Helgafell - 01.12.1953, Síða 15

Helgafell - 01.12.1953, Síða 15
ISLANDSFERÐ 13 flaum, sem steypist þarna fram af og dreifist, að því er virðist, í örsmáa dropa, áður en botni er náð. Þannig hagar til, að fossinn hvorki sést né heyrist fyrr en komið er að honum, en yfir honum svífur léttur úði, sem sjá má úr nokkrum fjarska. Umhverfis er allt vafið grængresi og gulum sóleyjum. Til Reykjavíkur fórum við syðri leið en við höfðum komið. Urðum við að ríða þrjár straumharðar ár og reyndust þær fulldjúpar, þótt á grynn- mgiun væri. I höfuðstaðnum bið'um við tvo daga eftir danska gufuskipinu frá Akureyri, sem er næst-stærsti bærinn — 300 íbúar — og er í norður- hluta landsins. Þegar það loksins kom, stigum við á skipsfjöl, en kvöddum áður þá fáu góðkunningja, sem við höfðum eignazt, með orounum: „Sjáumst síðar“. Það fylgir ekki mikill hugur máli í svona kveðjum! Veð'ur var hið ákjósanlegasta og skyggni gott, svo að á leiðinni út Faxaflóa gátum við virt Snæfellsjökul vel fyrir okkur. Snævi þakinn fjalls- tindurinn naut sín vel á dökkum grunni himins og hafs. Þarna í flóanum sáum við til hvalatorfu, sem lék sér í haffletinum og blés strókunum í allar áttir. Margir farþegar voru á skipinu, og ætluðu flestir til Kaupmannahafnar. Meðal þeirra voru fjórar eða fimm konur, dálítið léttúðarlega klæddar, eins og íslenzkum stúlkum er títt. Á þilfarinu var líka íslenzk refafjölskylda í stíu, bersýnilega mestu grimmdarseggir, því að færi einhver hjá, skein óð- ara í vígtennurnar. En ekki minnist ég þess, að á vegi mínum yrði hinn „standeyrði íslenzki hundur“, sem Shakespeare talar um. Einn farþeganna ætlaði til Vestmannaeyja, sem er dálítill eyjaklasi, viðbjóo’slegur útlits. Þegar skipið nálgaðist, kom bátur fram undan klett- unum, sem skyggðu á strönd aðaleyjunnar, og í honum fór maðurinn í land. Þarna er nokkur byggð, en undarlegt er að nokkur skuli eyða ævinni á þessu gróðurlausa skeri úti í Norður-Atlantshafi! Síðla næsta dags komum við í nánd við Færeyjar, en þoka huldi eyj- arnar, svo að skipstjórinn, nei, stýrimaðurinn, sem hafði skipstjórnina á hendi (skipstjórinn hafði verið skilinn eftir í Þórshöfn vegna lasleika), hægði ferðina. Brátt létu mávarnir til sín heyra og voru heldur stúrnir í rómnum. Þeir voru vissulega ekki að spóka sig þarna, heldur í ströngustu heimilisönnum. Það var okkur bending um að fara varlega. Félagi minn horfði áhyggjufullur í kringum sig, en varð svo litið upp og hrópaði: „Sko hvað er þetta?“ og ekki bar á öð'ru, þarna uppi sást þoku- laus brún á kletti, sem hlaut að vera þverhníptur sjávarhamar. En stýri- maðurinn þaut að talpípunni og kallaði: „Hálfa ferð“, og litlu síð'ar: „Fulla ferð aftur á bak“. Þarna skall hurð nærri hælum. Nú kom fiskimaður á báti, sem mjög líktist eintrjáningi villimanna, og spurði stýrimaðurinn hann, hvar við værum staddir, en ekki veit ég, hvort hann græddi mikið á því, þar sem orðaskipti þeirra fóru fram á dönsku. Og hvort sem það var ætlunin eða einungis tilviljun, þá komumst við að lokum til Klaksvíkur. Þorp þetta er nokkur lagleg en lítil hús, sem minna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.