Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Komdu sæll, Helgi
Hjörvar, ég finn mig
knúna til að senda þér
nokkrar línur.
Ég hef beðið
átekta, eftir afgerandi
málflutning þinn í
fjölmiðlum um að leið-
rétta þurfi stöðu fólks
með verðtryggð lán.
Þú bentir réttilega á
að 110% leið Íbúða-
lánasjóðs (ÍLS) verð-
launi vanskil og að þeir sem fóru
lengst í skuldsetningu, fái mesta
stuðninginn. Tap Íbúðalánasjóðs í
kjölfar hrunsins snýst um tugi
milljarða svo vísað sé til orða
þinna (sjá visi, 16.4. 2011). Ljóst er
að stjórnvöld hafa beitt gífurlegri
mismunun vegna leiðréttinga,
krafa sett á bankana en ÍLS hlíft.
Þú hefur bent á að eftir dóm
Hæstaréttar í gengismálum sé
óhjákvæmilegt annað en að grípa
til almennra aðgerða, að minnsta
kosti gagnvart þeim lántakendum
sem tóku íslensk lán (2004-2008).
Fólk „kaupir húsnæði í fast-
eignabólu þar sem hið opinbera
hefur dælt lánsfjármagni inn á
markaðinn og sprengt verð upp úr
öllu valdi“. „Hvað er það sem
stendur ríkissjóði næst? Það eru
viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs,“
segir Helgi Hjörvar (visir, 27.2.
2012). Það er mikilvægt að fylgja
svo afgerandi orðum eftir með
markvissum tillögum og aðgerðum.
Ef ekki, flokkast slíkar yfirlýsingar
undir froðusnakk. Ég lít svo á að
þú hafir lagt heiður þinn að veði.
Hvers vegna hefur þú ekki beitt
þér í ríkisstjórn og á Alþingi, að
lækka verðbótaþátt á höfuðstól
lána hjá ÍLS og miða við janúar
2008? Hvers vegna hefur þú ekki
tekið upp og mælt fyrir því á Al-
þingi að afnema verðtryggingu til
vísitölu neysluverðs? Þar liggur
vandinn! Hvað líður skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis sem skipuð
var 2010 til að rann-
saka málefni Íbúða-
lánasjóðs?
Vilji er allt sem
þarf
Nokkra þætti vil ég
undirstrika. Þú hefur
réttilega bent á að
lántakendur ÍLS fari
verst út úr viðskiptum
við lánastofnanir.
Stjórnvöld verða að
aðgreina vanda ÍLS
vegna óráðsíu – frá
kröfu heimila um réttláta leiðrétt-
ingu lána. Sú krafa snýst ekki um
að sækja peninga í ríkissjóð, held-
ur að „bóluupphæðir“ verðbóta á
höfuðstól lána verði leiðréttar. Í
janúar sl. kom fram á Alþingi að
ógreiddar áfallnar verðbætur á
lánasafn Íbúðalánasjóðs námu 212
milljörðum króna, þ.e. hækkun frá
árslokum 2007 til loka 2011. Þessir
212 milljarðar eru upphæðir sem
ÍLS hefur dreift og skuldfært hjá
lánþegum. Lánið mitt, hefur hækk-
að um sjö milljónir króna og tifar
eins og tímasprengja.
Þú hefur bent á að verðtrygg-
ingarkerfið á Íslandi komi í veg
fyrir sjálfvirkar sveifluleiðrétt-
ingar. „Það gefur tilefni til að
skoða hvort við getum leiðrétt
handvirkt hluta af sveiflunum.
Slíkt fæli ekki í sér stórkostlega
eignatilfærslu heldur væri bak-
færsla á hluta af heimasmíðuðum
vanda,“ segir Helgi Hjörvar (sjá
visi, 29.2. 2012). Ég er sammála,
leiðrétting á höfuðstól verð-
tryggðra lána er ekki flókin. Við
erum að tala um bakfærslu á
ógreiddum „bóluverðbótum“ sem
lækkaði höfuðstól lána og leiðrétti
heimasmíðaðan vanda. Fram-
kvæmdin mun skila lánþegum of-
teknum/reiknuðum upphæðum. Ég
spyr: Hvers vegna hefur þú ekki
barist fyrir þessu réttlætismáli eft-
ir yfirlýsingar þínar?
Ég hjó eftir því …
Um leið og þú kallaðir á leiðrétt-
ingu og lækkun verðtryggðra lána
– sendi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(AGS) „hagsmunagæslulið“ sitt á
vettvang – sem kynnti boðskap
sjóðsins á blaðamannafundi. AGS
er andvígur almennri skuldanið-
urfærslu: „Mikilvægt sé að ekki
verði grafið undan þeim ávinningi
sem Ísland hefur náð í að rétta af
fjárhag ríkisins.“ (Mbl. 2.3. 2012).
Það er ljóst að AGS vill sýna tang-
arhald sitt og hampa árangri á Ís-
landi, og Jóhönnu og Steingrími
finnst gott að baða sig í þeim
ljóma. Við vitum hinsvegar að
verðtrygging til vísitölu neyslu-
verðs er verkfæri, sem malar gull
og bætir stöðu stofnana og rík-
issjóðs. Ljóst er að sá ávinningur
ríkisstjórnarinnar byggist á þeirri
forsendu að heimili eru blóð-
mjólkuð og eign þeirra gerð upp-
tæk í krafti verðbóta sem smurt er
á höfuðstól lána og afborgana.
Stjórnvöld kynda undir þenslunni.
Þetta veit AGS.
Hvað leggur þú til?
