Morgunblaðið - 26.05.2012, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
✝ Sigmund Jó-hannsson
fæddist í Ibestad í
Gratangen, Nor-
egi, 22. apríl 1931.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Vestmannaeyja
19. maí 2012.
Foreldrar Sig-
munds voru Jó-
hann Daníel Bald-
vinsson, f. 22.7.
1903, d. 9.4. 1990 og Cora So-
fie Baldvinsen, f. 20.9. 1904, d.
31.8. 1986.
Sigmund fluttist til Íslands
þegar hann var 3 ára. Hann
var búsettur á Skagaströnd
þegar hann kvæntist Helgu
Ólafsdóttur f. 12.8. 1930. Þau
giftu sig á Höskuldsstöðum í
Austur Húnavatnssýslu árið
1952. Þau hjónin fluttust til
Vestmannaeyja árið 1955. Sig-
mund og Helga eignuðust tvo
syni, þá Ólaf Ragnar, f. 25.5.
1952 og Hlyn Bjarklund, f.
20.2. 1970. Áður átti Sigmund
einn son, Björn Braga, f. 13.6.
1951, móðir hans er Að-
alheiður Hrefna Björnsdóttir,
f. 1.11. 1931.
Sigmund er einna þekkt-
astur fyrir skopmyndir sínar í
Morgunblaðinu. Fyrsta mynd
hans í Morgunblaðinu birtist
25. febrúar 1964
og tengdist Surts-
ey og fyrstu land-
göngu þar. Í
Heimaeyjargosinu
árið 1973 varð
Sigmund fastráð-
inn við Morg-
unblaðið og hefur
skopmyndateiknun
verið aðalstarf
hans frá þeim
tíma og þar til
honum var sagt upp störfum
árið 2008. Uppfinningar Sig-
munds eru vel þekktar, má
þar nefna fiskvinnsluvélar,
sleppibúnað gúmmíbjörg-
unarbáta og margt fleira. Þau
hjónin hafa haft búsetu í Vest-
mannaeyjum til dagsins í dag
og nú fyrir stuttu héldu þau
upp á 60 ára hjúskaparafmæli.
Sigmund var kosinn Eyjamað-
ur ársins 2011 af vikublaðinu
Eyjafréttum og hefur hann
hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir störf sín í þágu sjó-
manna. Honum var veittur
riddarakross hinnar íslensku
Fálkaorðu 15. apríl 1982 af
þáverandi forseta, Vigdísi
Finnbogadóttur.
Útför Sigmunds fer fram
frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum í dag, 26. maí
2012, og hefst athöfnin kl. 14.
Það er gæfa hvers samfélags
að þar búi einstaklingar sem
þora að gæða það frumlegum
hugmyndum og hafa kjark til
að rýna til gagns ríkjandi skoð-
anir, sem aftur leiðir til nýrrar
hugsunar og fjölbreyttari
möguleika. Sigmund Jóhanns-
son var einmitt þannig einstak-
lingur og Eyjafólk má kallast
stálheppið að hafa haft hann í
sínu liði, því Sigmúnd hefði
blómstrað hvar sem var í heim-
inum með sína fjölbreyttu
hæfileika. En hann var gall-
harður Vestmanneyingur, sem
alla tíð hugsaði fyrst og fremst
um að bæta umhverfi sitt og líf
samferðamanna sinna hér í
Eyjum og til þess valdi hann
frumlegar leiðir og var aldrei
sporgöngumaður neins. Skarp-
ur þjóðfélagsgagnrýnir sem
með sínum einstæða og enda-
lausa húmor vakti til umhugs-
unar í gegnum skopteikningar
sínar og þess fékk öll íslenska
þjóðin að njóta í áratugi. Og
það var aðeins ein hliðin á
þessum skemmtilega mannvini
og snillingi sem hann Sigmund
var. Við hlið skopmyndateikn-
arans og listmálarans var upp-
finningamaðurinn Sigmund
sem alla tíð stóð vaktina með
íbúum Vestmannaeyja, sjó-
mönnunum, iðnaðarmönnum og
fjölskyldum þeirra með stór-
brotnum og frumlegum upp-
finningum sínum, hvort heldur
þær lutu að bættri framleiðslu
sjávarafla eða öryggismálum
um borð í fiskiskipum. Einnig
liggja eftir hann frumlegar og
framsæknar hugmyndir s.s. að
uppgreftri á gosminjum, minn-
isvarða um björgunina í
Heimaeyjargosinu, öryggis- og
björgunarbúnað fyrir jarðgöng
og nú síðast búnaði til að halda
sandi fyrir utan hafnarmynni
Landeyjahafnar.
Nú, þegar ég kveð vin minn
Sigmund Jóhannsson er margs
að minnast og mikið að þakka.
Maður fór alltaf glaðari og
fróðari úr heimsóknunum á
Brekastíginn. Á goslokahátíð-
inni á sl. ári hélt Sigmund sýn-
ingu á hápunktum ferils síns.
Ég minnist sýningarinnar og
undirbúningsins meðal þess
skemmtilegasta sem ég hef
gert í mínu starfi. Allt varð að
vera fullkomið, engar redding-
ar eða málmiðlanir á síðustu
stundu, enda var sýningin
glæsileg og troðfullt út úr dyr-
um alla sýningardagana. Sýn-
ingarskrána gerði Sigmund
eins og honum einum var lagið.
Hann taldi ekki upp afrekin,
heldur rifjaði upp fallið á inn-
tökuprófinu í Myndlistarskóla
Íslands sem og að Mogginn
hefði rekið hann. Morgunblað-
ið sýndi Sigmund síðan þann
virðingarvott að kynna sýn-
inguna með Sigmundteikning-
um á hans gamla stað í
blaðinu, sem ég veit að gladdi
hann mjög. Já, það má draga
margan góðan lærdóm af lífs-
hlaupi Sigmund Jóhannssonar,
það eru mikil forréttindi að
hafa fengið að þekkja hann.
Helgu og fjölskyldu sendi ég
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Kristín Jóhannsdóttir.
Teiknari af Guðs náð, fram-
sýnni en flestir, uppfinninga-
maður, einstakur húmoristi,
tryggur og traustur, hlýr og
hjálpsamur, auga Íslands í
skopteikningum í Morgun-
blaðinu nær mannsævi. Hann
var lyf Íslendinga gegn leið-
indum og neikvæðni og myndir
hans voru sólargeislar gegn
nuddi og nagi hversdagsleik-
ans. Sigmund Johannsson
teiknari var engum líkur.
Hann var sérkapítuli í lífi Ís-
lendinga mestan hluta síðustu
aldar með teikningum sínum í
Morgunblaðinu, teikningum á
heimsmælikvarða skopteikn-
inga; beittar og gamansamar í
senn, fullar af leikgleði sem
kitlaði stórt og smátt í þjóðlífs-
ins leik. Mestu mistökin í sögu
Morgunblaðsins voru þegar
hann var látinn hætta á
blaðinu. Með þessu setti Morg-
unblaðið mjög niður og Íslend-
ingar misstu af skopi Sig-
munds í útfærslu á
hrundansinum mikla. Hjartas-
árin væru mun mildari ef Sig-
munds hefði notið við að öðr-
um ólöstuðum.
Sigmund var flest til lista
lagt, hugmyndaflug hans með
ólíkindum, lausn á öllum
vandamálum.
Sigmund var ekki allra
nema í myndum sínum, en allir
voru hans því allt sem hann
hugsaði og gerði var í þágu
framfara og heilla og hún
Helga hans, lífsfestin hans,
synirnir og fjölskyldur þeirra,
barnabörnin, sólargeislarnir
sem kögruðu tilveru þessa
stórkostlega persónuleika og
listamanns. Í rauninni var Sig-
mund allt of stór fyrir Ísland,
en hann elskaði landið af auð-
mýkt og þakklæti og fólkið í
öllum sínum tilbrigðum.
Heimili þeirra Helgu var
ekki hefðbundið í uppsetningu,
en gestrisni þeirra, vinarþel og
hlýja var eins og eilíf veður-
blíða og vinátta þeirra veitti
manni hlutdeild í sérstæðu
mannlífsverki þar sem lífið lék
við hvern sinn fingur þótt tek-
ist væri á um menn og málefni
á nótum þess að maður er
manns gaman.
Sigmund var afreksmaður á
margan hátt. Eini skopteikn-
arinn í heiminum sem hafði út-
hald til þess að teikna skop-
mynd á dag í blað heillar
þjóðar áratugum saman, tækin
og tólin sem hann fann upp,
Sigmundsgálginn, fiskvinnslu-
vélbúnaður, margs konar ör-
yggisbúnaður fyrir sjómenn
sem hefur bjargað mannslífum,
bætti nýtingu verðmæta,
treysti lífshamingjuna með ís-
lenskan metnað í fyrirrúmi. Við
brölluðum margt á langri leið
og svo voru teknar rokur eins
og þar sem við unnum saman
bækurnar Nú hlær þingheimur
og Enn hlær þingheimur. Það
var aldrei mulið moðið, heldur
gefið í og trollinu hent út í
hversdagslífið.
