Morgunblaðið - 05.10.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Á dögunum voru hjón gefin saman í
Grindavíkurkirkju, sem í sjálfu sér
er ekki í frásögur færandi, en þegar
þau voru við það að ganga úr kirkj-
unni eftir athöfnina spruttu tveir
menn á fætur, gengu að brúðgum-
anum, lyftu honum upp, báru hann
að skírnarfontinum og héldu honum
undir „skírn“ á meðan presturinn
skvetti yfir hann vatni. Þakið var við
það að rifna af, svo mikill var hlátur-
inn, að sögn brúðgumans.
„Málið er það að ég var skírður í
höfuðið á manni sem hét Jóhann Þor-
grímur. Hann var kallaður Grímsi og
þegar mamma var lítil kallaði hún
hann alltaf Issa, því hún gat ekki
sagt Grímsi. Nafnið festist við hann
og þegar ég fæddist um það leyti sem
hann dó var ákveðið að skíra mig í
höfuðið á honum, Jóhann Þorgrímur
Hallgrímsson. Þetta er náttúrlega
mjög stórt og mikið nafn fyrir lítinn
mann og ég hef alltaf verið kallaður
Issi. Eftir að ég varð eldri fór þetta
að þvælast fyrir mér, Jóhann eða
Issi, og því ákvað ég að skipta um
nafn. Það var heljarinnar vesen að
fara í gegnum mannanafnanefnd og
fleira en svo fékk ég þetta loks í
gegn.“
Til móts við óskirnar
Jóhann segir að í kjölfarið hafi
hann þurft að vinna í því að fá sr.
Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur, sem
gifti þau Hjördísi Guðmundsdóttur, á
sitt band fyrir brúðkaupið. Hann hafi
viljað verða skírður á ný og notað
þau rök að hann þyrfti að skipta um
öll skilríki vegna nýja nafnsins. „Hún
hló að mér og sagði að þetta virkaði
ekki alveg svona,“ segir hann. Hún
hafi hins vegar ákveðið að koma til
móts við óskirnar. „Við héldum þessu
leyndu á milli okkar hjónakornanna
og hennar, en ég fékk tvo fílhrausta
vini mína til þess að aðstoða okkur
við þetta og halda á mér og öll kirkj-
an hreinlega sprakk úr hlátri, þegar
þeir báru mig að skálinni og héldu
mér þar undir „skírn“. Séra Jóna
sagði að hún mætti ekki skíra mig en
hún mætti skvetta á mig þannig að
hún gerði það. Þetta var æðislegt, al-
veg eins og ég vildi hafa það. Fólkið
hló svo mikið og þetta var svo gaman.
Dagurinn gat ekki verið betri í alla
staði.“
Millinafninu var skipt út og nú
heitir matreiðslumaðurinn í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði Jóhann Issi Hall-
grímsson. Hann hélt að nafnbreyt-
ingin leysti öll vandamál í sambandi
við nafnið en annað hefur komið á
daginn. „Nú spyr fólk: hvers vegna
Issi?“
Ljósmyndir/Bjarni Sigurðsson
Nafn Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir skvettir vatni á Jóhann Issa.
Haldið undir „skírn“
í eigin brúðkaupi
Issi frekar en
of stórt nafn fyrir
lítinn mann
Brúðhjón Á leið úr kirkju.
Sigurður Ingi Jó-
hannsson, sjáv-
arútvegs- og
landbúnaðarráð-
herra, hefur sett
af stað vinnu við
samningu frum-
varps um breyt-
ingu á lögum um
stjórn fiskveiða.
Til að aðstoða
við þá vinnu hef-
ur hann sett á fót ráðgjafahóp, en
hann skipa: Karl Axelsson lögmað-
ur, Lúðvík Bergvinsson lögmaður,
Kristín Haraldsdóttir, forstöðu-
maður Auðlindaréttarstofnunar
lagadeildar HR, Arnór Snæbjörns-
son, lögfræðingur í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu, og Helga
Sigurrós Valgeirsdóttir, aðstoðar-
maður ráðherra, sem jafnframt
mun stýra vinnu hópsins.
Nýting aflaheimilda
Í fréttatilkynningu frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
segir að hópnum sé falið að vinna
„… með tillögu sáttanefndar sem
starfaði á liðnu kjörtímabili um að
samningsbundin réttindi um nýt-
ingu aflaheimilda taki við af var-
anlegri úthlutun …“, eins og segi í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar.
Sáttanefndin svokallaða, undir
forystu Guðbjarts Hannessonar al-
þingismanns, skilaði tillögum sínum
til Jóns Bjarnasonar, þáverandi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra haustið 2010. Hún var skipuð
fulltrúum allra stjórnmálaflokka á
Alþingi og helstu hagsmunaaðila.
Skýrt ákvæði um þjóðar-
eign á náttúruauðlindum
„Meginniðurstaða mikils meiri-
hluta nefndarinnar var sú að skýrt
ákvæði um þjóðareign á náttúru-
auðlindum yrði sett í stjórnar-
skrána og samningar gerðir um
nýtingu aflaheimilda. Með því væri
því slegið föstu að auðlindinni væri
ráðstafað af ríkinu í tiltekinn tíma,
gegn gjaldi og um leið væri nýting-
artíminn og ákvæði um framleng-
ingu skýr til að tryggja fyrirsjáan-
leika í rekstri útgerðarfyrirtækja.
Á þessum grunni er markmiðið
að ná niðurstöðu sem byggist á
þeirri breiðu sátt ólíkra aðila sem
náðist í starfi nefndarinnar. Fram
komu ýmis sér sjónarmið um ein-
stök atriði við útfærslu samninga-
leiðarinnar og verður leitast við að
gæta þeirra eftir því sem kostur er.
