Helgafell - 01.12.1953, Side 55
BÖKMENNTIR
53
---------þú finnur líkt og loga í sálu
þinni
ljóma hvers kristals, skin hvers safír-
steins,
og safinn rauði, er brýzt í blómsins
krónu
og blóð þíns hjarta er eins og hrynja
eins.
---------Uen þig angar sumar þúsund
sólna
og svalur ljómi milljón vetrarstjarna
í hvítabrimi hátignar og helgi.
Þú höndlar lífs þíns mið — og sjálfs
þín kjarna.
en yfir svona kveðskap á ég ekki orð
önnur en þau, sem Austfirðingurinn
viðhafði um ræðu alþingismanns síns
á framboðsfundi: Skvaldur, skvaldur,
bara skvaldur. Og það eru fleiri kvæð.i
svipaðs eðlis í bókinni, útblásin af til-
gerðarlegum, innantómum fjálgleik.
Kvæðin Kennimaður og Höll dauð-
ans virðist mér að hefði átt að pósta
beina leið til þeirra, sem þeir er beint
til. Til annarra eiga þau lítið erndi.
Bráðsmellið er smákvæðið H. K. L.,
er byrjar svo:
Beiskur og hýr,
bitur og glettinn í senn.
Alltaf á verði og ögn til hliðar
við aðra menn.
G°tt er og það litla ljóð, er endar svo:
Skeflir ævisköflum,
skör gránar, hélar vör.
■— Hann er kaldur á köflum.
Hnattsigling er allgott kvæði, með
eim af Einari Ben. Maríubæn er ort
an þess innileika og þeirar „sancta
SlcnPlicitas“, sem réttlætt gæti kvæði
af þessum toga. Nokkuð er í bókinni
af kvæðum um konur og ást og er í
sumum þeira hreinn og innilegur tónn.
Hér hefur verið stiklað á stóru og
sagður kostur og löstur og þó meiri
löstur, enda er hér um það veigamikla
bók að ræða, þrátt fyrir allt, að hún
þolir allharða gagnrýni, gagnrýni, sem
meðfram er sprottin af gremju lesand-
ans yfir því, að maður, sem getur gert
jafn góð ljóð og þau beztu í þessari
bók skuli láta frá sér fara jafn ómerki-
legan kveðskap og það lélegasta í
henni. En hann um það.
Völuspá
Sigurbur Nordal gaf út — Önnur
prentun — Helgafell Reykjavík
1952.
Utgáfa Sigurðar Nordal á Völuspá
var fylgirit Árbókar Háskóla Islands
1922—23 og vakti þá mikla athygli,
ekki aðeins meðal kunnáttumanna og
sérfræðinga í norænum fræðum, held-
ur meðal alls lesandi almennings. Rit-
ið var gefið út sérprentað til lausasölu
í nokkrum eintökum, enda höfuðtil-
gangur útgefandans að kynna hið
aldna, fagra kvæði íslenzkri alþýðu.
Síðan eru liðin 30 ár, og nú hefur
Helgafell gefið þetta rit út á nýjan leik,
og er það bæði verðugt og nauðsyn-
legt.
Sigurður Nordal hóf að rannsaka
Völuspá meðan hann var enn að námi
erlendis. En hann hafði ekki starfað
lengi við háskólann, er hann gerði bók
úr þessum rannsóknum, ,,handa ís-
lenzkri alþýðu“, eins og hann kemst
að orði í formála að fyrri útgáfu. Auk
alls annars var Völuspá Nordals eink-