Helgafell - 01.12.1953, Blaðsíða 18
Bertolt Brecht:
Helgisögnin
Um það, hvermg bókin Taoteking varð til
á leið Lao Tse í ntlegðina.
Sjötugnr að aldri og orðinn lúinn
af erilsamri kennslu, f>ráði bann ró,
en f>jáðin honum orðin ófugsnúin
og andbyr lifsins kjark úr honum dró.
Hann fékk sér nesti og nýja skó.
Hann bjóst í för af feðra sinna grundum
og föggum sinum niðri poka tróð:
gi-pu sina, sem hann reykti á stundum,
svo og nokkur kver, er taldi hann góð,
en léttan kost og litinn varasjóð.
Hann dalsins fegurð dreymdi og glauminn kvaddi
um drög og heiðar vegur þirra lá,
en uxinn sig við grasið ferska gladdi
og glefsaði i það svona til og frá,
því þeim lá ekkert á.
Um heiðina þeir héldu á fjórða degi
er heftir lagavörður þeirra för.
,,Tollskyldan varning?“ sagð’ann. ,,Svo er eigi“.
Sveinninn er uxann teymdi mœlti ör:
,,Hann finnur llfsins leyndardómum svör“.