Morgunblaðið - 26.05.2012, Page 56
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2012
Páll Óskar Hjálmtýsson mun halda
sitt árlega Evróvisjónball í kvöld á
tónleikstaðnum Nasa og hefst það kl.
23. Verður það jafnframt í síðasta
sinn sem Páll Óskar heldur slíkt ball á
Nasa þar sem staðnum verður lokað í
júní. Fjölmargir söngvarar sem tekið
hafa þátt í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins og Evróvisjón munu koma fram
auk Páls Óskars: Selma Björnsdóttir,
Helga Möller og Pálmi Gunnarsson,
Hera Björk, Einar Ágúst og Telma,
Blár Ópal og Stebbi og Eyvi.
Páll Óskar heldur
Evróvisjónball
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 29. maí. Frétta-
þjónusta verður um hvíta-
sunnuhelgina á fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is. Hægt er að
koma ábendingum um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifta og aug-
lýsinga er opið í dag, laug-
ardag, frá kl. 8-13 en lokað er á
hvítasunnudag og annan í
hvítasunnu. Sími þjónustuvers
er 569-1122 og netföngin eru
askrift@mbl.is og
augl@mbl.is.
Blaðberaþjónusta er opin í
dag, laugardag, frá kl. 5-11.
Hægt er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is. Símanúmer
Morgunblaðsins er 569-1100.
Fréttaþjónusta á
mbl.is um helgina
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vill aukakílóin aftur
2. Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu…
3. Ríkasta kona heims
4. Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Heldur hægara en í gær, en rigning V-lands seinnipartinn. Hiti víða
10 til 15 að deginum, en kringum 20 stig NA-til.
Á sunnudag (hvítasunnudagur) Hæg vestlæg átt. Skýjað V-lands og þokubakkar úti
við ströndina, en yfirleitt léttskýjað eystra. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á SA-landi.
Á mánudag (annar í hvítasunnu), þriðjudag og miðvikudag Útlit fyrir hægviðri og
milt veður. Bjart með köflum, en sums staðar þokuloft við sjávarsíðuna.
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona
úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, náði frá-
bærum árangi á Evrópumótinu í
sundi í Debrecen í Ungverjalandi í
gær. Hrafnhildur varð í 5. sæti í úr-
slitasundinu í 200 metra bringusundi
á nýju Íslandsmeti en hún var hárs-
breidd frá því að vinna til brons-
verðlauna í greininni. »1
Hrafnhildur hársbreidd
frá bronsi á EM
Það skiptust á skin og skúr-
ir hjá íslenska kvennalands-
liðinu í körfuknattleik á
Norðurlandamótinu sem nú
stendur yfir í Ósló í Noregi.
Í gærmorgun töpuðu ís-
lensku konurnar stórt fyrir
Svíum en í gærkvöld náðu
þær að knýja fram sigur
gegn Dönum í hörkuspenn-
andi leik. Í dag leikur liðið
gegn Finnum. »2
Tap og sigur hjá
landsliðinu
Átta Íslendingar verða í eldlínunni
þegar leikið verður til úrslita um Evr-
ópumeistaratitilinn í handknattleik
en „Final Four“-helgin svokallaða
verður í Köln um helgina. Þrjú
Íslendingalið, AG Köben-
havn, Kiel og Füchse Berlin,
bítast um titilinn ásamt
Atletico Madrid. »3
Þrjú Íslendingalið í bar-
áttunni í Köln
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
„Það er mjög spennandi að vera að
útskrifast,“ segir Jia Chen, 21 árs
kínversk stelpa sem útskrifaðist í
gær sem stúdent frá náttúru-
fræðibraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Jia flutti til Íslands árið
2007, en hingað kom hún alein og
leitaði sér hælis á Íslandi.
,,Ég var í Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja fyrstu tvö árin og kom svo í
FB,“ segir Jia. Henni þótti íslenskan
mjög erfið til að byrja með en í FS
fékk hún enga íslenskukennslu. ,,Ég
er búin að læra íslenskuna í FB og
við reynum líka að tala hana okkar á
milli, við sem erum frá öðrum lönd-
um,“ segir Jia.
