Helgafell - 01.09.1942, Síða 19
VARNIR RÁÐSTJÓRNARRÍKJANNA
247
með her, hvort sem væri á láði eða í
lofti. Á dögum borgarastyrjaldarinnai
hafði Lenín verið kominn á fremsta
hlunn með að flytja aðsetur stjórnar-
innar austur fyrir Uralfjöll. Nú tók
Stalín það til bragðs að stofna nýtt
framleiðslukerfi í Síberíu, ef svo
skyldi til takast, að ekki yrði komið
vörnum við í hinu gamla Rússlandi.
Árið 1930 boðaði Stalín á 16. þingi
bolsévíkaflokksins, að skapa yrði
samsteypu kola- og járniðnaðar í Sí-
beríu. Síðan eru liðin tólf ár, og nú
eru þar risin upp tröllaukin iðjuver,
sem framleiða vopnin, er Rauði her-
inn notar í vörn sinni vestan Volgu.
Iðnaðarkerfi þetta markast af tveim-
ur skautum: Magnítógorsk í Uralfjöll-
um og Kústnetsk í Vestur-Síberíu, í
norðvestur frá upptökum Jenisseifljóts
Vegalengdin milli þessara skauta er
2000 km. Hjá Magnítógorsk er mikill
járnmálmur í jörðu, en lítil kol. En í
Kúsnetsk eru mestu kolalög í heimi, —
um 400 milljarðar tonna, að því er tal-
ið er. í Magnítógorsk eru mestu stál-
og járnverksmiðjur Evrópu, og eru kol-
in flutt þangað frá Kúsnetsk. í Kús-
netsk eru einnig miklar járn- og stál-
verksmiðjur, og er járnmálmurinn
fluttur þangað frá Magnítógorsk. {
sambandi við báðar þessar hráefna-
lindir eru traktoraverksmiðjurnar í
Tsjeljabínsk, járnbrautarvagnaverk-
smiðjur í Tagíl og verkfæra- og véla-
verksmiðjur í Sverdlovsk, svo að-
eins fáar séu nefndar.
Fyrir sunnan þessi iðnaðarhéruð er
Kazakstan-lýðveldið, sem geymir í
jörðu kynstur af kolum, kopar, sínki
og blýi. Hjá Karakanda eru miklar
kolanámur, og á strönd Balkassvatns-
ins hafa mestu koparverksmiðjur álf-
unnar risið upp. Iðnaður Kazakstans
er nú orðinn einn liður í framleiðslu-
kerfi Síberíu. En þar við bætist, að í
Kazakstan og öðrum Asíulöndum
Ráðstjórnarríkjanna er eitt mesta kjöt-
forðabúr landsins, og þar er baðmull
ræktuð í svo stórum stíl, að fullnægir
þörfum allra landsmanna.
Að vestan tengir miðbik Volgu hin
nýju iðnaðarhéruð Síberíu við Rúss-
land sjálft. Á eystri bakka hinnar
miklu lífæðar Rússlands stendur borg-
in Kúybísév, sem nú er orðin stjórn-
araðsetur. Það var engin tilviljun, að
þessi borg var valin til að vera
bráðabirgðahöfuðborg Ráðstjórnarríkj-
anna, þegar við sjálft lá, að Moskva
yrði nazistahernum að bráð. Kúybí-
sév liggur í þjóðbraut hinna miklu
vöru- og hergagnaflutninga frá Síberíu
og vestur á bóginn. Um Kúybísév fer
allt korn Volguhéraðanna til Moskvu
og Mið-Rússlands og til iðnaðarborg-
anna við Volgu. Ef svo skyldi fara, að
varnir Rússa brystu vestan Volgu,
mundi Hitler verða að hertaka Kúybí-
sév í næstu atrennu. Því að Kúybí-
sév er höfuðborg í nýju ríki, nýju
Rússlandi, sem risið hefur upp 4
nokkrum árum austur í víðáttum
Síberíu og Asíulanda.
Hlutverk Rússlands hins
nýja
Iðnaðarkerfi þessu er ætlað tvíþætt
hlutverk. í fyrsta lagi að verða grund-
völlur að áframhaldandi landvörnum.
ef herinn getur ekki reist rönd við sókn
fjandmannanna og öll helztu iðjuver
og varnarstöðvar hins evrópska Rúss-
lands verða hernumin. Ef svo yrði,
mundi Rauði herinn hörfa austur á
bóginn til Uralfjalla og verja hið nýja
Rússland austan Volgu.