Morgunblaðið - 26.05.2012, Qupperneq 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
ans þökk fyrir öll árin og allar
góðu samverustundirnar sem við
áttum saman.
Elsku Kalli Siggi og fjölskylda,
við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og megi góður
Guð umvefja ykkur á þessum erf-
iðu stundum.
Kristrún, Hermann
og fjölskylda.
Ég er á leiðinni fyrir Tjörnesið
með Kalla Sigga og Laufeyju, sit í
aftursætinu og við Laufey syngj-
um hástöfum ljóðið hans Tómasar
Guðmundssonar sem byrjar svona
„Tilvera okkar er undarlegt ferða-
lag.“ Þessi gamla minning er skýr
og sækir fast á mig þegar ég fæ
þær fréttir að Laufey hafi verið
kölluð burt til annarra heim-
kynna. Já, lífið er oft á tíðum und-
arlegt ferðalag, og ekki er alltaf
auðvelt að sætta sig við ferðatil-
högun máttarvaldanna. Eftir vor-
kulda er tekið að hlýna en í sál-
arfylgsnum okkar sem þekktum
Laufeyju er enn kalt, og þá er gott
að setjast niður og orna sér við all-
ar góðu minningarnar. Það er viss
ljómi yfir minningunum þegar
fjölskyldan á Litlu-Reykjum fór
einn dag á hverju sumri í heim-
sókn í Tungu. Í þá daga var þetta
heljarinnar ferðalag og ekki farið
af stað nema boða komu sína á
undan. Mikið lifandis voru þetta
skemmtilegir dagar. Laufey tók
okkur opnum örmum og veiting-
arnar voru ekki af verri endanum.
Oft fór hún með okkur í stuttar
gönguferðir, merkilegast af öllu
fannst mér þegar hún fór með mig
niður að ánni, benti mér á planka
sem lá þvert yfir ána, og sagði mér
að þarna gengju þau stundum yf-
ir. Þetta fannst mér hreinasta
þrek-virki, þar sem með mínum
barns-augum virtist áin líkjast
stórfljóti. Þegar ég var í skóla í
Lundi, var ég heimagangur í
Tungu, oft var ég varla komin inn
fyrir dyrnar þegar Laufey spurði
„hvað langar þig nú að fá í kvöld-
matinn ljósið mitt“ já það væsti
sko ekki um mann. Eitt sinn þegar
ég var að fara að hátta sé ég enga
sæng í rúminu, verð steinhissa og
spyr Laufeyju hvar sængin sé. „Æ
hún var svo köld svo ég setti hana
á ofninn svo þér yrði ekki kalt“.
Einmitt svona atvik lýsa Laufeyju
svo vel, umhyggjusöm og hlý við
þá sem í kringum hana voru. Eftir
að ég eignaðist fjölskyldu kom
hún ætíð í heimsókn þegar hún
kom suður. Eftir að hafa heilsað
og spurt frétta, laumaði hún hönd-
unum ofan í veskið sitt og dró upp
prjónana. Laufey var alltaf með
eitthvað á milli handanna, hún
sagði að það væri svo róandi og
þægilegt. Eftir að Laufey veiktist
heyrði ég oft í henni í síma, og þeg-
ar ég spurði hvernig henni liði
sagðí hún alltaf, „mér líður ljóm-
andi vel, hef nóg að borða, hús að
búa í, og því ætti ég þá að kvarta.“
Í síðasta skiptið þegar ég heyrði í
henni, lá hún á sjúkrahúsinu á
Húsavík. „Ég ligg hérna í her-
berginu þar sem móðir mín bless-
uð lá, og borða skonsu og drekk
kaffi,“ sagði hún og bætti svo við
„ég er reyndar alveg orkulaus en
mér líður vel“. Þetta svar er
dæmigert fyrir Laufeyju, svo
ótrúlega yfirveguð, jákvæð og
æðrulaus. Ég tel mig ríka að hafa
fengið að umgangast Laufeyju
jafn mikið og ég gerði, og mun ríg-
halda í allar yndislega góðu minn-
ingarnar.
