Helgafell - 01.12.1953, Side 35

Helgafell - 01.12.1953, Side 35
GUNNAR GUNNARSSON 33 hann biður prest að koma í verð að hausti. Svo setn venja er fylgja þau Bjargshjón prestshjónunum á leið og kveðjast á heiðarbrún, en svo er sem öllum sé brugðið. Síra Björgvin biður Odd bróður sinn að bera mági sín- um þau orð, að hann kynni betur við, að Einar annaÖist sjálfur sölu gripa sinna. Oddur hvorki játar né neitar að bera þau boð, og fellur það niÖur. I lok túnasláttar fara Bjargshjónin, svo sem þau eru vön, ásamt fleirum að Valavatni. AÖkoman þar reynist ömurleg: börnin öll veik, ekkjan úr- vinda af ofþreytu og vinnucraðurinn handlama. Sent er eftir laekni, en hann fasr lítiÖ að gert. Bjargsfólk’Ö dvelst þar um tíma við heyskap fyrir ekkj- una. ..Bjargföst kom loks að efninu — spurði, hvort hann hefði engan ugg af Pví, að hún Isa litla gæfi sig svo mik- iÖ að börnum Sólrúnar. Ég ræð ekki við telpuna — það er til í henni, að vera nokkuð baldin. — Oddur anzaði ófelmtraður, að því er virtist — að krakkagreyin hefðu ánægju af sögun- um, sem hún væri að segja þeim og lesa fyrir þau: — Reyndu að fá hana hl aS gæta varúðar. Sé henni það al- Vara, að vilja hafa hana Unu litlu heim fueð sér — Eg þrábað hana, að nefna þetta ekki við þig | andvarpaÖi Bjargföst og hristi böfuðiÖ aftur og aftur, ráðalaus. ^aS er vandgert við barn, er boríS befur heim systur sína örenda, en orð- ið að skilja eftir bróðurinn á vakar- anninum, sagði bóndi meS hægðinni °S hélt leiðar sinnar að svo mæltu með reiPi um öxl. Bjargföst horfði á eftir honum, sá ann lyfta sér yfir lækinn, léttstígan. að var hluti af sjálfri henni, sem þarna gekk. Betri hlutinn. Hvernig hafði hún verðskuldað þá hamingju, að mæta einmitt þessum manni ? Allt annað skipti ekki miklu máli. Nema að bregðast honum ekki í einu né neinu og standast þaÖ, er aS höndum bæri. Til þess yrði GuS almáttugur að leggja henni lið. Þá yrði hann og að fyrirgefa henni, hvaS hún var ham- ingjusöm í nauðstaddri veröld. Það væri annað hvort, að hún færi ekki aS meina dóttur sinni, þótt ung væri, að bjarga barni úr háska! — Ef bjargað yrði.“ — Rustíkus yngri á Tindastóli hefur hætt búskap að mestu og gerzt kaup- félagsstjóri á Dalatanga, og ræður Kára úr Skuggadölum sem eiskonar gæzlumann á Stólinn, gegn nokkrum jarðarafnotum. Um haustið bregður Oddur sér að Eyri til að sækja fé Einars mágs síns, án þess aS ræða um við hann eða konu sína. Síra Björgvin verður fár viS, hefur búizt við að Einar kæmi sjálfur. Þegar heim kemur finnst einn- ig Bergþóru erindreksturinn vafasam- ur. ,,Bjargföst varp öndinni þunglega. Hún hvorki gæti né vildi lá bónda sín- um tiltektir hans, sagði hún, en æski- legra hefði sér sýnzt, að til þessa hefði ekki þurft að koma — og væri þaS þó nú um seinan: Betur, að ekki illt af hljótist. Um veturinn vinna Þrídalabændur að stauraflutningum, því að nú er ver- ið aS leggja símann um landið. ,,Tveim nóttuim eftir höfuðdag Jó- hannesar skírara var síminn opnaður almenningi til afnota og hafði ekki starfaÖ ýkja lengi, þegar smalinn frá Eindölum snemmdegis kom þeysandi í hlað á Bjargi á hesti, sem hvergi sá á þurran díl, þeirra erinda, aS boða

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.