Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 45

Morgunblaðið - 26.05.2012, Síða 45
Fyrirtæki hans óx jafnt og þétt frá stofnun og var með um 50 starfs- menn þegar mest var um 1980 en þá var fyrirtæki hans eitt stærsta verk- takafyrirtæki á Suðurlandi. Þá kenndi hann fjölda iðnsveina um árabil en þeir eru nú alls 33 talsins. Bónbetri en bæjarstjórnin Með árunum dró Sigfús úr um- svifum sínum en þrátt fyrir háan aldur er hann þó enn sístarfandi við smíðar á Selfossi. Sigfús hefur lengi verið vinsæll og áberandi í bæjarlífinu á Selfossi, þekktur fyrir dugnað sinn, hjálp- fýsi, hressilega framkomu og skemmtileg tilsvör. Það hefur lengi verið haft í flimtingum á Selfossi, satt eða logið, að ýmsir sem átt hafi brýn erindi við sveitarfélagið Ár- borg hafi óvart hringt í Bygging- arfélagið Árborg og þá gjarnan fengið lausn sinna mála hjá Sigfúsi án málalenginga opinberra stofn- ana. Fjölskylda Sigfús kvæntist 24.10. 1959 Sól- veigu Vigdísi Þórðardóttur, f. 18.2. 1935, húsmóður. Hún er dóttir Þórðar Jónssonar, bónda í Sölvholti, frá Vorsabæ í Ölfusi, og Þórhildar Vigfúsdóttur frá Þorleifskoti. Börn Sigfúsar og Sólveigar eru Aldís, f. 18.3. 1960, byggingarverk- fræðingur, starfaði sem verkfræð- ingur í Bandaríkjunum í 12 ár og nú á Selfossi en sonur hennar er Benedikt Fadel Farag, f. 22.12. 2000; Guðjón Þórir, f. 2.1. 1962, byggingarverkfræðingur á Selfossi, kvæntur Guðrúnu Guðbjartsdóttur efnafræðingi en þeirra dætur eru Þórhildur Helga, f. 15.5. 1992, og Sólveig Helga, f. 4.3. 1996; Kristinn Hafliði, f. 21.9. 1963, húsasmíða- meistari á Selfossi; Þórður, f. 2.8. 1972, verkfræðingur hjá Icelandair og er sambýliskona hans Selma Jónsdóttir skrifstofustjóri en börn þeirra eru Ylja Karen, f. 28.8. 2003, og Sigfús Ísarr, f. 12.4. 2006; Sigríð- ur, f. 31.3. 1974, leikskólakennari og ritari í Fjölbrautaskóla Suðurlands, gift Baldri Guðmundssyni húsa- smíðameistara en þeirra börn eru Vigdís Þóra, f. 30.5. 2000, Jónína, f. 24.4. 2002, Helga Guðrún, f. 10.3. 2006 og Sigurbjörg Marta, f. 4.5. 2008. Bræður Sigfúsar: Guðmundur, f. 31.12. 1930, fyrrv. féhirðir útibús Landsbanka Íslands á Selfossi og rithöfundur, kvæntur Ásdísi Ingv- arsdóttur frá Skipum; Hafsteinn, f. 11.8. 1933, d. 18.4. 1993, fram- kvæmdastjóri Kjöríss hf. í Hvera- gerði, var kvæntur Laufeyju S. Valdimarsdóttur frá Hreiðri í Holt- um. Foreldrar Sigfúsar voru Kristinn Vigfússon, f. 7.1. 1893, d. 5.1. 1982, formaður á Eyrarbakka og í Þor- kákshöfn og síðan húsasmíðameist- ari á Selfossi og víðar um land, og Aldís Guðmundsdóttir frá Litlu- Sandvík, f. 24.2. 1902, d. 9.8. 