Myndasafn Sigmunds með
Moggamyndunum eru handrit
nútímans á Íslandi og vonandi
bera Eyjamenn gæfu til þess
að setja nú þegar upp safn í
Vestmannaeyjum með myndum
Sigmunds, sem Alþingi festi
kaup á og vistaði í Eyjum auk
mynda Sigmunds síðustu árin.
Það er stórt skarð fyrir
skildi þegar vinur okkar er
horfinn á braut, landspenninn
sem létti endalaust lund lands-
manna. Megi góður Guð vernda
hann og fólkið hans allt. Við
Dóra þökkum samfylgdina, æv-
intýrin. Það verður spennandi
að sjá afraksturinn af því þeg-
ar Sigmund tekur nú til að
munda blýantinn og túlka
skoplegar hliðar himnaríkis.
Hjá Drottni allsherjar er
mættur teiknarinn af Guðs náð.
Árni Johnsen.
Sigmund Jóhannsson lýsti
skoðunum sínum á þjóðfélags-
málum og einstökum atburðum
í þjóðmálabaráttu líðandi
stundar í teikningum á síðum
Morgunblaðsins dag hvern í
marga áratugi. Þetta var ein-
stakt og ótrúlegt afrek. Það
var í raun og veru óskiljanlegt
hvað maður, sem sat einn úti í
Vestmannaeyjum og talaði við
fáa, gat haft skarpa sýn á þjóð-
félagsviðburði og djúpt innsæi
í sálarlíf þeirra einstaklinga,
sem þar komu við sögu. Þetta
hefur enginn leikið eftir hér á
Íslandi og slíkir hæfileikamenn
eru ekki á hverju strái hjá fjöl-
mennari þjóðum.
Teikningar hans vöktu sterk
viðbrögð. Sumir voru mjög
hrifnir. Aðrir áttu erfitt með
að þola þær. En flestir les-
endur blaðsins skoðuðu þær
dag hvern. Valtýr Pétursson
listmálari, sem var helzti
myndlistargagnrýnandi Morg-
unblaðsins þegar Sigmund var
að hefja feril sinn á síðum
blaðsins, var mjög hrifinn af
teikningum hans eftir því, sem
Matthías Johannessen segir
mér.
Sigmund var viðkvæmur
maður. Það þurfi mikið að
ganga á til þess að forráða-
menn blaðsins tækju upp sím-
ann til að ræða við hann um
athugasemdir, sem fram komu
við myndir hans, hvort sem var
fyrir birtingu frá starfsmönn-
um blaðsins eða eftir birtingu
frá lesendum. Þær athuga-
semdir voru oftar við texta,
sem fylgdu myndunum heldur
en við myndirnar sjálfar.
Framan af hvíldi það á herð-
um Matthíasar Johannessen að
halda Sigmund á síðum blaðs-
ins. Hann var oft að því kom-
inn að hætta. Einu sinni fór
Matthías til Eyja til þess að fá
hann ofan af slíkum fyrirætl-
unum.
Vinátta hans og Árna John-
sen varð til þess að við vissum
betur hvernig Sigmund leið en
seinni árin var Árni Jörgen-
sen, sem áratugum saman var
aðalhönnuður blaðsins og síð-
ustu árin útlitsritstjóri þess, sá
starfsmaður ritstjórnar, sem
bezt ræktaði tengslin við Sig-
mund og átti bezt með að tala
við hann.
Við Sigmund töluðum stund-
um saman og einu sinni fórum
við Árni Jörgensen í fótspor
Matthíasar út í Eyjar. Eftir
hvert samtal hafði ég skýrari
mynd af umhverfi okkar en áð-
ur.
Hvernig var hægt að búa í
eins konar einangrun en sjá
samfélag okkar í skýrara ljósi
en flestir aðrir?
Sigmund Jóhannsson á sér
sérstakan og einstæðan kafla í
sögu Morgunblaðsins. Teikn-
ingar hans eru aldarspegill.
Að leiðarlokum þakka ég
vináttu og lærdómsríkt sam-
starf.
