Morgunblaðið - 26.05.2012, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Breski sjónvarpsþátturinn Top Of The
Pops mun snúa aftur í október sem sviðs-
verk sem sýnt verður víða um Bretland.
Hópur söngvara mun koma fram í verkinu
auk hljómsveitar og þá verður einnig nýtt
efni úr þáttunum sem BBC sýndi til
margra ára. Framleiðendur eru þeir sömu
og sáu um Michael Jackson-sýninguna
Thriller Live. Lögin í sýningunni verða
frá áttunda, níunda og tíunda áratug lið-
innar aldar eftir listamenn og hljómsveitir
á borð við David Bowie og Blondie.
Top Of The Pops á svið
Poppstjarna David Bowie.
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
„Það hljómar kannski furðulega en
við erum eiginlega dönsk hljómsveit
þó að við séum frá Íslandi og Svíþjóð
því við hittumst í Kaupmannahöfn,“
segir Guðbjörg Tómasdóttir, oft
kölluð Bubba, sem skipar annan
helming hljómsveitarinnar My
bubba & Mi sem kemur fram á tón-
listarhátíðinni Reykjavik Music
Mess um helgina. Hinn helminginn
skipar hin sænska My Larsdotter en
eins og Bubba segir varð hljóm-
sveitin til þegar þær stöllur hittust í
Kaupmannahöfn fyrir nokkrum ár-
um. „Þá var ég að læra ljósmyndun
og var að leita mér að herbergi til
leigu í Kaupmannahöfn. Ég sá aug-
lýsingu, svaraði henni og flutti inn til
My sem var þá í sirkusskóla,“ út-
skýrir Bubba sem er grafískur
hönnuður og starfar sem slíkur þeg-
ar hún er ekki að sinna tónlistinni.
Afþreying yfir kvöldkaffinu
„Þetta byrjaði eiginlega þannig að
ég var að spila á gítarinn í mínu her-
bergi og hún var eitthvað að syngja
inni hjá sér en smám saman byrj-
uðum við að spila saman. Við höfum
stundum grínast með að þetta hafi
allt byrjað því við áttum ekki sjón-
varp og spiluðum því tónlist á kvöld-
in eins og fólk gerði fyrr á öldum.
Þetta var okkar leið til að stytta okk-
ur stundir yfir kvöldkaffinu,“ út-
skýrir Bubba en tónlist hljómsveit-
arinnar er einmitt virkilega notaleg
og kjörin til hlustunar yfir kaffi-
drykkju á kvöldin.
„Ég byrjaði að spila á gítar sem
barn og My hefur sungið mikið fyrir
sjálfa sig í gegnum tíðina en við
höfðum ekkert samið tónlist að ráði
áður en við hittumst,“ segir hún en
tónlistarferill þeirra hófst fyrir al-
vöru þegar meðleigjendurnir tón-
elsku spiluðu á tónleikum á litlu
kaffihúsi í Kaupmannahöfn.
„Vinur okkar bað um að við kæm-
um á svona tónleikakvöld þar sem
allir geta spilað og við mættum með
tvö lög sem við höfðum samið. Við
vorum svo heppnar að einmitt þegar
við vorum að spila hjólaði ítalskur
kaffihúsaeigandi framhjá fyrir al-
gjöra tilviljun, kom inn og bauð okk-
ur að koma til Ítalíu að spila. Hann
bauðst til að skipuleggja lítið tón-
leikaferðalag um Ítalíu og við létum
slag standa. Við höfðum aldrei gert
þetta áður og þurftum að drífa okk-
ur að semja tíu lög í viðbót á tíu dög-
um til að geta spilað heila tónleika.
Ferðalagið var alveg frábært og við
urðum ástfangnar af því að ferðast
um og spila fyrir fólk,“ segir Bubba
um þetta fyrsta ævintýri hljómsveit-
arinnar
Horfa til Bandaríkjanna
Stuttu seinna tóku þær Bubba og
My upp fyrstu plötu sína, hina hug-
ljúfu How it’s done in Italy, sem kom
út í byrjun ársins 2010. Til að fylgja
plötunni eftir hafa þær spilað á yfir
100 klúbbum víðsvegar um Evrópu
og vakið mikla lukku á tónlist-
arhátíðum á borð við Iceland Airwa-
ves, The Band Room í Bretlandi og
Eurosonic í Hollandi.
