Helgafell - 01.12.1953, Side 79

Helgafell - 01.12.1953, Side 79
LISTIR 77 Prýðilega á þessu.Ti tónleikum. Blásara- kvintettinn var einnig enjög vel sam- kæfður, enda eru fyrstu blásararnir úr Sinfoníuhljómsveitinni afbragðs hljóð- faeraleikarar. Kvintettinn eftir Carl Nielsen, sem nú mun hafa verið flutt- Ur hér í fyrsta sinn, er áheyrilegt verk en fremur losaralegt í byggingu. Á síðari tónleikunui.-n léku þeir Ein- ar Vigfússon og Jón Nordal sónötu fyrir celló og píanó í g-moll, op. 5 nr. 2, eftir Beethoven, Árni Kristjánsson Pianóleikari og blásarar úr Sinfóníu- frljcwnsveitinni léku kvintett í Es-dúr, °P- 16, eftir Beethoven, og loks léku strengjahljóðfæraleikarar úr hljóm- svertinni Concerto grosso í d-moll eft’r Hándel. Þessir tónleikar voru allir '-"Ujög ánægjulegir, ekki síður en h’nir fyrri, en hámarki náðu þeir í konsert- iuum eftir Hándel. Björn Ólafsson stjornaði flutningnum og lék jafnframt fyrstu fiðlu, og varð verkið þrungið lífi og þrótti í höndum Björns og félaga f>ans. Hvorugur staðurinn, þar sem þessir tonleikar hafa verið haldnir, Listasafn ríkisins og útvarpssalurinn, er hentug- Ur til þessara nota. Forsalur listasafns- lr,s er að vísu sviphreinn og þokkaleg- Ur> en ekki hlýlegur, og hljómskilyrði eru þar ekki ákjósanleg. Hljómur í utvarpssalnum er betur fallinn til út- VarPs, en þó mjög daufur og ólífrænn, °g salurinn sjálfur er fremur óvistleg- Ur- Utvarpið er því á algerum hrakhól- urn cneð þessa tónleika eins og líka. '"neð tónleika Sinfóníuhljómsveitarinn- ar og væntanlega fleiri þætti starfsemi S1nnar. Þess er að vænta að hinn nýi utvarpsstjóri snúi sér að því af alhug a^ fá bætt úr þessum vandræðum, og þá helzt svo myndarlega, að jafnframt Verði bætt úr brýnni vöntun höfuð- borgarinnar á hentugu húsnæði fyrir tónleika yfirleitt. Tvær erlendar „menningarsendinefndir" hafa gist Island nú í haust. Frá Ráð- stjórnarríkjunum komu hingað á veg- um MÍR þrír tónlistarmenn og tveir ballettdansarar, og frá Vestur-Þýzka- landi komu á vegum félagsins Ger- mania strengjakvartett frá Flensborg og tveir píanó-leikarar. Rússnesku listamennirnir voru Vera Firsova söngkona, Rafael Sobolewski fiðluleikari, Alexander Jerokin píanó- leikari og dansararnir Israeleva og Kutsnetsov. Allt voru þetta ágætir listamenn, sem komu hér víða fram og hlutu forkunnargóðar viðtökur. En verkefni þeirra virtust yfirleitt ekki vera valin fyrir þroskaða tónlistarhlust- endur, og mun listafólkið því naumast hafa getað sýnt til fulls, hvað í því býr. En ekki verður það með réttu sak- að um að hafa haldið hinni nýju sovét- tónlist að íslenzkuma hlustendum, því að lítið heyrðist af henni á þessum MÍR-tónleikum. Þýzku tónlistarmennirnir fluttu hér á vegum Tónlistarfélagsins og í sam- bandi við þýzka myndlistarsýningu ýimis öndvegistónverk eftir hina gömlu þýzku meistara, og var tónlistarflutn- ingur þeirra traustur og virðulegur, án þess að hafa á sér sérstakan glæsibrag. Mestan fögnuð áheyrenda vakti mjög vandaður flutningur á „Silungakvint- ettinum" eftir Schubert, með aðstoð dr. Steiner, sem lék á píanó, og Einars Waage, kontrabassaleikara. Þýzki píanó-leikarinn Willy Piel hélt hér sérstaka tónleika á vegum Tónlist- arfélagsins fyrir styrktarfélega þess.

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.