Við útskriftina í gær fékk Jia
verðlaun fyrir besta árangurinn í ís-
lensku sem öðru tungumáli. Var hún
mjög stolt og hissa yfir viðurkenn-
ingunni.
Jia útskrifaðist með yfir átta í
meðaleinkunn og segist hafa mjög
gaman af því að læra. ,,Mér finnst
skemmtilegast í stærðfræði og efna-
fræði en einnig var gaman að læra
íslensku. Mér fannst ekki eins
skemmtilegt að læra sögu og félags-
fræði,“ segir Jia sem ætlar að halda
áfram að æfa sig í íslensku og reyna
að vera dugleg að tala tungumálið
meira.
Eftir útskriftina var engin veisla
hjá kínversku stúdínunni enda þekk-
ir hún ekki þær hefðir. ,,Ég fór bara
á kaffihús,“ sagði Jia.
Í FB hefur hún kynnst krökkum
og segist hafa góða reynslu af ís-
lenskum krökkum. Hún hefur þó að-
allega eignast vini sem einnig eru frá
öðrum löndum, besta vinkona henn-
ar er frá Malasíu og býr hér ásamt
fjölskyldu sinni. ,,Það er erfiðara að
eignast vini þegar maður er ekki í
bekkjakerfi,“ segir Jia.
Prjónaði lopapeysu
Jia Chen býr ein í kjallaraíbúð í
Breiðholtinu, hún fluttist þangað
með hjálp Rauða krossins þegar hún
kom til Reykjavíkur 2009. ,,Rauði
krossinn kom mér af stað og hefur
reynst mér vel,“ segir Jia. Henni
gengur vel að búa ein þótt það hafi
verið erfitt í fyrstu, sérstaklega á
meðan hún kunni lítið í íslensku. Hún
eldar mat heima og kann mjög vel við
íslenskan mat. ,,Mér finnst íslenskur
fiskur mjög góður,“ segir Jia.
Spurð um áhugamál fyrir utan
skólann segist hún hafa rosalega
gaman af því að prjóna. ,,Ég hef
prjónað mér íslenska lopapeysu sem
gott er að eiga á Íslandi. Hún er rosa-
lega hlý,“ segir Jia.
Flutti ein til Íslands frá Kína
Yfir 8 í meðal-
einkunn og verð-
laun fyrir íslensku
Morgunblaðið/Ómar
Stúdína Jia Chen útskrifaðist í gær úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún flutti hingað árið 2007, ein frá Kína.
Jia stóð sig einstaklega vel í skólanum og fékk verðlaun fyrir árangur í íslensku sem öðru tungumáli.
Jia kann vel við sig á Íslandi og
segir Íslendinga frábært fólk.
Henni finnst gott að búa hér þó að
henni finnist veðrið slæmt á vet-
urna. ,,Það er allavega mun betra á
sumrin,“ segir Jia en hún vissi lítið
sem ekki neitt um Ísland áður en
hún kom hingað frá Kína.
Í haust stefnir Jia á að fara í Há-
skóla Íslands. ,,Ég ætla að reyna
við inntökuprófið í læknisfræði en
annars langar mig líka í líf-
efnafræði,“ segir Jia sem er
spennt fyrir komandi áskorunum.
Eftir inntökuprófið í sumar langar
hana að komast í einhverja vinnu.
Hún hefur sótt um hjá Reykjavík-
urborg og bíður svara.
,,Mig langar að búa áfram á Ís-
landi og í mesta lagi ferðast til
Kína í framtíðinni,“ segir Jia.
Draumurinn er að klára há-
skólanám og eftir það að finna
góða vinnu hér á Íslandi.“
Draumur að fara í háskólanám
STEFNIR Á INNTÖKUPRÓF Í LÆKNISFRÆÐI