Í fyrra kom út lagið „Bob“ og EP
platan Wild & You og í framhaldinu
fór hljómsveitin á tónleikaferðalag
um Evrópu og Bandaríkin. „Þetta
var í fyrsta skipti sem við spiluðum í
Bandaríkjunum og við fengum mjög
góðar viðtökur. Við spiluðum á tón-
listarhátíðunum Culture Collide í
Los Angeles og CMJ New York.
„My bjó áður í Bandaríkjunum og ég
hef einnig búið þar í stuttan tíma svo
við höfum ákveðna tengingu þangað
og langar gjarnan að fara þangað
aftur að spila,“ segir Bubba en um
þessar mundir eru þær aðallega að
vinna nýtt efni fyrir næstu breið-
skífu sveitarinnar.
„Núna er ég á Íslandi og hún í
Kaupmannahöfn svo við erum ekki
að spila mikið en erum meira að
vinna í nýju efni. Það er fínt að taka
smá hlé frá ferðalögunum, leggjast
undir feld og semja,“ segir Bubba
sem er grafískur hönnuður á Ís-
lensku auglýsingastofunni en My
starfar sem lestarstjóri í Svíþjóð.
Auglýsingahlé á tónleikum
Bubba hefur á vissan hátt náð að
tengja saman störf sín; tónlistina og
auglýsingabransann. „Ég og My
höfum verið að semja auglýsingastef
í nokkur ár en ég hef einnig samið
stef hér á landi fyrir Flugfélag Ís-
lands gegnum Íslensku auglýs-
ingastofuna,“ segir Bubba en les-
endur kannast eflaust við umrætt
lag sem ber nafnið „Flug eða bíll“.
Bubba og My hafa samið fleiri aug-
lýsingastef en einnig standa þær
fyrir virkilega skondnum uppá-
komum í hléi á tónleikum sínum.
„Það er alltaf auglýsingahlé á tón-
leikunum okkar þar sem við byrjum
á að syngja stef um að fólk geti
keypt auglýsingar. Síðan syngjum
við stef um að fólk eigi að kaupa
plöturnar okkar og að lokum syngj-
um við stef um vöruna My bubba &
Mi Skin Cream sem er væntanleg á
markað,“ segir Bubba hlæjandi og
bætir við að andlitskremið sé
kannski meira grín en alvara.
Hnyttnar Bubba og My spila oftar en ekki stórskemmtileg auglýsingastef í hléi á tónleikum sínum.
Tilviljanakennt ævintýri
Dúettinn My bubba & Mi kemur fram á Reykjavík Music
Mess um helgina Alltaf auglýsingahlé á tónleikum
My bubba & Mi spila á tónlistarhá-
tíðinni Reykjavik Music Mess um
helgina. Hægt er að sjá dagskrá
hátíðarinnar á síðunni
www.reykjavikmusicmess.com og
nánari upplýsingar um þær Bubbu
og My má finna á heimasíðu hljóm-
sveitarinnar, www.mybubba-
andmi.com. Lag Íslands í Evróvisjónkeppninni
er það sjöunda sem flutt verður í
kvöld þegar lokakeppnin fer þar
fram. „Þetta verður fínt annað
kvöld. Við tökum þetta af festu, en
erum ekkert að fara á taugum yf-
ir þessu,“ sagði fararstjóri ís-
lenska hópsins, Jónatan Garð-
arsson, í samtali við blaðamann
mbl.is í gær en hópurinn heldur til
Íslands skömmu eftir að úrslit
liggja fyrir.
„Við tökum þetta af festu“
Glæsileg Greta og Jónsi í undanúrslitunum þriðjudagskvöldið síðastliðið.
AFP
Pastora Soler, söngkonan sem flyt-
ur framlag Spánar í ár í Evróvisjón,
„Quedate Conmigo“, segir það
rangt hafa verið haft eftir sér að
fulltrúar spænska ríkissjónvarpsins
hafi beðið hana um að sigra ekki í
keppninni. Í samtali við fréttamann
breska ríkisútvarpsins, BBC, sagði
hún „afar slæman blaðamann“ hafa
haft þetta eftir sér ranglega. Þvert
á móti vilji hún fara með sigur af
hólmi og landar hennar í ríkissjón-
varpinu einnig.
Rangt haft
eftir Soler
AFP
Ummæli Pastora Soler á æfingu fyrir Evróvisjón í Bakú í Aserbaídsjan 21.
maí síðastliðinn. Hún segir blaðamann hafa haft rangt eftir henni.
568 8000 | borgarleikhus.is
Rómeó og Júlía – síðustu sýningar
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Lau 26/5 kl. 15:00 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Mið 6/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn Lau 1/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Lau 26/5 kl. 17:00 Frums. Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 1/6 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI