Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 26

Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 26
ÍSLANDDAGAHRINGFERÐ Anna Lilja Þórisdóttir hefur umsjón með 100 daga hringferðinni. Hringurinn á eitt hundrað dögum Morgunblaðið hefur frá fyrsta út- gáfudegi, 2. nóvember 1913, kapp- kostað að flytja fréttir og frásagnir alls staðar að af landinu. Nú, þeg- ar hillir undir aldarafmæli blaðs- ins, er lesendum boðið að slást í för með blaðamönnum og ljós- myndurum Morgunblaðsins í 100 daga hringferð þeirra um landið á síðum blaðsins og á vef þess, mbl.is. Mannlíf og menning Fyrsta umfjöllunin birtist á morgun, föstudaginn 23. ágúst og þar verður mannlífi, atvinnulífi og menningu á Akranesi gerð skil. Farið verður um Vesturland og greint frá því sem fyrir augu ber og síðan er stefnan tekin áfram vestur á Snæfellsnes. Áfram verð- ur haldið og litast um á Vest- fjörðum og að því búnu er röðin komin að Norðurlandi. Síðan verð- ur farið um austanvert landið og að því loknu farið um Suðurland og Suðurnes, uns komið er á höf- uðborgarsvæðið þar sem öll sveit- arfélögin verða heimsótt. Ferðinni lýkur svo í Reykjavík. Auk mannlífsins verður brugðið upp myndum af landinu sjálfu og farnir útúrdúrar um náttúru þess eins og fólk gerir gjarnan á ferð- um sínum hringinn um landið. Sögur um allt land Áformað er að í hverju blaði verði a.m.k. ein opna um þann stað sem sóttur verður heim hverju sinni og umfjöllunarefnið er lífið og fólkið í landinu. Fjallað verður um fólk, fyrirtæki og fyrirbæri, menningu, merka staði, listalíf, sögu og náttúru. Alls staðar, hringinn í kringum landið, er fólk sem segir frá, fyrirtæki sem blómstra, verk sem þarf að vinna, hugmyndir sem verða að veruleika, saga sem eitt sinn var og sögur sem á eftir að segja. Frá þessu viljum við greina. Stórir og smáir viðkomustaðir Í hringferðinni verða nánast allir þéttbýliskjarnar landsins heimsótt- ir og ekki horft eingöngu til sveit- arfélagamarka við afmörkun um- fjöllunarinnar hvern dag. Á sumum stöðum búa aðeins nokkrir tugir manna en á þeim stærsta búa yfir eitt hundrað þúsund. Morgunblaðið hefur nú sem fyrr áhuga á öllum þessum fjölbreyttu byggðarlögum og vonast til að les- endur sláist með í för og upplifi landið á þennan einstaka hátt næstu eitt hundrað daga. Að verkefninu, sem lýkur í lok afmælismánaðarins, 30. nóvember, stendur hópur blaðamanna og ljós- myndara, en umsjónarmaður þess er Anna Lilja Þórisdóttir blaða- maður. Ábendingar um efni eru vel þegnar og tekið er á móti þeim í netfanginu annalilja@mbl.is.  Ferðalag um landið á síðum Morgunblaðsins og á mbl.is  Nær allir þéttbýlisstaðir landsins heimsóttir  Morgunblaðið mun ekki aðeins fjalla um mannlífið á 100 daga hring- ferð sinni um landið. Þannig mun blaðið til að mynda skoða sér- staklega Vatnajökulsþjóðgarð, Þing- velli og nokkrar eyjar umhverfis land- ið, þeirra á meðal Papey, Viðey, Engey, Flatey á Breiðafirði, Æðey, Vigur, Drangey og Flatey á Skjálf- anda. Sumir þessara staða eru fjöl- farnir og landsmönnum vel kunnir, aðrir eru fáfarnir og margt af því sem þar er að finna mun án efa koma les- endum skemmtilega á óvart. Morgunblaðið/RAX Úr Vatnajökulsþjóðgarði, Illuklettar og Svínafellsjökull. Náttúruperlur heimsóttar á hringferðinni Morgunblaðið/Ómar Öxarárfoss á Þingvöllum. Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is Tæki til verklegra framkvæmda Stofnað 1957 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.