Fjöldi viðskiptavina Íbúðalána-
sjóðs hefur enga leiðréttingu feng-
ið, skaðinn er ómældur. Aðgerðir
stjórnvalda eru handahófskenndar
og nú beitir ríkisstjórnin sér af
krafti svo fólk með lán og lánsveð
frá ættingjum fái leiðréttingu –
þar á að beita ÍLS.
Undirrituð er viðskiptavinur ÍLS
og minn helsti vandi er að ég tók
ekki 100% lán til húsnæðiskaupa,
þá væri ég í góðum málum! Í stað
þess hefur meginhluti af eign
minni (35%) gufað upp, á rúmum
fjórum árum og millifærð í bókhald
ÍLS í nafni „bóluverðbóta“ á höf-
uðstól lánsins. Hvað gerir fólk sem
ætíð hefur staðið í skilum, er
hvorki með lausaskuldir né neyslu-
lán, en verðlaunað með eignaupp-
töku (afrakstur lífsstarfs), sem
stjórnvöld beita og viðhalda?
Finnst þér þetta ásættanlegt,
Helgi Hjörvar? Þú gegnir ábyrgð-
arstöðu á Alþingi. Er einhver hvati
til að borga 1,5 milljónir á ári af
þessu láni? Hvað getur þú ráðlagt
mér og öðrum í sömu stöðu? Plan
A – hjá Jóhönnu og Steingrími er
eignaupptaka. Ríkisstjórnin hlýtur
að hafa „Plan B“ til að bregðast
við afleiðingunum. Ég vænti grein-
argóðra svara frá þér.
Eitt hef ég lært, ráðdeildarsemi
borgar sig ekki!
Opið bréf til formanns
viðskipta- og efna-
hagsnefndar Alþingis
Eftir Hörpu Njáls » Það er mikilvægt að
fylgja svo afgerandi
orðum eftir með mark-
vissum tillögum og að-
gerðum. Ef ekki, flokk-
ast slíkar yfirlýsingar
undir froðusnakk.
Harpa Njáls
Höfundur er félagsfræðingur.
Undanfarin misseri
hafa bændur í aukn-
um mæli kvartað
undan ágangi villtra
fugla á ræktað land.
Umfang þessa er
ekki þekkt, en líkur
hafa verið leiddar að
því að orsakanna sé
að leita í tveimur
þáttum. Annars veg-
ar hafi stofnar tiltek-
inna fugla stækkað, hins vegar
hafi búskaparhættir breyst, t.a.m.
með aukinni áherslu á kornrækt,
sem laði fuglana að ökrum.
Þessi staða var rædd í aðsendri
grein formanns Bændasamtaka
Íslands í Morgunblaðinu í gær.
Þar ræddi hann kynningarfund
sem Bændasamtökin héldu fyrr í
vikunni, þar sem farið var yfir
norskt verkefni sem ætlað er að
taka á sambærilegu vandamáli.
Jafnframt kvartaði hann undan
því að umhverfisyfirvöld hefðu í
áraraðir dregið lappirnar í mál-
inu.
Á þessum sama fundi voru
staddir fulltrúar frá umhverf-
isráðuneytinu, Náttúrufræðistofn-
un Íslands og Umhverfisstofnun
en þessar stofnanir umhverfisyf-
irvalda koma að þessum málum
hér á landi. Þar upplýsti fulltrúi
umhverfisráðuneytisins að Um-
hverfisstofnun hefur átt í við-
ræðum við Bændasamtökin um
málið ásamt Náttúrufræðistofnun
Íslands. Gerði hann grein fyrir
því að í kjölfar fundarins myndi
ráðuneytið kalla þessar stofnanir
til fundar til þess að fara yfir
málið, framhald þess
og næstu skref. Lögð
verður áhersla á að fá
betri mynd af stöð-
unni, helstu álags-
stöðum, mögulegum
varnaraðgerðum og
hvernig best væri
hægt að vinna málið
áfram.
Vera má að formað-
ur Bændasamtakanna
hafi vikið fullsnemma
af kynningarfundi
samtakanna og því misst af þessu
innleggi umhverfisráðuneytisins á
fundinum. Hann er því hér með
upplýstur um, að stjórnvöld um-
hverfismála hafa undanfarið átt
samtal við fulltrúa Bændasamtak-
anna og til stendur að halda því
samtali áfram og styrkja samvinn-
una. Áhyggjur bænda af ágangi á
ræktarlönd þarf að skoða af fullri
alvöru, en gæta þess að aðgerðir
sem gripið er til byggist á réttum
upplýsingum og virðingu fyrir
náttúrunni. Umhverfisráðuneytið
væntir góðs samstarfs og upp-
byggilegra samskipta við Bænda-
samtök Íslands í þessu efni sem
öðrum.
Hvað
segja bændur?
Eftir Svandísi
Svavarsdóttur
Svandís Svavarsdóttir
» Stjórnvöld umhverf-
ismála hafa undan-
farið átt samtal við full-
trúa Bændasamtakanna
og til stendur að halda
því samtali áfram og
styrkja samvinnuna.
Höfundur er umhverfisráðherra.
ARNARSTAPI SUMARHÚS
- EINSTÖK STAÐSETNING
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Einstakt sumarhús á Arnarstapa á frábærrum útsýnisstað. Nónhóll er vinalegt
sumarhús, byggt 1978. Húsið stendur á einstökum stað: fyrir neðan styttuna af
Bárði Snæfellsás. Ekkert sumarhús er nálægt og útsýnið er stórfenglegt. Húsið er
63 fm. Fallegt sumarhús sem vert er að skoða. Verð 11,9 millj.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is