Morgunblaðið - 26.05.2012, Side 43
MESSUR 43á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11.
Boðið upp á biblíufræðslu fyrir alla.
Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending
frá kirkju aðventista í Reykjavík. Jó-
hann E. Jóhannsson prédikar þar.
Aðventsöfnuðurinn | Sameiginleg
samkoma í Aðventkirkjunni í Reykjavík
í dag, laugardag, kl. 11. Jóhann E. Jó-
hannsson prédikar. Biblíufræðsla fyrir
alla kl. 11.50. Boðið upp á biblíu-
fræðslu á ensku.
Samfélag Aðventista á Akureyri |
Samkoma í Gamla Lundi í dag, laug-
ardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu
fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12.
AKRANESKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Ferming. Hátíðar-
guðsþjónusta á Höfða kl. 12.45.
AKUREYRARKIRKJA | Ferming-
armessa í dag, laugardag kl. 10.30.
Prestar eru sr. Svavar Alfreð Jónsson
og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti
er Eyþór Ingi Jónsson. Ferming-
armessa á hvítasunnudag kl. 10.30.
Prestar eru sr. Svavar Alfreð Jónsson
og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti
er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson þjónar og prédikar. Kirkjukór-
inn leiðir hátíðarsöng undir stjórn
Kristine K. Szklenár. Messuþjónar
lesa ritningar dagsins. Kaffi á eftir.
ÁSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11.
Ferming. Sr. Sigurður Jónsson sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Önnu Þóru Paulsdóttur og Ásu
Laufeyju Sæmundsdóttur guðfræði-
nemum. Kór Áskirkju syngur, organisti
Magnús Ragnarsson. Messa á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá sr.
Sigurðar Jónssonar sóknarprests Ás-
kirkju og heimilisprests Skjóls. Anna
Þóra Paulsdóttir prédikar. Forsöngvari
er Hallveig Rúnarsdóttir og organisti
er Magnús Ragnarsson.
ÁSKIRKJA í Fellum| Hátíðarmessa
kl. 14. Ferming. Organisti er Drífa Sig-
urðardóttir og kór kirkjunnar syngur.
Sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir,
prédikar og þjónar fyrir altari. Tekin
verður í notkun ný fánastöng og fáni
við kirkjuna. Fánastöngin og fáninn er
gjöf frá velunnara kirkjunnar.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guð-
mundsdóttur. Prestur er sr. Kjartan
Jónsson. Hressing á eftir.
BORGARPRESTAKALL | Hátíðar-
guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 11.
Hátíðarguðsþjónusta í Borgarkirkju kl.
14. Á annan hvítasunnudag er guðs-
þjónusta á Dvalarheimili aldraðra kl.
16.30. Organistar Bjarni Valtýr Guð-
jónsson og Jónína Erna Arnardóttir.
Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjal-
arnesi | Guðsþjónusta kl. 11. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hátíðar- og
fermingarmessa kl. 11. Prestar sr.
Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla Elí-
dóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur, org-
anisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 11. Kirkjukór Bústaðakirkju syngur
og organisti er Antonia Hevesi.
Messuþjónar aðstoða. Prestur er sr.
Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Sr.
Íris Kristjánsdóttir prédikar en hún er
að halda til starfa í Kanada. Kór Digra-
neskirkju syngur og Zbigniew Zucho-
wicz leikur á orgelið. Messan er árleg
samstarfsmessa Digranes- og Hjalla-
safnaða. Veitingar á eftir. Alþjóðlegi
bænadagurinn kl. 20. Söngur og Guð
hafður í fyrsta sæti. Hljómsveit sér um
tónlistina og ýmsir kirkju- og safn-
aðarleiðtogar leiða bænina.
DÓMKIRKJAN | Ferming kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir þjóna. Dómkórinn syngur,
organisti er Kári Þormar. Annan hvíta-
sunnudag er messa kl. 11. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt Evu Björk Valdimars-
dóttur. Dómkórinn syngur, organisti er
Kári Þormar.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíð-
armessa kl. 11. Ferming. Prestur sr.
Jóhanna I. Sigmarsdóttir. Organisti er
Torvald Gjerde, kór Egilsstaðakirkju.
