Helgafell - 01.12.1953, Page 28

Helgafell - 01.12.1953, Page 28
26 HELGAFELL staðreynda. Við þurfum að eignazt staðreyndabók (source-book) íslenzkr- ar sögu. í því riti á að vera úrval heim- ilda um sögu þjóðarinnar og gerð grein fyrir því, hvernig við vitum það, sem við vitum. Síðan maetti gefa út hug- leiðingabók með yfirliti um kenningar þeirra andans manna, sem alltaf vilja barna söguna. 1 ættfræði þurfum við að eignast ættfræðirit, þar sem ein- ungis eru birtar óyggjandi ættaskrár, og í bókmenntasögunni er nauðsynlegt að halda áfram á sömu braut og Jón Helgason fetar í ritgerðinni um skáld- skapinn. Hingað til hafa fáir íslenzk- ir fræðimenn tamið sér ströng vísinda- leg vinnubrögð; þess vegna m. a. geta alls konar loddarar riðið hér húsum og orðið spámenn lýðsins. Rit Jóns Helgasonar þyrfti að koma sem fyrst út á íslenzku, til þess að áttaviltir fræðimenn eignuðust glæsilega fyrir- m.ynd við störf sín. Nú skal ég sýna þér nokkuð, sem nýtt er svo litlum kút. Við skulum ganga fram göngin og gægjast um dyrnar út. Þeir geta þröskuldinn sigrað, sem þrauka fast við sinn keip. En vertu aðgætinn, vinur, því varinhellan er sleip. Og svo koma þyngri þrautir. Sko, þetta er nú, kútur minn, hin viðsjála, stóra veröld. Æ, við skulum koma inn. Kristján Einarsson jrá Djúpalœk

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.