Elsku Kalli Siggi og allt þitt
fólk, við fjölskyldan vottum ykkur
okkar dýpstu samúð og biðjum
þess að allt hið góða gefi ykkur
styrk á erfiðum tímum.
Signý Sigtryggsdóttir.
Í gróðursælum Öxarfirðinum
læðist Tunguáin hljóðlát framhjá
litla gróðursæla hólmanum fyrir
utan eldhúsgluggann í Hafrafells-
tungu.
Dapurt er yfir öllu því Laufey
Bjarkadóttir húsmóðirin á bænum
er horfin á braut. Henni bregður
ekki lengur fyrir í gluggum þar
sem hún er vön að líta með vel-
þóknun til umhverfisins sem hefur
verið hennar í marga áratugi.
Nær hálf öld er liðin síðan
bóndasonurinn úr Hafrafells-
tungu heillaði til sín heimasætu
innan úr Reykjahverfi og unga
parið gerði sér notalegt heimili
þar. Í Hafrafellstungu er mynd-
arlegur sauðfjárbúskapur og
lengst af hafa verið í það minnsta
þrjár kynslóðir til húsa þar í túni.
Laufey og Kalli Siggi eignuðust
„tvisvar sinnum tvö börn“ eins og
Laufey orðaði það og vísaði þar til
þess að töluverður aldursmunur
er á Huldu og Ingu annars vegar
og síðar Birnu og Bjarka. Aldurs-
hóparnir urðu því fleiri en ella og
hver hafði eðlilega sitt viðhorf og
sína skoðun svo auðvelt hefur það
ekki alltaf verið, en festa, létt lund
og jafnaðargeð auðveldar einatt
alla sambúð. Laufey var fasti
punkturinn og búkonan að hætti
bestu húsmæðra sem ennþá finn-
ast í sveitum landsins.
Börnin uxu úr grasi og brátt
voru barnabörnin farin að skokka
um hlaðið. Þegar Laufey og Kalli
Siggi voru orðin elsta kynslóðin í
Hafrafellstungu var það mikið
gleðiefni er ljóst var að keðja fjöl-
skylduábúðar á staðnum myndi
halda áfram enn um sinn.
Laufey tók slíku ástfóstri við
Hafrafellstungu að það hefðu vart
getað orðið sterkari bönd þó að
hún hefði slitið þar barnsskónum,
Hafrafellið var fjallið hennar og
Tunguáin vinur.
Vorið með allri þeirri vinnu og
amstri sem því fylgir á sauðfjárbúi
var Laufeyju sérstaklega kær árs-
tími. Hvert nýtt líf sem í heiminn
kom var þess virði að yfir því væri
vakað og að því hlúð eftir bestu
getu. Oft var baslað við það tím-
unum saman að koma mjólk úr
pela ofan í lítt lífvænlegt lamb og
það mátti heyra hvína í hárblás-
aranum á hvaða tíma sólarhrings
sem var, þar sem verið var að ylja
veikburða lambi. Ótrúlega oft
sigraði lífið og jarmur heyrðist úr
pappakassa á stigaskörinni þar
sem lamb var að brölta á gömlu
lopapeysunni sem lögð hafði verið
í botninn. Umhyggjan fyrir öllu lífi
og gleðin yfir því að sjá ungviðið
dafna var ávallt í fyrirrúmi hjá
Laufeyju.
Það er ekki laust við að manni
þyki það nokkur kaldhæðni örlag-
anna að Laufey sé kölluð burt á
þeim tíma ársins sem allt er að
vakna til lífsins.
Hálft annað ár hafði Laufey
barist við veikindi með bjartsýni
og dugnað að vopni, sjötugsaf-
mælinu var fagnað síðastliðið
sumar og fjölskyldan átti margar
dýrmætar samverustundir.
Þegar dagarnir styttust tók
óvinurinn illvígi að sækja að á ný
og nú létti ekki til þó að sólin
hækkaði á lofti, farsæl ferð var á
enda.
Nú er Laufey Bjarkadóttir
horfin á braut. Án hennar verður
líf fjölskyldu og vina ekki það
sama en við munum ekki gleyma
því að hún hefur átt sinn þátt í því
að gera okkur að því sem við erum
í dag.