FELLA- og Hólakirkja | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar
Stefánsson. Mikaelskoret frá Noregi
syngur nokkur lög. Kór Fella- og Hóla-
kirkju syngur og leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur org-
anista. Kirkjuvörður og meðhjálpari er
Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Guðs-
þjónusta á Hrafnistu kl. 11. Prestur er
Sigríður Kristín Helgadóttir. Hrafn-
istukórinn syngur. Kirkjan er lokuð um
helgina vegna viðgerða.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
armessa kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannsson þjónar fyrir altari. Anna
Sigga og kór Fríkirkjunnar í Reykjavík
leiða tónlistina ásamt Aðalheiði Þor-
steinsdóttur, orgelleikara.
GARÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Álftaneskórinn syngur undir stjórn
Bjarts Loga Guðnasonar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðrún Karls
Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt messuþjónum. Kór kirkj-
unnar syngur, sungið verður hátíð-
artón sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Einsöngvari er Gissur Páll Gissurar-
son. Organisti er Hákon Leifsson.
Kaffi á eftir.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl.
10 og bænastund kl 10.15. Messa kl.
11. Altarisganga og samskot til
kristniboðsins (SÍK). Messuhópur.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur og org-
anisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur
sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eft-
ir. Hversdagsmessa með Þorvaldi
Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíðarsal.
Prestur sr. Auður Inga Einarsdóttir.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn
Kristínar Waage, organista Grundar.
GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti |
Fermingarmessa kl. 11. Prestur sr.
Sigríður Guðmarsdóttir. Organisti
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðar-
kirkju syngur. Meðhjálpari Aðalsteinn
D. Októsson. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir. Lesmessa kl. 11 á ann-
an hvítasunnudag.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hátíð-
ar- og fermingarmessa kl. 11. Prestur
sr. Þórhallur Heimisson. Organisti
Guðmundur Sigurðsson. Barbörukór-
inn þjónar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Hátíð-
armessa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og hópi
messuþjóna. Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur. Organisti er Hörður Ás-
kelsson. Sögustund fyrir börnin. Ensk
messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs
Bjarnasonar. Organisti er Douglas A.
Brotchie og forsöngvari Guðrún Finn-
bjarnardóttir. Á annar hvítasunnudag
er hátíðarmessa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir prédikar og þjónar ásamt
sr. Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur.
Organisti er Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Félagar úr Kamm-
erklúbbnum leika undir stjórn Ewu To-
sik. Grill í boði safnaðarins á eftir.
Organisti Kári Allansson, prestur er sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sameig-
inleg Hátíðarguðsþjónusta Hjalla- og
Digranessafnaða kl. 11 í Digranes-
kirkju. Sr. Gunnar Sigurjónsson og sr.
Íris Kristjánsdóttir þjóna. Kór Digra-
neskirkju syngur. Organisti er Zbig-
niew Zuchowicz. Veitingar á eftir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík |
Samkoma kl. 17. Ken Locke talar og
Grace College taka þátt.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Hátíð-
arguðsþjónusta kl. 15.
HÓLADÓMKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 14. Hr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson
biskup á Hólum þjónar fyrir altari og
prédikar. Kirkjukór Hóladómkirkju leið-
ir söng undir stjórn Jóhanns Bjarna-
sonar organista.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa |
Fermingarmessa kl. 13.30. Prestur er
sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Kirkju-
kór Villingaholts- og Hraungerð-
issókna syngur undir stjórn Inga Heið-
mars Jónssonar.
HVALSNESKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 14. Hljómsveitin Tilviljun?
annast tónlistarflutning. Prestur er sr.
Sigurður Grétar Sigurðsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 10.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma og lofgjörðarhátíð kl. 17.
Michel Oudrago, forseti hvítasunnu-
hreyfingarinnar í Burkina Faso prédik-
ar. Kaffi á eftir. Samkoma á ensku kl.
14 hjá Alþjóðakirkjunni. Helgi Guðna-
son prédikar. Annan hvítasunnudag
kl. 11 er útvarpssamkoma. Helgi
Guðnason prédikar. Vorhátíð kl. 12.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma á annan hvítasunnudag kl. 13 í
umsjá Aglow kvenna.
