Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Í Kastljósi hinn 15. maí síðastliðinn
kom fram að það væru miklar hafn-
arframkvæmdir í gangi við Langanes.
Því hefur ekkert heyrst fyrr um þetta
mál? Hvar eru frétta- og blaðamenn
þessa lands, af því að hér vakna nú
spurningar. Eru framkvæmdirnar á
vegum íslenska ríkisins, sveitarfélaga
eða Kínverja. Hver fjármagnar þess-
ar stórframkvæmdir? Á einn maður,
Halldór þessi, sem sagðist „vera með“
þessar framkvæmdir svona mikið fé?
Í þættinum sagðist þessi sami Hall-
dór alls ekki hafa rætt þessar fram-
kvæmdir við Kínverjann, vin sinn, en
er samt að stofna íslenskt félag fyrir
hann. Annar viðmælandi sagðist ekk-
ert óttast því að hann tryði nefnilega
á íslensk lög og reglur, en samt er
verið að brjóta lögin. Hvaða bull er
þetta eiginlega? Myndin sem ég hef
áður dregið upp er nú öll að skýrast.
Kínverja vantar Grímsstaðaland und-
ir flugvöll, en þá eru komnar góðar
aðstæður fyrir þá vegna Norðurhaf-
anna, og til að þjónusta öll skip sín.
En um leið byggja þeir hótel til þess
að friða heimamenn. Kunnugleg að-
ferð sem þeir nota, þar sem þeir vilja
koma sér þægilega fyrir og ná
öruggri fótfestu. Daglega heyrast
fréttir af kúgun og yfirgangi Kínverja
alls
staðar í heiminum, en samt virðist
þið vilja sofa og treysta. Vilja stjórn-
völd opna loftbrú á Grímsstöðum?
Hver á að sjá um landamæra- og toll-
vörslu og hvað um herflugvélar? Þið
munið ana út í eitthvað sem þið ráðið
alls ekki við.
Svo er það nú annað, hver er að
stjórna þessu landi? Er bara hægt að
gera hvað sem er og hvar sem er úti
um landið? Mikið er ónotalegt að búa
við svona óvissu og máttlausa, veika
og ráðalausa stjórn landsins.
Ríkisstjórn Íslands, nær líf ykkar
og ákvarðanatökurnar ekkert út fyrir
101 Reykjavík,
Háskólann og
Brussel, ég bara
spyr?
Það er mikið í
húfi og ekki aftur
tekið ef þið látið
Kínverjum eftir
land, og haldið og
trúið að eitthvað
verði vistvænt í
kringum þá, því
það er þvílík firra. En ég spyr mig
líka, hver á að græða á þessu öllu,
hafið þið um það einhverja hugmynd?
Og er það framtíðarstjórnun að
brjóta lögin eftir geðþótta? Ég hef
nefnilega ekki gleymt brosi og svari
Katrínar Júlíusdóttur þegar hún
sagði að það yrði áreiðanlega fundin
leið til þess að koma Kínverjanum inn
í landið, þegar Ögmundur Jónasson
neitaði honum um kaup á ótrúlegu
landssvæði á þessum stað.
Það er bara ekki hægt að bera
nokkra virðingu fyrir ykkur né
treysta á nokkurn hátt, því hér eruð
þið að leika ykkur með fjöregg þjóð-
arinnar – það er landið sjálft.
STEFANÍA JÓNASDÓTTIR,
Sauðárkróki.
Ríkisstjórn Íslands
Frá Stefaníu Jónasdóttur
Stefanía
Jónasdóttir
við ESB á sama tíma og sendinefnd
frá Íslandi hangir úti í Brussel á
ráðherralaunum, grátbiðjandi óvin-
inn um að taka okkur í sinn stóra
faðm. Utanríkisráðherra segir
þetta vera óskyld mál. Hvernig
hann fær þá niðurstöðu er mér
óskiljanlegt.
Nýjasta útspil Samfylkingar í
ESB-baráttunni er að tefla fram
ungri konu, Þóru Arnórsdóttur, í
komandi forsetakosningum. Sam-
fylking hafnar ákaft að eiga nokkuð
í henni en opinber ánægja þing-
manna Samfylkingar þar sem lýst
er yfir stuðningi við Þóru segir mér
allt sem segja þarf auk fortíðar
Þóru sem leiðbeinanda í stjórn-
málaskóla krata. Þóra er fjölmiðla-
kona og afskaplega frambærileg
kona og hafa fjölmiðlar sýnt henni
gríðarlegan áhuga á kostnað ann-
arra frambjóðenda. RÚV hefur þar
á meðal misst stóran hluta trúverð-
ugleika síns með því að láta eig-
inmann hennar (sem starfaði ein-
mitt með henni á RÚV) fjalla um
ágæti Þóru í aðdraganda framboðs
hennar. Jafnframt bendir sitthvað
til þess að skoðanakönnunum hafi
verið hagrætt til að sýna hlut Þóru
sem stærstan.
