Morgunblaðið - 05.10.2013, Side 42

Morgunblaðið - 05.10.2013, Side 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 ✝ Sveinn Björns-son fæddist á Húsavík 23. maí 1980. Hann lést af slysförum í Keldu- hverfi 28. sept- ember 2013. Foreldrar Sveins eru Ólöf Sveins- dóttir frá Krossdal, f. 24.10. 1962, og Björn Ágúst Sig- urðsson frá Garði, f. 4.4. 1955, d. 25.3. 2001. For- eldrar Ólafar: Sveinn Þór- arinsson, f. 1938, og Helga Ólafsdóttir, f. 1944. Foreldrar Björns Ágústs: Sigurður Jóns- son, f. 1919, og Jóhanna Ólafs- dóttir, f. 1927. Fósturfaðir Sveins frá þriggja ára aldri og eiginmaður Ólafar: Matthías Guðmundsson, f. 24.11. 1962. Foreldrar Matthíasar: Guð- mundur J. Pálsson, f. 1926, d. 12.2. 2008, og Salbjörg Matt- híasdóttir, f. 1929. Systkini Sveins, samfeðra, eru a) Alex- ander, f. 1989, unnusta hans er Johanna Flensborg Madsen, og b) Berglind, f. 1991. Móðir þeirra er Kristín Björnsdóttir, f. Landgræðslunni samhliða námi. Fjölskylda hans fluttist í Keldu- hverfið árið 1994. Sveinn lauk grunnskólaprófi frá Lundi í Öx- arfirði vorið 1996 og fór á vertíð í Neskaupstað veturinn þar á eftir. Hann stundaði nám við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal, Iðnskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með sveinspróf í vélsmíði frá Borg- arholtsskóla vorið 2004. Árið 2003 hlaut hann Da Vinci- styrkinn og fór í mánaðarlanga námsdvöl til Austurríkis í renni- smíði. Að loknu námi vann hann ýmis störf, t.d. hjá fiskeldisfyr- irtækinu Rifósi í Kelduhverfi. Lengst vann hann þó hjá Vél- smiðjunni Hamri á starfs- stöðvum hennar bæði innan- lands og utan. Á Þórshöfn stýrði hann uppbyggingu verkstæðis Hamars á NorðAusturlandi og var verkstæðisformaður fyr- irtækisins um þriggja ára skeið. Vorið 2011 fluttist hann heim í Árdal í Kelduhverfi og tók við búi foreldra sinna ásamt sjálf- stæðri vélsmíðavinnu. Snemma á þessu ári hóf hann einnig störf á Vélaverkstæðinu Röndinni á Kópaskeri. Útför Sveins fer fram frá Garðskirkju í dag, 5. október 2013, og hefst athöfnin kl. 14. 1961. Systkini Sveins, sammæðra: a) Guðný, f. 1982, faðir hennar: Jón Pétur Sveinsson, f. 1953. Unnusti Guð- nýjar er Reynir Ari Guðráðsson, b) Sal- björg Matthías- dóttir, f. 1989, unn- usti hennar er Jónas Þór Við- arsson og c) Björg- vin Matthíasson, f. 1992, unn- usta hans er Kristín Birna Stefánsdóttir. Fósturbróðir: Arnar Þór Arnarsson, f. 1983, sonur Kristínar Björnsdóttur, unnusta hans er Kristín Heba Gunnarsdóttir. Börn Sveins eru tvö: a) Einar Ágúst, f. 26.12. 2008, móðir: Rakel Svava Einarsdóttir, f. 21.3. 1975, og b) stúlka, f. 6. september 2013, móðir: Inga Fanney Sigurðardóttir, f. 28.9. 1982. Sveinn ólst upp í faðmi fjöl- skyldu sinnar við hefðbundin landbúnaðarstörf jafnt á Suður- landi sem Norðurlandi og stund- aði sumarstörf hjá afa sínum í Elsku Sveinn bróðir. Ég trúi ekki að þú sért farinn frá okkur. Þótt ég sé heppin að hafa átt rúm 30 ár með þér vildi ég fá svo miklu miklu meira. Ekki veit ég hvar ég á að byrja þegar ég hugsa um allar góðu minningarnar okk- ar saman. Þegar við voru pínulítil að labba kindagötuna uppi í fjalli í Fljótshlíðinni á móti krökkunum á Neðri-Þverá. Þegar við vorum í pabbaleik en ekki mömmó, því þér fannst það verða að heita það. Það átti heldur betur við þig í framtíðinni, þegar þú varst sjálf- ur pabbi og stóðst þig svo vel. Þú elskaðir að vera pabbi og kenna Einari um lífið og tilveruna. Þú vildir alltaf leiða mig þegar við löbbuðum í skólann í Skúla- garði, þótt strákarnir mættu kannski ekki sjá það. Þú varst alltaf