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa
kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30
(nema föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30, kl. 13.00 á pólsku og á ensku
kl. 18. Virka daga er messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk |
Messa kl. 11, virka daga kl. 18.30.
Laugardaga messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl.
14. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir
stjórn Franks Herlufsens. Prestur er
sr. Kjartan Jónsson. Fermingarbörn
næsta árs boðin velkomin.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 12.15. Með-
hjálpari er Magnús Bjarni Guðmunds-
son. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju syngur
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar
organista. Sóknarprestur.
KOTSTRANDARKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 13.30.
KÓPAVOGSKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová kantors.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur
þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista, kór Laugarneskirkju og
hópi messuþjóna.
LÁGAFELLSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur, org-
anisti Guðmundur Ómar Óskarsson.
Einsöngvarar Sjöfn Pálsdóttir og Krist-
ín Jensdóttir. Sr. Skírnir Garðarsson
þjónar fyrir altari og predikar.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Kór
Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Ferming. Sr. Guðmundur
Karl Brynjarsson þjónar. Á annan
hvítasunnudag mun kór Lindakirkju
syngur ásamt hljómsveit undir stjórn
Óskars Einarssonar. Sérstakur gestur
er Stefán Hilmarsson. Miðaverð er
2.000 kr og rennur ágóði í hljóðfæra-
sjóð Lindakirkju.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal |
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er sr. Ax-
el Á Njarðvík.
NESKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11.
Kirkjukór frá Sandnesi í Noregi syngur
ásamt kór Neskirkju. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Ferming. Kaffi á eftir. Á annan hvíta-
sunnu dag er messa kl. 20. Tónlist í
höndum Steingríms Þórhallssonar
organista. Sr. Sigurður Árni Þórðarson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Sigurvini Jónssyni.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Hátíð-
armessa kl. 11. Kór safnaðarins flytur
hátíðarsöngva Bjarna Þorsteinssonar
undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar
organista. Prestur er sr. Pétur Þor-
steinsson, meðhjálpari Petra Jóns-
dóttir. Ferming.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Guðs-
þjónusta kl. 14. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í safnaðarheimili Grensáskirkju
á annan hvítasunnudag. Ræðumaður
er Kjell Östby.
SELFOSSKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
11. Elvar Ingimundarson guð-
fræðinemi prédikar, sr. Óskar Haf-
steinn Óskarsson þjónar fyrir altari.
Kirkjukórinn leiðir söng og organisti er
Jörg Sondermann.
SELJAKIRKJA | Almenn guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Kór Seljakirkju leiðir safn-
aðarsöng, organisti er Tómas Guðni
Eggertsson. Guðsþjónusta í Skóg-
arbæ kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Aase Gunn Guttormsen djákna. Fé-
lagar úr kór Seljakirkju leiða söng og á
orgel leikur Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíð-
armessa kl. 11. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson, fyrrverandi dómkirkju-
prestur þjónar. Hátíðarsöngvar Bjarna
Þorsteinssonar sungnir. Organisti er
Friðrik Vignir Stefánsson og félagar úr
Kammerkór kirkjunnar syngja.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Hátíðar-
og fermingarmessa kl. 14. Sr. Egill
Hallgrímsson, sóknarprestur annast
prestsþjónustuna og fermir 10 ung-
menni úr Biskupstungum. Skálholts-
kórinn syngur, organisti er Jón Bjarna-
son. Sungnir verða hátíðasöngvar sr.
Bjarna Þorsteinssonar.
SÓLHEIMAKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 14. Ferming. Sr. Birgir Thomsen
þjónar fyrir altari, Ester Ólafsdóttir org-
anisti leiðir almennan safnaðarsöng.
Meðhjálparar eru Eyþór K. Jóhanns-
son og Erla Thomsen.