Ásta Garðarsdóttir.
Laufey húsfreyja í Hafrafells-
tungu hefur kvatt þennan heim
eftir að hafa langa hríð verið í helj-
argreipum sjúkdóms, sem alltof
marga leggur að velli á besta aldri,
þrátt fyrir öll lyf og tækni lækna-
vísindanna.
Ég kynntist þessari konu fyrir
löngu síðan; í fyrstu vegna vináttu
minnar og félagsskapar við mann
hennar, Karl Sigurð Björnsson,
sem var skólabróðir minn í
Menntaskólanum á Akureyri fyrir
hálfri öld. Ég varð þess fullviss við
fyrstu kynni, að nafna mínum
hafði tekist vel til í makavali.
Laufey skipaði með stakri prýði
sessinn við hlið bónda síns á hinu
forna höfuðbóli. Glaðlegt viðmót
þeirra hjóna, drengskapur og frá-
bær gestrisni snart mig eins og
aðra sem komu á heimili þeirra.
Síðustu árin, þegar við Ólöf Erla
kona mín vorum á heimili þeirra í
nokkrar vikur, varð kunnings-
skapurinn og vináttan enn meiri
og traustari. Við unnum þá að
rannsóknum í Norður-Þingeyjar-
sýslu á orsökum þess að lömb
deyja í móðurkviði rétt fyrir burð,
í fæðingu og nýfædd.
Búskapurinn í Hafrafellstungu
er með sérstökum myndarbrag
eins og alkunnugt er. Innanhúss
var stjórn Laufeyjar til fyrir-
myndar að öllu leyti, en hún lét sig
ekki síður varða það sem fram fór
utanhúss og sinnti umönnun mál-
leysingjanna af mildi og tilfinn-
ingu fyrir þörfum þeirra. Öllum
komumönnum í Hafrafellstungu
er tekið opnum örmun. Hvert sinn
er líkast því að koma heim eftir
langa fjarveru. Dvöl á heimilinu
sérstök, vafin hlýju og gleði.
Húsfreyjan bar sig vel og
skörulegt var fasið. Hún var kvik í
hreyfingum, fljót til svars, glettin,
tillögugóð, umtalsgóð og alltaf já-
kvæð. Augun leiftruðu af áhuga
þegar til umræðu var hvað eina,
sem mátti verða til að lyfta sálinni
á flug og gleðja aðra. Hún dró ekki
úr því að efnt yrði til reiptogs yfir
stórfljótið Jökulsá á Fjöllum og
tók sjálf þátt í því að kveðast á við
vestanmenn í Skúlagarði, þegar
haldinn var þar mannfagnaður að
afloknum sauðburði, „sauðburðar-
gleði“ í júníbyrjun 2009. Og hún
lét sig ekki muna um að koma fár-
veik til fundar í Lundarskóla
haustið 2011, þegar rætt var um
að stofna kvæðamannafélag Öx-
firðinga og Þistla.
Það er harmur kveðinn að okk-
ur öllum sem þekktum Laufeyju
við fráfall hennar, en það er
harmabót Karli Sigurði vini mín-
um, að arftakarnir á heimilinu eru
efnilegir. Bjarki, sonur þeirra
hjóna, hefur erft góða eiginleika
foreldra sinna beggja og yndisleg
tengdadóttir, Eyrún Skúladóttir
frá Tannstaðabakka við Hrúta-
fjörð, prýðir hópinn á bænum. Lít-
il stúlka, dóttir ungu hjónanna,
rennur upp eins og rós á vori í
gróðurskála Laufeyjar í Hafra-
fellstungu.
Allt fólkið í Hafrafellstungu var
komið í hóp okkar bestu vina. Við
fundum hve böndin innan fjöl-
skyldunnar voru ljúf og traust. Við
sendum Karli Sigurði og fólkinu
hans öllu í Hafrafellstungu, dætr-
unum þremur og fjölskyldum
þeirra, öðrum skyldmennum,
sveitungum og vinum hlýjar
kveðjur og ósk um styrk og hugg-
un.