af passa mig, sem litla stelpu, ungling og fullorðna konu. Sérstaklega þegar það kom að strákum, enginn fannst þér nógu góður fyrir mig. Einn af uppáhaldstímanum mínum var líka þegar við bjugg- um saman í kjallaranum í Lerki- hlíðinni. Okkur fannst svo gaman að halda heimili saman, skiptumst á að elda, sjá um þvott og að þrífa, sambúðin gekk svo „smurt“. Við elskuðum að fá fólk í heimsókn og spila saman. Síðan vorum við dug- leg að kíkja út á lífið saman og skemmtum okkur alltaf konung- lega. Afskaplega fannst mér erfitt að vera svona langt frá þér síðustu sex árin þegar ég bjó í Bandaríkj- unum og fá bara að sjá þig einu sinni á ári. Við vorum búin að plana tíma saman núna í október, því þá yrði ég í vetrarfríi í vinnunni. Þá ætluðum við að eiga tíma saman og vinna upp tapaða daga. En núna er þetta svo erfitt, ég er búin að vera á landinu í rúm- an mánuð, en var samt ekki búin að sjá þig og knúsa þig. Þetta kennir manni að vera ekki að bíða með hlutina, ég hefði átt að bruna norður strax og ég kom. Elsku bróðir, ég trúi ekki enn að þú sért farinn, held ég nái því aldrei. Manstu þegar við fórum alltaf með allar fjórar bænirnar og góða nótt-rununa okkar í kojunum? Mamma og pabbi sögðu: það má ekki tala saman eftir bænirnar, við þurftum alltaf að fara með bænirnar 4-5 sinnum á hverju kvöldi, því alltaf fórum við að tala … eða ég fór alltaf að tala. Þú varst alltaf jafn samviskusamur: „Jæja, Guðný mín, þú talaðir, nú þurfum við að segja þetta allt aft- ur.“ Eins og við enduðum alltaf fyrir svefninn: Góða nótt, dreymi þig vel, sofðu rótt í alla nótt og góða nótt. Þín litla systir, Guðný. Það er skrýtið að kveðja nú góðan vin og bróður sem átti lífið framundan. Fyrir tæpum fjórum árum bauð Sveinn okkur að koma í heimsókn í Árdal og okkur sem búum á mölinni þótti þetta frá- bært tækifæri, að komast í sveit- ina og þögnina í Kelduhverfi. Það var einstaklega skemmtilegt að heimsækja Svein í Árdal, hann var mjög fróður um umhverfi sitt og fræddi okkur um landbúnað, náttúruna, refaveiðar og sam- félagið í Kelduhverfi sem var hon- um svo kært. Sveinn var mörgum kostum búinn, hann hafði frjóa hugsun og var þeim hæfileikum gæddur að geta framkvæmt hugmyndir sín- ar enda góður handverksmaður. Hann var vinur vina sinna, dug- legur, skemmtilegur og hafði góða nærveru. Sveinn var einfald- lega góður maður. Sveinn átti marga að, hann átti stóra fjölskyldu, marga vini og tvö börn sem hann elskaði svo heitt. Harmur margra er mikill og ljóst að andlát Sveins skilur eftir sig stórt skarð í hjörtum svo margra. Við sendum börnum Sveins og öllum þeim sem nú eiga um sárt að binda vegna skyndilegs fráfalls hans okkar dýpstu samúðar- kveðjur og vonum að minning hans lifi um ókomna tíð. Arnar Þór Arnarsson og Kristín Heba Gísladóttir. Þegar pabbi hringdi í mig kl. hálfníu á laugardagsmorgni heyrði ég strax að það var eitt- hvað mikið að. Aldrei hvarflaði þó að mér að fréttin væri að Sveinn Björnsson væri dáinn. Hve ósanngjarnt getur það verið? Ég mun aldrei skilja hvernig brott- farardagur okkar er valinn en tek undir orðin að þeir deyi ungir sem guðirnir elska. Það bara hlýtur að vera þannig. Elsku hans er ekki erfitt að skilja þegar kemur að Sveini, hann var einfaldlega þann- ig að ekki var annað hægt en að þykja vænt um hann. Alltaf bros- andi, jákvæður og hjálpsamur, jafnvel þó að margt virtist vinna gegn honum. Sveinn var svo sann- arlega gull af manni og alveg ein- stakur húmoristi. Sá eiginleiki kom strax í ljós hjá honum sem barni því uppátæki hans voru með ólíkindum ég