Ég tel ljóst að Þóra er frambjóð-
andi Samfylkingarinnar og hennar
hlutverk á Bessastöðum á að vera
að vera þæg og setja sig ekki upp á
móti málum sem Samfylkingin vill
keyra í gegnum þingið. Það kæmi
mér ekki hið minnsta á óvart að
Samfylkingin reyndi að keyra aðild
að ESB í gegnum þingið sem lög
án þess að það verði lagt fyrir þjóð-
ina. Þeim er trúandi til alls sbr.
fyrstu Icesave-lög Svavars Gests
sem þau reyndu að keyra í gegn
með offorsi, lög sem hefðu kostað
okkur hundruð milljarða ef Ólafur
hefði ekki gripið inn í.
Ég hvet alla Íslendinga til að
standa þétt saman og kjósa Ólaf
Ragnar Grímsson í næstu forseta-
kosningum til að tryggja lýðræði í
landinu.
KARL JÓNATANSSON,
fyrrverandi tónlistarkennari.
Sælir megið þér vera, hr. Hermann
Sausen, og sælir megið þér og fara,
hr. Sausen. Ég vek athygli yðar á því,
hr. Sausen, að vér Íslendingar erum
svo lánsamir að vera ekki aðilar að
nauðungarsambandi því er þér og frú
Merkel skjólstæð-
ingur yðar hafið
hug til að láta
kosta yðar elliár.
Þannig að vér Ís-
lendingar komum
ekki til með að
greiða í ellisjóð
yðar, þann er þér
nefnið Evrópu-
samband.
Vér Íslend-
ingar erum nú sjálfstæðastæðari en
aðrar þjóðir Evrópu að und-
anskildum Rússum, Norðmönnum og
Færeyingum og leiðréttið mig ef
ósatt er. Vér getum snúið oss í austur
og vestur og líka suður og norðrið til-
heyrir oss og vér getum og átt við-
skipti í Evrópu, þangað til þér og yð-
ar líkir loka þeirri leið. En það plagar
oss ekki, hr. Sausen, því vér Íslend-
ingar eigum þrjú svona stórmenni af
nákvæmlega sömu gerðinni og yðar
þriðja ríki var reist á og getið þér
fengið það sett við vægu verði, ef þér
greiðið sektir þeirra.
Vér Íslendingar erum því miður
aðilar að kjánaskap þeim sem nefnd-
ur hefur verið Shengen, og er fram-
leiddur af gjöreyðingarsambandi yð-
ar og svo erum vér einnig aðilar að
svonefndu EES-samstarfi því sem
þér látið yður sæma að nota oss í
gegn þá yður hentar að setja ofan í
við þá sem þér teljið yður lægri.
Þýskir embættismenn hér uppi á Ís-
landi fyrir og um stríð, eru ennþá
munaðir, og satt best að segja, þá er
nokkuð ljóst að framferðið þá og nú
er ekki alveg ólíkt.
En háttur þýskra fyrirmenna á
þeim tíma var að ráðast að þeim sem
þorðu að tala og segja þeim að halda
kjafti á yðar mjög svo virðulega máli.
Hroki og yfirgangur líst okkur það
vera, sem göngum þúfnagang á mal-
bikinu. Einkum er það þó er þér, hr.
Sausen, veitist að sæmilegum rit-
stjóra sem segir satt, og spyrjum vér
því, hvert liggur yðar pólitíska
stefna? Ég hef þá trú að Evrópa verði
aftur sá skemmtilegi kokkteill sam-
félaga sem var, en til þess að það ger-
ist þá verður að skipta fjórða ríki frú
Merkel upp aftur, því að sameinað
sýnist það alltaf verða til yfirgangs og
vandræða, framleiðandi hrokafulla,
drambsama embættismenn.
Til dæmis núna, hr. Hermann Sau-
sen, þá er Þýskaland að mjólka jað-
arríki Evrópu og reyndar Frakkland
líka, enda er frú Merkel vel í holdum
en Sarkosy sá sem tapaði var og er
horaður. Mikið hefði Hitler verið
ánægður með yður, hr. Herman Sau-
sen, og hana frú Merkel og franska
fíflið Sarkosy.
Í vopnabúnaðinn hefði ekki þurfti
neitt púður, engar námur, enga olíu,
ekkert stál, bara stela mjólkinni
(gengishagnaðnum) og þá þroskuðust
börnin ekki þarna á jaðrinum og þá
og þá og þá þarf yður ekki að dreyma,
því raunveruleikin blasir við.
Ég legg til að þér finnið yður flutn-
ing heim í fjórðaríki frú Merkel. Því
að vér Íslendingar fengum nóg af
þriðja ríki Hiters og sendiherrum
þess og vantar ekki fjórða ríkis sendi-
herra.
Til yðar, hr. Hermann Sausen, með
svo jafnri virðingu sem yður hentar.
HRÓLFUR HRAUNDAL
vélvirki.
Opið bréf til hr. Hermann
Sausen, sendiherra
Þýskalands í Reykjavík
Frá Hrólfi Þorsteinssyni Hraundal
Hrólfur Hraundal
Chlorella
Minnkar líkamslykt, tá og svitafýlu
Spirulina
Orkugefandi og örvar efnaskipti
Andoxunarríkt og örvar
efnaskipti
Wheat grass
Hreinsandi próteingjafi
Vegna einstakra gæða
nýtur Sunny Green
virðingar og trausts
um allan heim
Græni pakkinn
eykur orku og
er hreinsandi
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Við tökum á
móti netum
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
• netaafskurði
• hlutum úr flottrolli
• nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 559 2200
www.efnamottakan.is
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is