Morgunblaðið - 22.08.2013, Page 8

Morgunblaðið - 22.08.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013 Reykjavík ber höfuð og herðaryfir önnur sveitarfélög. Það fer vel á því. Hún er höfuðborg landsins. Hún hefur oftast tekið það hlutverk mjög alvarlega og verið stolt af því.    Þrátt fyrir meintatogstreitu á milli þéttbýlis og dreifbýlis hafa íbú- ar landsins alls margoft sýnt hlýjan hug til borgarinnar, höfuðborgarinnar sinnar.    En andinn í borgaryfirvöldumhefur breyst til hins verra síð- ustu árin og er ekki munur á milli stjórnmálaflokka í þeim efnum. Jafnvel hafa borgarfulltrúar hreytt úr sér ónotum yfir því að aðrir en Reykvíkingar vilji leggja sínar skoðanir í púkk um ríka hagsmuni sem allir landsmenn eiga sameig- inlega.    Borgarbúar hafa þó sjálfir sýntmiklu meiri samkennd en hin- ir kjörnu fulltrúar sem eru ótrúlega einsleitir í skoðunum sínum og framgöngu.    Engar deilur eru um það að nú-verandi borgarstjóri gegni embætti sínu með öðrum hætti en helstu borgarstjórar gerðu áður. Meiri ágreiningur kann að vera um hvort hann gegni embætti sínu yf- irleitt, ef sleppt er sprelli og uppá- komum sem sumar eru orðnar þreyttar.    Illgerlegt er fyrir fjölmiðla að fáJón Gnarr Kristinsson til að svara málefnalegum spurningum um borgarmál. Síðast var hann spurður um álit á nærri 40.000 und- irskriftum um Reykjavíkurflugvöll. Jón var hvorki á þeim buxunum né kjólnum að veita svör. Við því var ekki að búast. Jón Gnarr Kristinsson Ekki á þeim buxum STAKSTEINAR MENNINGARNÓTT 24. ágúst 2013 VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR Vinir Vatnajökuls og Vatnajökulsþjóðgarður bjóða til sýningar á nýrri kvikmynd Valdimars Leifssonar um Vatnajökulsþjóðgarð. Myndin sem er styrktarverkefni Vina Vatnajökuls og Vatnajökulsþjóðgarðs er um 48 mínútna löng og fjallar hún um fegurð og fjölbreytileika þjóðgarðsins. Sýnt er á klukkutíma fresti til skiptis með lesnum íslenskum og enskum texta Fyrsta sýning kl. 12 er á ensku Síðasta sýning kl. 21 er á íslensku Myndin er sýnd í THE CINEMA á loftinu í Verbúð nr. 2, Geirsgötu 7b, við gömlu höfnina í Reykjavík. ALLIR VELKOMNIR MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR VATNA JÖKULS V IN IR PO RT hö nn un Veður víða um heim 21.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 alskýjað Bolungarvík 15 skýjað Akureyri 15 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 10 heiðskírt Ósló 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 21 léttskýjað Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 19 skýjað Glasgow 18 léttskýjað London 27 heiðskírt París 26 heiðskírt Amsterdam 22 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 22 léttskýjað Moskva 23 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 37 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 21 léttskýjað Montreal 25 heiðskírt New York 30 heiðskírt Chicago 28 léttskýjað Orlando 31 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:42 21:20 ÍSAFJÖRÐUR 5:36 21:36 SIGLUFJÖRÐUR 5:18 21:19 DJÚPIVOGUR 5:09 20:53 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Rúmlega fimmtungur Reykvíkinga sem eru nógu gamlir til að vera með ökuréttindi á ekki fólks- bifreið. Alls voru 73.668 slíkir bílar skráðir í eigu borgarbúa á síðasta ári. Því má ætla að rétt tæplega tuttugu þúsund manns hafi ekki átt fólksbíl í fyrra. Þetta er á meðal þeirrar töl- fræði sem lesa má út úr árbók Reykjavíkurborgar sem birt hefur verið á vefsíðu borgarinnar. Í henni kennir ýmissa grasa en þar má finna mikið af tölulegum upp- lýsingum um borgina. Árbókin var gefin út á prenti með hléum frá fyrrihluta síðustu aldar en hún var svo gefin út með reglulegum hætti frá árinu 1972 til 2006. Reykvíkingar eru samkvæmt nýjustu tölum 119.764 talsins og hefur þeim fjölgað lítillega á milli ára. Á síðustu tíu árunum hefur borgarbúum fjölgað á áttunda þúsund manns, eða um 6,4% frá árinu 2003. Lægstar tekjur í Breiðholti Samkvæmt þeim tölum sem er að finna í árbókinni var hinn dæmigerði Reykvíkingur með rúmar 4,4 milljónir króna í árs- tekjur árið 2008, síðasta árið sem slíkar tölur eru til um. Íbúar í póstnúmerinu 103, Háaleitis- og Bústaðahverfi, njóta mestu efn- islegu gæðanna af borgarbúum en meðalárstekjur þeirra eru þær hæstu í borginni. Íbúar í því póst- númeri voru með að meðaltali rúmar 5,6 milljónir króna í tekjur á ári miðað við árið 2008. Lægstar tekjurnar eru í Breiðholtinu, póst- númeri 111. Þar voru íbúar með rétt rúmar 3,4 milljónir í tekjur á ári árið 2008. 8% af erlendum uppruna Ýmsar upplýsingar um erlenda ríkisborgara sem búa í borginni er einnig að finna í árbókinni. Þeir eru alls 9.350 talsins í ár. Þeir eru tæp 8% borgarbúa. Langfjölmenn- astir eru Pólverjar en þeir eru alls 3.077 í Reykjavík. Þar á eftir koma Litháar en þeir eru 824. Þá eru tiltölulega fjölmennir hópar Bandaríkjamanna, Breta, Filipps- eyinga, Dana og Þjóðverja í borg- inni, eða á fjórða hundrað frá hverju landi. Flest þeirra leik- skólabarna á leikskólum borg- arinnar sem eru af erlendum upp- runaeru einnig frá Póllandi. Þau voru 264 á síðasta ári. Mannfjöldaþróun í Reykjavík frá 1901 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 19 01 19 10 20 13 20 10 19 20 19 30 19 40 19 50 19 60 19 70 19 80 19 90 20 00 Heimild: Árbók Reykjavíkurborgar Íbúar í póstnúmeri 103 eru ríkastir  Reykjavíkurborg birtir árbók sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.