Styrmir Gunnarsson.
Góður vinur, Sigmund Jó-
hannsson, er látinn. Hann
fæddist í Noregi fyrir 81 ári.
Þegar hann var þriggja ára
fluttist fjölskyldan til Skaga-
strandar. Hann var mikill snill-
ingur sem listamaður og upp-
finningamaður. Þetta sást vel á
sýningu sem hann hélt í Akó-
ges í Vestmannaeyjum um síð-
ustu goslokahátíð, alls 69
myndir sem er lítið brot af
verkum hans. Þar kynntist fólk
frábærum verkum sem virki-
lega glöddu augað. Hann var
mikill snillingur í höndunum,
smíðaði glæsilegt skipslíkan
ásamt mörgu öðru fallegu.
Þekktastur meðal þjóðarinnar
er hann fyrir skopmyndir sem
hann teiknaði í Morgunblaðið í
44 ár, frá 1964 til 2008. Trúlega
hefur enginn á því tímabili ver-
ið beinskeyttari gagnrýnandi á
íslenska pólitík en Sigmund.
Svo sannarlega sýndi hann þar
mikla hæfileika á að sjá skop-
legar hliðar lífsins og túlka
þær á þann hátt að nánast öll
þjóðin fylgdist með og beið
spennt eftir Mogganum alla
daga. Á Skagaströnd starfaði
Sigmund sem vélstjóri í frysti-
húsi og eftir að til Eyja kom
vél- og verkstjóri á sama vett-
vangi. Þá komu fram hjá hon-
um ýmsar uppfinningar sem
léttu störfin og sköpuðu betra
hráefni. Þessi tæki voru í notk-
un í frystihúsum vítt og breitt
um landið og einnig tæki við
saltfiskvinnslu. Öryggismál
sjómanna voru honum mjög
hugleikin. Uppfinningar hans
þar hafa skipt sköpum og
bjargað mannslífum. Árið 1972
fann hann upp sjálfvirkan
stoppara á netaspil. Fyrsta
heila árið eftir að þessi einfalda
uppfinning var komin í allan
flotann varð ekkert slys við
netaspil. Það var svo 1981 að
sjósetningarbúnaður gúmmí-
björgunarbáta, Sigmundsgálg-
inn, kom til sögunnar, bæði
handvirkur og sjálfvirkur.
Þetta tæki hefur skipt sköpum
þegar þurft hefur að grípa
snöggt til gúmmíbjörgunarbáta
á neyðarstundu. Fram til
hinstu stundar var hann að
ræða og gera tillögur um bætt
öryggi á sjónum. Fyrir þessi
störf sem vörðuðu íslenska sjó-
menn og fjölskyldur þeirra svo
miklu, tók hann aldrei gjald.
Sjómannafélög hafa heiðrað
hann fyrir tækin sem skapað
hafa bætt öryggi á sjónum og
hann var kjörinn Eyjamaður
ársins 2011. Uppfinningar hans
einkennast af einfaldleika, ör-
yggi og styrk. Núna síðast hef-
ur hann teiknað slökkvibúnað
fyrir jarðgöng, vélarrúm o.fl.
staði sem byggist á nýju mjög
fljótvirku slökkviefni. Vonandi
kemst það fljótt í gagnið. Sig-
mund var alltaf léttur, vinaleg-
ur og einnig skarpgreindur.
Það var mikið lán að eiga hann
að vini í rúm 30 ár.
Heimsóknir til hans og eig-
inkonunnar Helgu eru eftir-
minnilegar fyrir elskulegheit
og vinsemd. Fallega heimilið
þeirra var sérstakt og þangað
var gott að koma. Þau byrjuðu
búskap á Skagaströnd en fluttu
fljótt til Eyja árið 1955. Vest-
mannaeyingar standa í þakk-
arskuld við Eyjakonuna Helgu
Ólafsdóttur fyrir að færa okkur
snillinginn Sigmund Jóhanns-
son, hingað til Eyja, fyrir bráð-
um 60 árum. Með vinsemd og
samúðarkveðjum til fjölskyldu
Sigmunds Jóhannssonar.
Friðrik Ásmundsson.
Sigmund
Jóhannsson
Fyrsta myndin sem Sigmund teiknaði fyrir Morgunblaðið birt-
ist 25. febrúar 1964 og tengdist Surtsey.
Síðasta mynd Sigmund í Morgunblaðinu birtist 20. október 2008.