsstaða-
vatns skoðað
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag?
Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir röð hádegisfyr-
irlestra undir yfirskriftinni „Verkin tala“ dagana 29.
maí til 4. júní. Fyrirlestrarnir eru úr smiðju fræðimanna
í tækni- og verkfræðideild HR en í þeim lýsa þeir við-
fangsefnum rannsókna sinna. Föstudaginn 1. júní verða
haldnar opnar meistaravarnir nemenda í tækni- og
verkfræðideild frá kl. 9-17. Karl Ægir Karlsson, lektor
við tækni- og verkfræðideild HR, fjallar á þriðjudaginn
29. maí um rannsóknir sínar á aðferðum þar sem sebra-
fiskar eru notaðir við þróun miðtaugakerfislyfja. Fisk-
arnir eru notaðir til skimunar á sameindum sem hafa áhrif á mið-
taugakerfið. „Aðferðirnar eru mun ódýrari, hraðvirkari og mannúðlegri
en þær sem eru algengastar við lyfjarannsóknir í dag,“ segir í tilkynningu.
Aðgangur ókeypis.
„Verkin tala“ í Háskólanum í Reykjavík
Rugby Ísland mun keppa við áhafn-
armeðlimi franska herskipsins
Monge sem er hér á landi þessa
dagana.
Leikurinn fer fram á grasvell-
inum við Hvaleyrarvatn í Hafnar-
firði kl. 17:00 mánudaginn 28. maí.
Lið Rugby Íslands er samsett af
þeim tveimur rugbyliðum sem
starfandi eru hér á landi, Rugby fé-
lagi Reykjavíkur og Rugby félagi
Kópavogs. Öllum er heimilt að
fylgjast með og er frítt inn á leik-
inn.
Keppt í rugby
STUTT
Það er stórviðburður í sveitum
landsins þegar kúnum er hleypt út
á vorin. Um helgina gefst almenn-
ingi kostur á að fylgjast með þessu
á tveimur sveitabæjum.
Í dag, laugardag kl. 11.00, verður
kúnum á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarð-
arsveit hleypt úr fjósi eftir vetr-
arlanga innistöðu. Gestum og gang-
andi er boðið að fylgjast með þegar
kýrnar sletta úr klaufum og fagna
sumri. Ytri-Tjarnir eru austan
megin í Eyjafjarðarsveit, um 13 km
sunnan Akureyrar.
Halló Helluvað verður haldið kl.
13.00 en þá verður kúnum á Hellu-
vaði í Rangárþingi ytra hleypt út í
sumarið langþráða. Einnig verður
opið hús hjá Önnu Maríu og Ara,
bændum á Helluvaði, og er öllum
velkomið að koma og skoða búið.
Meðal annars verða léttar veitingar
í boði MS og bænda á Helluvaði
auk þess sem fjárhúsin verða opin
þar sem börnin fá að knúsa lömbin
eftir að hafa skemmt sér yfir að
horfa á kýrnar sletta úr klaufunum.
Anna María og Ari á Helluvaði
hafa opnað búið á þennan hátt í
nokkur undanfarin ár og stöðugt
koma fleiri til þess að sjá kýrnar
fara út í sumarið eftir veturlanga
inniveru.
Fyrir þá sem ekki rata að Hellu-
vaði er keyrt í gegnum Hellu til
norðurs og þá blasir Helluvað við.
Morgunblaðið/Eggert
Kýrnar Það er ætíð mikið fjör þegar kúnum er hleypt út í sumarið.
Kúnum hleypt út í sumarið
Almenningi boðið að fylgjast með