Helgafell - 01.12.1953, Blaðsíða 49

Helgafell - 01.12.1953, Blaðsíða 49
BÓKMENNTIR 47 línu húsfreyju, unz hún féll í ó'.r.egin, og reið loks heim að Hofgörðum til Finnboga goða. Þar drakk Starkaður brúðkaup sitt til Grírru Loftsdóttur í óleyfi Finnboga bróður hennar. Erpur og ísarr afráða þegar að fara til íslands og jafna mábn, en verða þó að bíða til vors. Fær þá Isarr föður sinn lausan undir því yfirskyni, að hann þurfi á liðveizlu hans að halda, °g siglir hann með þeim til Islands. Koi.r.a þeir við í Reykjavík og fá liðs- auka hjá Má Hamalssyni, secn nú er orðinn allsherjargoði, og einnig hjá Hallveigu systur hans, sem gift er Föfðingja austanfjalls, en ísarr hafði áður átt vingott við. Ríður nú liðið fyrst að Hofgörðum til þess að tryggja ser liðveizlu Finnboga goða, og síðan Fefst aðförin að Starkaði á Mánafelli. Verður þar harður bardagi. Starkaður Vegur Dagfer cnac Roth og heggur Fönd af Vilmundi, áður en hann fell- ur sjálfur fyrir sverði Isarrs. Eftir það horfir friðvænlega í héraði, að onnnsta kosti fyrst ucn sinn. Kvænist nu Isarr Sunnefu frá Bárðarkoti, sem raunar hefur heldur lítið komið við S°8U, en birzt eins og ljósgeisli við og við gegnum bókina alla. Ragnarök eru liðin hjá, og getur nú skáldið lokið Verki sínu. Eins og sjá cr.á af þessu lauslega a§ripi, er hér um spennandi og við- Furðaríka skáldsögu að ræða, og er Þú sjálfur söguþráðurinn cniklu flókn- ari en hér hefur verið lýst, og persón- ur fleiri. Allt er þetta gert af mikilli unnáttu, eins og við írr.átti búast af Þessum höfundi. Atburðarásin virðist sjálfsögð, þótt ævintýraleg sé, og n,annlýsingar eru ágætar — og þó annske einkum kvenlýsingar. Aðal- lnntak verksins er þó þroskasaga Is- arrs, ganga hans gegnum þokuna rauðu til bjartari heima, baráttan við hin illu öfl í umhverfi hans og hans eigin sál, og hin þrotlausa leit að skiln- ingi og kærleika. Þeirri sögu verða ekki gerð skil í stuttri grein. Hana þarf að lesa orði til orðs, og hygg ég að sá lestur verði mörgum minnisstæð- ur. Kristmann Guðmundsson gat sér ungur frægð fyrir skáldsögur þær, sem hann reit á norska tungu, enda fóru þær víðar en títt er ucn íslenzka höf- unda. Hinsvegar brestur enn nokkuð á, að Islendingum hafi í heild gefizt kostur þess að kynnast bókum þessa öndvegishöfundar á hans eigin máli. Nú mun þó senn verða úr þessu bætt og er ekki vonum fyrr. Hefur nýlega verið stofnað til heildarútgáfu á verk- um skáldsins og er þess að vænta, að henni verði haldið áfram. með verðugri rausn og myndarbrag. Mun þá almenn- ingi skiljast enn betur en áður, hver hlutur Kristmanns er orðinn í íslenzk- um nútíðarbókmenntum, og er þó cr.est um það vert, að enn er hann í stöðugri framför og vaxandi að ábyrgð- artilfinningu og mannviti. Svalt og bjart I og II — Hrímnætur Jakob Thorarensen — Helgafell 1946 og 1951. Heimsstyrjaldarárin 1914-18 marka nokkur skil í íslenzkri ljóðagerð, þótt ekki sé það neitt í líkum mæli og þær stórbreytingar, sem á þeim árum verða í erlendum bókmenntum. Hér á landi er ekki um að ræða neinar „eftir- stríðs“-bókmenntir í þeim skilningi, sem lagður er í þetta nafn erlendis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.