1966, húsfreyja í Árnesi á Selfossi. Sigfús verður að heiman á afmæl- isdaginn. Úr frændgarði Sigfúsar Kristinssonar Þorvarður Guðmundsson hreppstj. í Litlu-Sanvík Svanhildur Þórðardóttir húsfr. í Litlu-Sanvík Lýður Guðmundsson hreppstj. í Hlíð Aldís Pálsdóttir húsfr. í Hlíð Þorbjörg Jónsdóttir húsfr. á Ósabakka Hafliði Þorsteinsson b. í Brúnavallakoti Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfr.Sigfús Kristinsson Kristinn Vigfússon húsasmíðam. á Self. Aldís Guðmundsdóttir húsfr. á Self. Sigríður Lýðsdóttir húsfr. í Litlu-Sandvík Guðmundur Þorvarðarson hreppstj. í Litlu-Sanvík Sigurbjörg Hafliðadóttir saumakona Vigfús Halldórsson í Frambæjarhúsi Halldór Vigfússon b. á Ósabakka Kristín Skúladóttir húsfr. á Selalæk Svanborg Lýðsdóttir húsfr. á Keldum Sigurður Sigurðarson dýralæknir á Keldum Kári Halldórsson b. á Ósabakka Ragnhildur Halldórsd. í Hólmahjáleigu Sigríður Halldórsdóttir húsfr. í Dalbæ Lýður Guðmundsson hreppstj. í Litlu-Sandvík Páll Lýðsson framkvæmdastj. Auðbjörg Káradóttir Guðmundur Sveinsson húsasm.m. á Self. Katrín Jónsdóttir húsfr. á Núpi Sigurður Guðmundss. forstj. SG-Einingarhúsa Halldór Gíslason b. í Botni Gísli Halldórsson leikari Afmælisbarnið Sigfús Kristinsson. ÍSLENDINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012 85 ára Hólmfríður Finnsdóttir 80 ára Baldur Einarsson Erla Stolzenwald Ólafs- dóttir 75 ára Erla Oddsteinsdóttir Óskar Gunnarsson Sigríður Jónsdóttir Sigríður Sigurðardóttir Svala Pálsdóttir Þóra Kristín Jónsdóttir 70 ára Jón Frímann Eiríksson Þorbjörg S. Þórarinsdóttir 60 ára Anna Gísladóttir Arndís Ásta Gestsdóttir Björk Aðalsteinsdóttir Hafdís Guðjónsdóttir Hreinn Böðvar Gunnarsson Lilja Héðinsdóttir Oddný Hjaltadóttir Pálína Alfreðsdóttir Stefán Fjeldsted Þröstur Ásmundsson 50 ára Baldvin Guðbjörnsson Erna Bjarnadóttir Guðbjörg Ingimundardóttir Guðrún S. Þorsteinsdóttir Hulda Óskarsdóttir Ilona Steponaviciene Inga Óskarsdóttir Jónas Hafsteinsson Jón Emil Hermannsson Leifur Grímsson Miralem Haseta Óli Már Eggertsson Sigurður H. Ísleifsson Sólrún Pálsdóttir Ævar Geirdal 40 ára Ásdís Bjarnadóttir Bertel Magnús Andrésson Bryndís Harpa Magn- úsdóttir Elías Borgar Ómarsson Guðmundur K. Óskarsson Hildur E. Ragnheiðardóttir Maria Fe V. Labandero Sólrún Einarsdóttir Sveinn Eyjólfur Tryggvason Viktoría Jensdóttir Þóra Björg Steinarsdóttir 30 ára Agnes Hulda Barkardóttir Alicja Magdalena Zbi- kowska Anna Maria Darecka Áróra Rós Ingadóttir Egill Antonsson Emil Vendt Karsbek Eva Hjaltalín Ingólfsdóttir Grazyna Wielgosz Hlynur Már Mánason Jökull Gígja Maya Gurung Monika Jagusiak Svanhildur Kristinsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Marías ólst upp í Hveragerði og á Akranesi. Hann býr í V-Leirár- görðum, Hvalfjarðarsveit. Hann starfar sem bifvéla- virki á Grundartanga. Maki Karen Líndal Mar- teinsdóttir, f. 1983, tamn- ingakona og reiðkennari. Sonur Marteinn Bóas, f. 2009. Foreldrar Guðmundur Guðmundsson, f. 1954, og Guðmunda Marías- dóttir, f. 1960. Marías Hjálmar Guðmundsson 30 ára Þóra Ýr er fædd og uppalin á Akureyri. Hún starfar sem matvælafræð- ingur hjá Promat á Ak- ureyri en er í fæðing- arorlofi eins og stendur. Maki Helgi Jónasson, f. 1983, vinnur hjá MS. Börn Kristín Vala, f. 2010 og Jóhann Óli, f. 2012. Foreldrar Laufey Bald- ursdóttir, f. 1953, geisla- fræðingur og tækniteikn- ari og Árni Óðinsson, f. 1950, tæknifræðingur. Þóra Ýr Árnadóttir Brynjólfur Bjarnason, alþing-ismaður og ráðherra, fæddistá Hæli í Gnúpverjahreppi 26. maí 