Ólöf Erla og Sigurður
dýralæknir, Selfossi.
Gengin er góð kona, Laufey
Bjarkadóttir. Margt kemur mér í
hug þegar ég hugsa um okkar
kynni. Ég hugsa um veturinn sem
við Kvennaskólapíurnar áttum
saman forðum. Það var skemmti-
legur tími og lærdómsríkur og þar
hnýttust vináttubönd sem ekki
hafa slitnað síðan.
Þá var tíminn aðeins óljóst hug-
tak yfir eitthvað, sem kom okkur
ekkert við. Ótal bjartir dagar biðu
okkar, marglit fiðrildi flögruðu í
kringum okkur og sorg var bara
eitthvað sem snarruglað fólk not-
aði sér til afsökunar ef það kunni
ekki að lifa lífinu. Fyrir þremur
árum hittist stelpnahópurinn síð-
ast. Þá var ákveðið að hittast aftur
í ár. Það er vont til þess að hugsa
að þá vanti Laufeyju. Laufey var
ekki bara skólasystir mín, hún
varð líka einskonar tengdasystir
þegar faðir minn og móðir hennar
gengu í hjónaband. Vegna þeirra
fjölskyldutengsla áttum við sam-
leið á mörgum gleði- og sorgar-
stundum. Við vorum ekki systur
sem hringdu daglega eða heim-
sóttu hvor aðra oft. En við vorum
vinir sem höfðu um nóg að ræða
þegar við hittumst. Síðast þegar
ég sá Laufeyju virtist hún á góð-
um batavegi eftir erfiða lyfjameð-
ferð. Hún ljómaði af hreysti og leit
bjartsýn fram á veg. En sumir
sjúkdómar virðast hafa sjálfstæð-
an vilja og fara sínu fram þrátt
fyrir öll læknavísindi.
Síðan Kvennaskólastelpurnar
útskrifuðust hafa margir dagar og
mörg fiðrildi flögrað hjá en litir
þeirra gleymast ekki þeim sem
eftir lifa og ég vil trúa því að þeir
gleymist heldur ekki þeim sem
látnir eru.
Ég er þakklát fyrir að hafa
þekkt Laufeyju Bjarkadóttur.
Blessuð sé minning hennar.
Öllum ástvinum hennar sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Sigrún Baldursdóttir.
Í einhverri barnslegri einfeldni
vill maður trúa að góðu hlutirnir í
lífinu breytist aldrei. Ég trúði því
alla vega að ég gæti alltaf komið
heim í Tungu og þú tækir á móti
mér opnum örmum eins og þú hef-
ur alltaf gert. Við gætum tekið
stöðuna á nýjustu prjónaverkefn-
unum okkar, farið út í sólstofu og
skoðað blómin þín, brasað eitt-
hvað saman í eldhúsinu, sest niður
og rætt um daginn og veginn eða
bara staldrað við og dásamað feg-
urðina í Tungu. Svo áttar maður
sig á því að allt hefur sinn tíma og
tekur enda, stundum aðeins of
snemma. Eftir sitja góðar minn-
ingar og innilegt þakklæti fyrir að
hafa notið þeirra forréttinda að
kynnast og læra svo ótalmargt af
einstakri konu. Það finnst mér
besta orðið til að lýsa þér, þú varst
bara svo einstök. Þegar ég hugsa
um þig finn ég hlýju og gleði, ég
brosi yfir mörgum gullnum setn-
ingum og dáist að viðhorfi þínu til
lífsins. Í minni síðustu kveðju til
þín, elsku Laufey, langar mig að
þakka þér fyrir allt, allar góðu
stundirnar sem við áttum saman,
og segja þér hvað mér leið alltaf
vel í kringum þig. Ég veit þú tekur
á móti mér opnum örmum á ein-
hverjum nýjum stað, það verður
dásamlegt.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Arnþrúður Eik Helgadóttir.
