Morgunblaðið - 26.05.2012, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099
Það var óneitanlega
sérstakt að lesa um-
mæli Ólínu Þorvarð-
ardóttur um daginn,
þar sem hún sagði
hugarfóstur sitt,
strandveiðar, lagðar í
einelti. Viðbrögð
hennar við gagnrýni
minna á tuddann á
skólalóðinni sem biðst
vægðar þegar þeir,
sem hann hefur böðlast á, rísa
upp að endingu og taka fast á
móti.
Sem atvinnusjómaður hefur
mér oft fundist að líkja mætti
árásum og dylgjum fólks á borð
við Ólínu við einelti í garð þeirra
sem starfa í sjávarútvegi. Einelti
sem byggist m.a. á því að færa
lifibrauð þeirra, sem starfa við
fiskveiðar og fiskvinnslu allan árs-
ins hring, með valdboði til ann-
arra.
Ekkert auðlindagjald
Með strandveiðum hafa afla-
heimildir verið fluttar frá atvinnu-
útgerðum yfir til frístunda- og
hobbíkarla, sem gjarnan taka sér
sumarleyfi frá störfum sínum í
öðrum atvinnugreinum á meðan.
Samherji brást við þessum til-
færslum með því að leggja þrem-
ur skipa sinna tímabundið vegna
samdráttar aflaheimilda við upp-
haf strandveiðitímabilsins.
Strandveiðibátarnir reru á meðan
hver í kapp við annan í nokkra
daga og hrúguðu á land eins mikl-
um fiski og þeim var lífsins mögu-
legt áður en einhver annar veiddi
hann.
Afleiðingin af þessu stjórnleysi
er einföld; lakara hráefni, of-
framboð og lægra verð, einmitt á
þeim tíma ársins sem flestar
vinnslur vantar fisk til vinnslu
vegna kvótaskorts og
verð ætti af þeim
sökum að vera í há-
marki. Strand-
veiðibátarnir greiða
einhverra hluta
vegna ekkert auð-
lindagjald en það er
eflaust með þessum
hætti sem þjóðin ætl-
ar að sækja umfram-
arðinn sinn í sjávar-
útvegi.
En eineltið gegn
starfsfólki í íslensk-
um sjávarútvegi er ekki bundið
við sjómenn. Undanfarið hefur
mér stundum orðið hugsað til
fiskvinnslufólks Samherja á Dal-
vík. Það er í hópi þeirra sem
einnig gætu með réttu sagt að
sættu einelti vegna starfs síns.
Inngrip stjórnvalda í rekstur
Samherja fyrir nokkrum vikum
varð til þess að hráefnisöflun fisk-
vinnslunnar riðlaðist. Og vel að
merkja, ekki hefur enn ekki verið
upplýst í hverju meint brot fyr-
irtækisins fólust.
Blaut tuska í andlit
Fólk eins og Ólína, sem árum
saman hefur alið á andúð og tor-
tryggni í garð þeirra sem starfa í
sjávarútvegi, hlýtur að mega bú-
ast við að fá blauta tuskuna aftur
í andlitið án þess grípa til þess að
líkja sjálfum sér við fórnarlamb
eineltis.
Skólatuddinn
kvartar
undan einelti
Eftir Páll
Steingrímsson
Páll Steingrímsson
» Afleiðingin af þessu
stjórnleysi er ein-
föld; lakara hráefni,
offramboð og lægra
verð …
Höfundur er sjómaður.
Í vandaðri greiningu
AtVest á atvinnulífi
Vestfjarða kemur
margt áhugavert í ljós.
Sjávarútvegur er 53%
af hagkerfinu og þá er
ekki tekið tillit til af-
leiddra greina sjávar-
útvegs, s.s. þjón-
ustuaðila.
Sjávarútvegur er því
undirstaða atvinnulífs
en næst þar á eftir er opinber þjón-
usta. Sá böggull fylgir hinsvegar
skammrifi að vestfiskur sjávar-
útvegur stendur illa, er mjög skuld-
ugur og hefur lélegan rekstar-
afgang (EBITA) miðað við meðaltal
á landinu, en það er mæling á ár-
angri óháð skuldum. Til að rekst-
urinn gangi upp þyrfti
að minnka skuldir
sjávarútvegsfyrirtækja
um tugi milljarða
ásamt því að finna
leiðir til að bæta rekst-
urinn að öðru leyti.
Niðurstaðan er sú
að greinin stendur
ekki undir sér að öllu
óbreyttu, þ.e.a.s. að
hvorugt frumvarp
sjávarútvegsráðherra
gangi í gegn. Því til
viðbótar eru blikur á
lofti á öllum okkar mikilvægustu
mörkuðum vegna efnahagsástands í
Evrópu, en þegar má greina að
dýrustu afurðir hafa gefið eftir í
verði.
Verði frumvörpin tvö að lögum
lítið breytt er ljóst að menn þurfa
ekki að kemba hærurnar. Það má
orða það þannig að óvissu í vest-
firskum sjávarútvegi væri þar al-
gerlega eytt og staða greinarinnar
myndi þá liggja fyrir. Sú niðurstaða
þyrfti ekki endilega að vera þjóð-
hagslega óhagkvæm en sanngjarnt
gagnvart þeim sem hér vilja búa að
þeir viti hvar þeir standa.