STÓRUBORGARKIRKJA Gríms-
nesi | Guðsþjónusta kl. 16. Prestur er
sr. Axel Á Njarðvík.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Fermingarmessa
kl. 11. Hljómsveitin Tilviljun? annast
tónlistarflutning. Prestur er sr. Sig-
urður Grétar Sigurðsson.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjöl-
skyldusamkoma kl. 14. Barnastarf,
lofgjörð, prédikun og fyrirbæn. Högni
Valsson prédikar.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Hátíðarmessa kl. 11. Oddný Sigurð-
ardóttir, sópran syngur einsöng. Org-
anisti er Arngerður María Árnadóttir og
prestur sr. Bragi J. Ingibergsson.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Börn borin til
skírnar. Meðhjálpari er Ástríður Helga
Sigurðardóttir. Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar
organista.
ÞORLÁKSKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 11. Herra Kristján Valur Ingólfsson,
vígslubiskup, þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti. Ferming.
ORÐ DAGSINS:
Hver sem elskar
mig.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hallgrímskirkja
(Jóh. 14)
✝ Jökull Krist-jánsson fæddist
á Patreksfirði 21.
júní 1964. Hann lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
15. maí 2012.
Foreldrar hans
eru Erla Hafliða-
dóttir frá Hval-
látrum, f. 3. sept-
ember 1930 og
Kristján Jóhann-
esson frá Hjallatúni, Tálknafirði,
f. 26. september 1921, d. 2. nóv-
ember 1986. Systkini Jökuls eru:
Erlendur, f. 26. júní 1949, Kristín
Sigríður, f. 11. september 1950,
Ólafur Arnar, f. 8. febrúar 1952,
Bára, f. 22. desember 1953, d. 7.
maí 2005, Björn f. 31. mars 1960,
d. 13. apríl 2008, og
Björk, f. 30. desem-
ber 1965.
Jökull á þrjú
börn og eitt barna-
barn. Sonur hans og
Steinunnar Jó-
hönnu Sigfúsdóttur
f. 24. mars 1967, er
Jökull Steinan, f. 16.
ágúst 1988, sonur
hans er Orri Olavi f.
6. janúar 2008. Börn
Jökuls og Ingibjargar Þór Reyn-
isdóttur f. 27. desember 1970,
eru Gilbert Þór f. 20 ágúst 1999
og Margrét Helga f. 27. júlí 2005.
Útför Jökuls fer fram frá Pat-
reksfjarðarkirkju í dag, 26. maí
2012 og hefst athöfnin klukkan
14.
Hjarta mitt er fullt af sorg, ég
skil ekki óréttlæti heimsins. Hvers
vegna er faðir kallaður í burtu frá
litlum börnum? Öðrum eins jaxli og
þér hef ég ekki kynnst, Jökull. Þú
barðist af æðruleysi en varðst þó að
játa þig sigraðan eftir stutt og erfið
veikindi. Tuttugu og tvö ár eru eitt-
hvað svo langur tími. Og þó ekki.
Ég kynntist Jökli Kristjánssyni ár-
ið 1990 og stuttu síðar rugluðum við
saman reytum, vorum samferða í
fimmtán ár og eignuðumst saman
tvo gullmola, þau Gilbert Þór og
Margréti Helgu.
En stundum fara hlutirnir ekki
eins og ætlað er. Leiðir okkar
skildu, en við urðum þeirrar gæfu
aðnjótandi að eiga einstakan og fal-
legan vinskap sem var okkur öllum
afar dýrmætur, ekki síst börnunum
okkar. Kannski fannst sumum við
vera skrítnar skrúfur. Við bjuggum
síðan í sama húsinu, sitt í hvorri
íbúðinni, en þetta vorum bara svo-
lítið við. Gátum ekki búið saman en
gátum samt í rauninni ekki hvort
án annars verið.
Jökull var alltaf einn af fjölskyld-
unni minni. Litlu bræður mínir litu
upp til hans eins og stóra bróður
enda bara litlir pollar þegar þeir
kynntust honum. Ég var nú ekkert
alltaf hress með mömmu þegar hún
tók afstöðu með Jökli ef henni
fannst ég vera ósanngjörn við hann.
En þannig var bara þeirra sam-
band. Þau voru miklir vinir og áttu
eitthvert alveg sérstakt samband
sem aldrei bar skugga á.