Lífið býður manni upp á ým-
islegt og eitt af því er að kveðja
vini sem manni þykir ómetanlega
vænt um. Laufey mín hefur verið
hluti af tilveru minni alveg frá því
að ég man eftir mér. Einhvern
veginn hélt maður að það yrði allt-
af þannig, að hún yrði á sínum stað
heima í Tungu. Það er ósköp nota-
legt að setjast niður og rifja upp
góðar minningar sem tengjast
henni en óneitanlega er það líka
erfitt því ég veit að þær verða ekki
fleiri.
Sem barn og unglingur man ég
eftir hvað var gott að koma út í
hús og fá nýbakað rúgbrauð með
smjöri og ég man eftir ískaldri
mysunni sem Laufey skaffaði okk-
ur í baggaheyskapnum. Ég fékk
alltaf að vita hvað ég var velkomin
til Laufeyjar og Kalla. Svo liðu ár-
in og við urðum bestu vinkonur.
Þegar maður kom heim í Tungu
var manni alltaf heilsað með faðm-
lagi og kossi á kinn. Við settumst
niður, hún prjónaði og við spjöll-
uðum um daginn og veginn. Þá
kom hún auðvitað með ógleyman-
legar setningar og gullkorn af
sinni alkunnu snilld því Laufey
var mikill húmoristi. Einhvern
veginn langaði mann aldrei að fara
heim aftur en loksins þegar maður
hafði sig af stað fékk maður aftur
faðmlag og koss á kinn, því hún
hafði alltaf nóg að gefa öllum. Það
var svo gott að setjast niður með
Laufeyju, eiga með henni rólega
stund og njóta þeirrar góðu nær-
veru sem stafaði frá henni.
Takk, elsku Laufey mín, fyrir
vináttuna og hlýhuginn sem þú
sýndir mér alla tíð. Þú kenndir
mér margt og fyrir það verð ég
þér ævinlega þakklát.
Kristjana Erna Helgadóttir.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Með opnum huga fagnaðir þú
okkur sem nýjum sveitungum og
bauðst okkur velkomin í sveitina
fögru. Með opnum huga kíktuð þið
Kalli í Sigtún og við vorum ætíð
velkomin í Tungu. Fyrir það vilj-
um við þakka og í huga okkar
munt þú ætíð lifa sem hin sanna
móðir, kona, meyja – og vinkona.
Elsku Kalli og fjölskyldan öll.
Okkar einlægustu samúðarkveðj-
ur til ykkar allra. Einnig til henn-
ar Erlu Óskars sem nú sér á eftir
tryggri og góðri vinkonu. Megi
minningin um góðar stundir ylja
ykkur og sefa um leið sárustu
sorgina.
Helga og Ásgeir.
Ég hafði þau forréttindi sem
strákur að vera í sveit í Tungu og
kynnast því eðalfólki sem þar hef-
ur búið. Þar voru tvær konur sem
hlúðu að mér sem mæður. Maja,
sem er fallin frá, og Laufey sem
nú er líka fallin frá. Vegna fráfalls
Laufeyjar skrifa ég hér nokkrar
línur. Þegar ég hugsa til Laufeyj-
ar í Tungu koma upp lýsingarorð-
in glöð, iðin, góðhjörtuð og glettin.
Ekki man ég eftir henni öðruvísi
en alltaf að. Ef hún settist niður án
þess að vera með prjóna eða nál,
þá var það til að spjalla. Og ég
man að hún spjallaði alltaf við mig
með sömu virðingu og fullorðna.
Laufey var mörgum kostum
gædd. Hún var mikill dýravinur
og talaði líka til dýranna af virð-
ingu. Hún hugsaði vel um dýrin
sem á bænum voru, hvort sem það
voru kýr, hænur, endur, hundar
eða heimalningar. Einstakt lag
hafði Laufey líka á að hjálpa höf-
uð- og hornastórum hrútlömbum í
heiminn, því hún hafði sérstaklega
nettar hendur og gott lag á að
hjálpa ánum að bera. Ég man ekki
betur en að Laufey hafi kennt mér
að mjólka; allavega fylgdist ég
nógu oft með henni við mjaltir eft-
ir að ég mokaði flórinn. Þetta voru
góðir tímar og gleymast aldrei.