1898. Foreldrar hans voru Bjarni Stefánsson, bóndi í Eyði-Sandvík í Flóa, og k.h., Guðný Guðnadóttir. Brynjólfur lauk stúdentsprófi frá MR 1918, lauk fyrrihlutaprófi í nátt- úrufræði frá Hafnarháskóla og las heimspeki við háskóla í Berlín. Hann var einn af höfuðpaurum ís- lenskra kommúnista, lék stórt hlut- verk í klofningi Alþýðuflokksins og stofnun Kommúnistaflokks Íslands, 1930 og í samskiptum íslenskra kommúnista við Komintern. Um þá þætti segir hann sjálfur ekki rétt frá, eins og fram kemur í ítarlegri sagn- fræðirannsókn Snorra G. Bergs- sonar, í nýútkominni bók hans, Roð- inn í austri. Brynjólfur var fyrsti og eini for- maður Kommúnistaflokks Íslands 1930-38, og síðar formaður mið- stjórnar Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins 1938-49. Hann var alþingismaður 1937-56, mennta- málaráðherra í Nýsköpunarstjórn- inni 1944-47 og stóð þá fyrir umtals- verðum breytingum á íslenskum barna- og framhaldsskólum. Brynjólfur var náinn samstarfs- maður Einars Olgeirssonar en einnig hugmyndafræðilegur andstæðingur hans og keppinautur um skeið. Valdabarátta þeirra tók á sig afar af- káralega mynd vegna þeirrar túlk- unar kommúnista, að pólitískur ágreiningur þeirra sem lentu í minni- hluta, væri í raun siðferðilegur löstur sem yrði að uppræta með iðrun og yf- irbót. Þessi krafa um uppgjöf og iðr- un pólitískra andstæðinga einkennir gjarnan alræðissinna, en hún skýtur nú aftur upp kollinum, eftir banka- hrunið, í skrifum ýmissa ofstæk- ismanna. Brynjólfur samdi nokkrar bækur um heimspeki þar sem hann glímdi ekki síst við greiningu á tilgangs- hugtakinu. Hann var ekki guðstrúar en trúði á líf eftir dauðann. Hann tók þátt í heimspekilegum rökræðum fram á síðustu ár og var sérstaklega rökfastur, yfirvegaður, fríður og elskulegur gamall maður – ein- kennilega ólíkur kommúnismanum, sem kostaði hundrað milljónir sak- lausra borgara lífið á síðustu öld. Brynjólfur lést 16. apríl 1989. Merkir Íslendingar Brynjólfur Bjarnason 30 ára Eilífur Örn er fæddur á Húsavík og ólst upp í Haga í Aðaldal. Hann býr á Akureyri og er verkstjóri hjá Slippnum á Akureyri. Eilífur er meist- ari í vélvirkjun frá VMA. Systur Arnheiður, f. 1975, kennari, Droplaug Mar- grét, f. 1978, mannfræð- ingur og Ingibjörg Dóra, f. 1988, nemi í Hollandi. Foreldrar Jón Fornason, f. 1936 og Bergljót Hall- grímsdóttir, f. 1952. Eilífur Örn Jónsson Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Grallarar.is hefur hlotið styrki frá Mannréttindaráði Reykjavíkur, Menningarráði Suðurnesja og Þróunarsjóði námsgagna. Við erum á Facebook Kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex eru ekki bara skáldskapur. Þau eru rammíslensk og uppátækjasöm og eiga sér lifandi fyrirmyndir í Sandgerði. Baekur Vinnubaekur Leikir og fl. Uppskriftir Taknmalsutgafur Komdu i askrift Attu grallara! Innifalið í áskrift: - Nýjasta bókin - Eldri bók að eigin vali - Táknmálsútgáfur af fyrstu 4 bókunum - Vinnubækur fyrir fyrstu 3 bækurnar Samtals 832 kr. www.grallarar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.