Tveir af þingmönnum fjórðungs-
ins hafa barist með hnúum og hnef-
um fyrir þeirri leið og eru þá til-
búnir að taka þá áhættu sem því
fylgir. Undirritaður hefur reyndar
á tilfinningunni að ákvörðun þeirra
byggist meira á heift út í ein-
staklinga og að einhverju leyti hug-
myndafræði um að greinin skuli
rekin með ráðstjórn en ekki mark-
aðsbúskap. Eru tilbúnir að gera til-
raun með að nota skipulag þar sem
ákvarðanir um hver veiðir hvar,
hvernig og hvenær verði teknar
pólitískt í ráðuneyti í Reykjavík.
Margur hefði talið að þetta hafi
verið fullreynt á síðustu öld með
ógnvekjandi afleiðingum.
Það eina sem getur bjargað Vest-
fjörðum er öflugur sjávarútvegur
sem rekinn er á markaðslegum for-
sendum. Til þess þarf hann að ná
vopnum sínum og vera samkeppn-
isfær við það besta sem gerist á Ís-
landi, og þar með í heiminum. Við
þurfum að komast upp úr heiftinni
og leðjuslagnum í leit okkar að slík-
um lausnum. Hvað þarf til að rétta
hag vestfirsks sjávarútvegs þannig
að hann geti staðið undir góðum
lífskjörum í fjórðungunum? Hvern-
ig getur greinin staðið undir góðum
launum og laðað til sín vel mennt-
aða einstaklinga? Takist það ekki er
tómt mál að tala um öflugt sam-
félag á Vestfjörðum.
Sjávarútvegur –
undirstaða Vestfjarða
Eftir Gunnar
Þórðarson » Það eina sem getur
bjargað Vestfjörð-
um er öflugur sjávar-
útvegur sem rekinn er á
markaðslegum for-
sendum.
Gunnar Þórðarson
Höfundur er rekstrarfræðingur.
Dagur barnsins er
haldinn hátíðlegur
síðasta sunnudag í
maí ár hvert. Að
þessu sinni er yf-
irskrift dagsins Gleði
og samvera. Barna-
heill – Save the Child-
ren hafa barnasátt-
mála Sameinuðu
þjóðanna að leið-
arljósi og vinna að
réttindum og velferð barna í 120
löndum.
Verkefni Barnaheilla – Save the
Children á Íslandi eru bæði inn-
lend og erlend. Eitt höfuðverkefna
samtakanna er vernd barna gegn
ofbeldi. Samkvæmt 19. gr. barna-
sáttmála SÞ eiga börn rétt á vernd
gegn öllu ofbeldi; líkamlegu, kyn-
ferðislegu og andlegu sem og gegn
vanrækslu. Samkvæmt 34. grein
barnasáttmálans eiga börn rétt á
vernd gegn kynferðislegu ofbeldi
og gegn því að vera neydd til
vændis eða þátttöku í kynlífsiðn-
aði. Börn eiga enn fremur rétt á að
vera vernduð fyrir efni sem getur
skaðað velferð þeirra.
Ábendingahnappur – Safer Int-
ernet er eitt af verkefnum Barna-
heilla – Save the Children á Ís-
landi. Verkefnið er styrkt af Safer
Internet samstarfsáætlun Evrópu-
sambandsins.Markmið þess er að
vekja athygli á þætti Netsins í kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum og
er kjarni þess ábendingalína. Á vef
samtakanna er hnappur þar sem
hægt er að senda inn nafnlausar
ábendingar um slíkt efni á Netinu.
Við, sem berum ábyrgð á börn-
unum, verðum að sameinast um að
vernda þau bæði fyrir hættulegu
efni á Netinu og einnig fyrir
hættulegu fólki sem vill misbjóða
og misnota börn. Hægt er að fara
ýmsar leiðir til að vernda börn
gegn óæskilegu efni á Netinu.
Netvari er öflugt tæki til að útiloka
slíkt efni og koma þannig í veg fyr-
ir að börn og unglingar villist
þangað sem þau eiga ekki erindi.
Liður í forvörnum og fyrirbyggj-
andi aðgerðum er að foreldrar upp-
lýsi börn sín og fræði þau um
hvaða hættur kunni að leynast á
Netinu til þess að þau geti varast
þær.
Upplýst barn hefur aukna mögu-
leika á að:
Vita, skynja og greina hvers
lags atferli/framkoma telst vera
innan eðlilegra marka og hvað er
það ekki.
Þekkja birtingarmyndir þess
sem er óviðeigandi og
skaðlegt.
Vita hvað á að
gera ef það finnur sig í
vafasömum eða ógn-
andi aðstæðum þar
sem hætta kann að
steðja að.
Foreldrar og for-
ráðamenn eru þeir
einu sem eiga þess
kost að fylgjast með
netnotkun barna sinna
frá degi til dags. Ekk-
ert barn ætti að vera
eftirlitslaust á Netinu eða hafa að
því óheftan aðgang.
Netið er eins og stórborg. Það
sem einkennir stórborg er fjöl-
breytileiki; fegurð, ljótleiki, gleði,
sorg og allt þar á milli. Um þessa
stórborg, eins og aðra, þurfa börn
leiðsögn. Við megum ekkert frekar
sleppa af þeim hendinni á Netinu
en í stórborg. Með fræðslu og eft-
irliti geta börnin glöð nýtt Netið til
góðs og umfram allt umgengist það
án þess að skaðast.
Gleði fyrir öll börn
– líka á Netinu
Eftir Kolbrúnu
Baldursdóttur
Kolbrún Baldursdóttir
» Við, sem berum
ábyrgð á börnunum,
verðum að sameinast
um að vernda þau bæði
fyrir hættulegu efni á
Netinu og einnig fyrir
hættulegu fólki sem vill
misbjóða og misnota
börn.
Höfundur er formaður Barnaheilla –
Save the Children á Íslandi
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is