Sá hópur sem hér er greint frá mun
fjalla um samningahlutann; það er
um réttinn til nýtingu aflaheim-
ilda,“ segir í tilkynningu ráðuneyt-
isins.
Þar segir ennfremur að það séu
sameiginlegir hagsmunir allra að
ná sátt um rekstrarumhverfi sjáv-
arútvegsfyrirtækja á Íslandi; mik-
ilvægustu atvinnugrein Íslendinga.
Unnið að veiðigjaldafrumvarpi
Tryggja þurfi festu í rekstrarum-
hverfi fyrirtækja og möguleika til
að stuðla að jákvæðum vexti þeirra
fjölmörgu fyrirtækja sem með bein-
um og óbeinum hætti eigi þar mikið
undir. Samhliða þessu sé unnið að
útfærslu á gjaldtöku, með veiði-
gjöldum, fyrir nýtingu af auðlind-
inni.
„Samráð verður haft við hags-
munaaðila eftir því sem vinnunni
vindur fram og Alþingi á vettvangi
atvinnuveganefndar,“ segir loks í
tilkynningu ráðuneytisins.
sisi@mbl.is
Nýtt frumvarp samið
Nýtt frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
taki mið af tillögu sáttanefndar Ráðgjafahópur stofnaður
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór
Júlíusson, átti fund með starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Vestmanna-
eyja (HSV) í fyrradag. Ráðherra
hefur skipað starfshóp sem á að
vinna að framtíðarskipan heilbrigð-
ismála í Eyjum og á sá hópur að vera
búinn að skila af sér tillögum 15. nóv-
ember næstkomandi. Hópinn skipa:
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson og
Steinunn Sigurðardóttir fyrir hönd
ráðuneytisins og Hjörtur Kristjáns-
son og Trausti Hjaltason frá Vesta-
mannaeyjum.
„Við höfum ákveðið að hefja sam-
starf, ég og bæjarstjórn Vestmanna-
eyja, um að greina starfsemi heil-
brigðisþjónustu í Eyjum og leggja
grunn að stefnu til lengri tíma um
þjónustuna. Það er alltof snemmt að
segja til um það hvernig þessari
vinnu reiðir af,“ segir Kristján Þór.
Auk ofangreinds starfshóps hefur
líka verið skipaður annar hópur sem
á að vinna að skipulagi fæðingar-
þjónustu í Eyjum. Hann er skipaður
lækni og ljósmóður í Vestmannaeyj-
um, ljósmóður frá Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands og yfirlækni og yfir-
ljósmóður á Landspítalanum.
Kristján Þór segir þessi verkefni
sett af stað til að tryggja sem mest
öryggi og gæði heilbrigðisþjónust-
unnar í Eyjum.
Spurður hvort það komi til greina
að láta Heilbrigðisstofnun Vest-
mannaeyja standa fyrir utan fyrir-
hugaða sameiningu heilbrigðisstofn-
ana á landsbyggðinni segir Kristján
Þór það ekki á dagskránni. „Það er
ákveðinn fjöldi heilbrigðisumdæma
á Íslandi og það er stefna okkar að
það sé gert ráð fyrir að það sé ein
heilbrigðisstofnun í hverju um-
dæmi.“
Eru nú þegar á kúpunni
Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Vestmanna-
eyja, segist ekki sjá mikinn hag með
sameiningu heilbrigðisstofnana.
„Það er hægt að sameina yfirstjórn-
ina en það þarf sennilega að vera
rekstrarstjóri á hverjum stað þrátt
fyrir það. Persónulega sé ég ekki
mikinn hag í þessu eða hvernig á að
ná saman þessum 160 milljónum sem
eiga að sparast,“ segir Gunnar.
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir að framlög til HSV lækki um 85
milljónir króna á milli ára.
„Það er ekki hægt að reka þessa
stofnun af nokkru viti miðað við þau
framlög sem henni eru áætluð í fjár-
lagafrumvarpinu 2014. Við erum nú
þegar á kúpunni. Með þessum nið-
urskurði sem á að vera 2014 þá er
litla stofnunin hérna í Eyjum búin að
taka á sig 36% niðurskurð. Mér
þætti gaman að sjá þá ríkisstofnun
sem er búin að fá á sig viðlíka nið-
urskurð,“ segir Gunnar.
Skapað flótta starfsfólks
Staðan sem stofnunin er búin að
vera í undanfarin ár hefur skapað
ákaflega mikla óvissa hjá starfsfólk-
inu að sögn Gunnars og stuðlað að
flótta. „ Það hætti einn heilsugæslu-
læknir í sumar fyrir aldurssakir og
okkur hefur ekki tekist að ráða í
staðinn. Síðan er annar heilsugæslu-
læknir búinn að segja upp og sú upp-
sögn tekur gildi um áramót og lyf-
læknirinn okkar sem er í 50% starfi
hefur sagt upp frá og með áramót-
um. Skurðlæknirinn sagði upp en
það er nokkuð búið að ganga frá því
að hann verði áfram en gangi ekki
vaktir, verði bara á dagvöktum og
vinni líka á stofu og taki heilsugæslu.
Það verður ekki sólarhringsvakt á
skurðstofunni og því munu fæðingar
flytjast.“
Gunnar vonar að með tillögum
starfshópsins 15. nóvember verði
komin ákveðin festa í framtíðarskip-
an HSV og óvissunni rutt úr vegi.
Tveir starfshóp-
ar skoða HSV
Leggja grunn að stefnu til lengri tíma
Kristján Þór
Júlíusson
Gunnar K.
Gunnarsson
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is