Hann var einstaklega þolinmóð-
ur, jafnvel einum of, að mér fannst
stundum. Hann var skapgóður
maður, einstaklega ljúfur og góður
pabbi og elskaði börnin sín meira
en allt annað. Hann átti þann eig-
inleika, sem of fáum er gefinn, að
varðveita í sér barnið alla ævi.
Hann var mjög stoltur af stóra
stráknum sínum honum Jökli
Steinani og litla afaglókollinum sín-
um og sagði mér oft hvað þeir væru
flottir og vel gerðir. Jökull var mik-
ill keppnismaður í eðli sínu. Hann
var góður skákmaður og þegar
hann var orðinn fárveikur hafði
hann þolinmæði til að kenna litlu
dóttur sinni að tefla. Þá var stund-
um ekki hægt að verjast því að
brosa út í annað, því að í litlu
ákveðnu dömunni okkar leynist
sama keppnisskapið og í pabba
hennar.
Bridsspilari var hann og tók
góða törn í þeirri íþrótt á sínum
tíma og var í seinni tíð farinn að
spila á ný. Golfið stundaði hann
mikið þegar færi gafst. Þar áttu
þeir feðgarnir ófáar einstaklega
dýrmætar stundir saman þar sem
faðir leiðbeindi syni af þolinmæði
sem virtist óþrjótandi. Á haustin
mátti svo sjá undir iljarnar á hon-
um eða í ljósan koll uppi um allar
hlíðar að tína ber. Alveg sama hvað
það var, það var tekið með trukki.
Jökull fór sínar eigin leiðir og lét
álit annarra ekki hafa áhrif á sig.
Hann hafði kaldhæðinn húmor.
Hann var dulur og lítið fyrir að
flíka tilfinningum sínum. Hann var
vinur vina sinna. Við erum lánsöm
sem fengum að kynnast honum.
Elsku Jökull, þú varst fyrst og
fremst góð manneskja. Ég kveð
þig, minn besti vinur, og þakka þér
fyrir tímann okkar saman. Við eig-
um yndislegar minningar um þig,
minningar sem ylja okkur um
ókomna tíð.
Hvíl í friði, elsku vinur. Ég mun
gæta gullanna okkar.
Þín,
Ingibjörg.
Jökull
Kristjánsson
Vegna mistaka við vinnslu
þessarar greinar, sem birtist í
Morgunblaðinu í gær, er hún end-
urbirt.
Morgunblaðið biður alla hlutað-
eigandi velvirðingar á mistökun-
um.
Nú er litli frændi farinn og svo
allt of snemma. Ég minnist hans
með söknuði í hjarta.
Ég man svo vel þegar þú komst
Hinrik Hinriksson
✝ Hinrik Hinriks-son fæddist í
Reykjavík 14. júlí
1982. Hann lést í
Osló, Noregi, 12.
maí 2012. Foreldrar
Hinriks eru Hinrik
Aðalsteinsson, f.
15.5. 1950, og Frið-
lín Valsdóttir, f.
25.7. 1951. Eldri
systir Hinriks var
Klara Berta Hin-
riksdóttir, f. 17.11. 1977.
Útför Hinriks fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 25. maí
2012, og hefst athöfnin kl. 15.
í heiminn og hversu
óendanlega stolt
systir þín var með
bróður sinn. Mikið
ofsalega fannst mér
gaman að passa þig,
fór ein í strætó úr
Breiðholti og niður í
Hlíðar til að vera
með ykkur systkin-
unum. Ég á yndis-
legar minningar um
þig úr litlu íbúðinni í
Barmahlíðinni og svo úr Dúfna-
hólunum hjá ömmu. Þær geymi ég
í hjarta mínu. Þú varst alltaf svo
glaður og kátur með krullurnar
þínar og ég var ótrúlega stolt
stóra frænka.
Þú fórst á fleygiferð og í loft-
köstum í gegnum þetta líf. Ég veit
að þú ert lentur á góðum stað og
að þar hefur verið tekið vel á móti
þér.
Elsku Lína og Klara, ég hugsa
til ykkar á þessari stundu og sendi
ykkur mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Anna Margrét
Sigurðardóttir.