Sérstaklega man ég eftir að Lauf-
ey kenndi mér að baka flatbrauð
með logsuðutæki eða einhvers-
konar eldvörpu. Þá sátum við í for-
stofunni hjá þeim og settum deigið
á mjólkurbrúsa á hvolfi (ef ég man
rétt) og svo bökuðum við flat-
brauðið með loganum úr logsuðu-
tækinu. Þetta fannst mér sér-
stakt. Ekki má gleyma að minnast
á rósaskálann hennar Laufeyjar
sem var fullur af allskonar rósum
sem hún ræktaði. Og hún ræktaði
meira en rósir því hún hafði áhuga
á trjárækt; og ávexti þess áhuga-
máls má sjá víða í Tungulandi. Ég
man ekki eftir Laufeyju öðruvísi
en í góðu skapi. Alltaf var stutt í
glettnina. Jafnvel ef þau Kalli
Siggi voru ekki alveg sammála þá
rökstuddu þau bæði sitt mál á sinn
hátt, en mér fannst þau frekar
vera að stríða hvort öðru góðlát-
lega með glettni í auga. Þau áttu
vel saman hjónin og ég þegar ég
hugsa til þeirra, er það alltaf með
þakklæti, hlýhug og ljúfum minn-
ingum.
Elsku Kalli Siggi, Hulda, Inga,
Bjarki, Birna og aðrir sem sakna
Laufeyjar, ég samhryggist ykkur
og reyni í mínum söknuði að vera
þakklátur fyrir að hafa kynnst
Laufeyju og geymi góðar minn-
ingar um hana.
Almáttugur uppi í æðra
á guðs vegum gæta mátt
minna mætu „Tungumæðra“
þá þökk mína þú alltaf átt.
Kristján Ólafsson.
Mig langar að minnast Laufeyj-
ar með fáum orðum.
Þegar ég flutti úr Keflavík í
Hafrafellstungu II í Öxarfirði,
voru viðbrigðin mikil fyrir stúlku
sem hafði aldrei verið í sveit. Mót-
tökurnar hjá heimilisfólkinu í
Hafrafellstungu I og ekki síst
Laufeyju voru hins vegar frábær-
ar og verð ég ævinlega þakklát
fyrir það. Laufey var frábær kona,
kona sem hafði skoðanir og gerði
aldrei meira mál úr hlutunum en
ástæða var til. Það í sjálfu sér er
mikill kostur fyrir hvern sem er.
Laufey var iðin og alltaf með
prjónana við höndina, ófáar eru
flíkurnar sem liggja í valnum og
margir hafa notið góðs af. Blóma-
rækt var henni í blóð borin, sér-
staklega var natnin við rósirnar
aðdáunarverð og uppskar hún
sannarlega eftir því. Kvenfélagið
var henni hugleikið og reyndi hún
mikið til að fá mig í þann fé-
lagsskap, mér fannst þessi fé-
lagsskapur bara fyrir „þroskaðar“
konur en eftir töluverðar mótbár-
ur af minni hálfu gaf ég loks eftir
og sé ekki eftir því. Hún var trúuð
kona og þótti óskaplega vænt um
kirkjuna sína, hún söng í kirkju-
kórnum í fjöldamörg ár, en henni
tókst ekki að fá mig í kórinn þrátt
fyrir margar tilraunir til þess.
Laufey tók veikindum sínum af
æðruleysi og bjartsýni eins og
henni var einni lagið, en enginn
ræður sínum örlögum. Þakka þér,
Laufey, fyrir hvað þú hefur reynst
dætrum mínum vel. Þakka þér
fyrir að vera góð vinkona og frá-
bær nágranni.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga.
Baggi margra þungur er.
Treystu því, að þér á herðar
þyngri byrði’ ei varpað er
en þú hefir afl að bera.
Orka blundar næg í þér.
Þerrðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.
(Erla skáldkona.)
Elsku Kalli Siggi, Hulda, Inga,
Birna María og Bjarki Fannar, ég
sendi ykkur og fjölskyldum ykkar
mínar dýpstu samúðarkveðjur,
Guð styrki ykkur í sorginni.
Jóna Kristín.
Sendum
frítt
hvert á land sem
er
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is