gleymi aldrei þegar hann ca. fimm ára límdi uppá- haldslímmiðana sína á fyrsta bíl- inn sem ég eignaðist, mér til ama en þó nokkurrar kátínu sitja þess- ir miðar enn á bílnum þrátt fyrir að hann sé kominn á haugana fyr- ir löngu. Auðvitað var þetta vel meint hjá barninu, þetta voru jú límmiðar með Batman. Það var óhemjugaman að spjalla við hann um lífið og tilveruna hvort heldur sem var í síma, á netinu eða í eigin persónu og hann hafði skoðun á öllu og vildi allt bæta. Hann hafði alltaf nóg fyrir stafni og var í orðsins fyllstu merkingu „með mörg járn í eldinum“. Hann var mikill fjölskyldumaður og var óendanlega stoltur af Einari og litlu dótturinni sem hann var nýbúinn að eignast og nú er það hlutverk okkar sem eftir lifum að halda minningu hans á lofti og leyfa börnunum hans að kynnast honum í gegnum það sem við kennum þeim. Alls staðar sem Sveinn kom átti hann auðvelt með að eignast vini og hélst á þeim all- ar götur og þrátt fyrir að þessi jarðvist hans teldi aðeins 33 ár fór hann víða. Alltaf leitaði hann þó aftur til rótanna og hvergi vildi hann vera annars staðar en í Kelduhverfinu. Hann elskaði úti- veru sama í hvaða formi hún var, bústörfin, hestastússið og enda- lausar veiðar af öllum gerðum og ég vil taka undir orð vinar hans sem óskaði þess að „hvar sem hann væri núna þá væru vonandi öll tún svört af gæs, tófur um allt, kjarrið iðandi af rjúpu og allt löðr- andi í kindum“. Brot úr kvæðinu „Næturferð á gamla Rauð“: Fjallakyrrðin alúð elur andvörp fjöldans þögnin telur. Mig og hest í faðmi felur friðsæl nóttin hljóð og djúp. Fölvir svipir fyrri tíða fram úr myrkrum tímans líða hlýt ég lífsins lögum hlýða, lundin verður mild og gljúp. Glatt er þeim sem góðhest ríður, glasið tæmist, nóttin líður, niður brekkur tifar tíður tryggi gamli hesturinn. Sveitin fagnar ferðalöngum föl á svip með bleikum vöngum. Okkur báða traustum töngum tók hún snemma Rauður minn. Hér ert þú í heiminn borinn, hérna lékstu þér á vorin, okkar beggja æskusporin eru hér í hverri laut. Við höfum báðir ævi alla alið milli sömu fjalla. Nú fer sumri og sól að halla senn á enda gleði og þraut. (Þórarinn Sveinsson (Vopni.) Innilegar samúðarkveðjur til allra sem eiga nú um sárt að binda. Kveðja Ingveldur og fjölskylda. Elsku frændi. Mér finnst lífið sannarlega óréttlátt núna. Ég hef satt að segja ekki samþykkt ennþá að þú sért farinn. Á sunnu- daginn ætlaði ég einfaldlega að hringja í þig og segja þér að hætta þessari vitleysu. Síðustu dagar hafa einkennst af leiða og reiði. Mér finnst erfitt að kyngja því að þú sért farinn svona snemma úr partíinu og ég fái ekkert að hitta þig aftur í svo óskaplega langan tíma. Ég hef verið að rifja upp minn- ingar af þér og tímunum sem við eyddum saman. Það sem er svo magnað við það er að ég á enga neikvæða minningu um þig. Ég reyndi! Jafnvel þótt við ynnum saman, gengjum fleiri kílómetra saman hlið við hlið einhvers stað- ar í óbyggðum og negldum girð- ingar í marga klukkutíma, þá var alltaf gaman og alltaf eitthvað að ræða. Þegar umræðuefnið var bú- ið þá sungum við jafnvel. Þú hafð- ir svo þægilega nærveru sem von- andi einhver fær að njóta núna. Mínar allra uppáhalds minningar (sem eru í raun óteljandi) eru frá vetrunum þegar við vorum tvö eftir í sveitinni og fórum gjarna í „road trip“ á Saabinum. Í honum voru engar græjur svo við tókum bara segulbandstækið mitt, sett- um í það rafhlöður og höfðum á milli sætanna. Eins hvað þú þreyttist aldrei á að segja nýju fólki söguna af því þegar þér tókst að skrökva að mér að það væri pitsuskáli uppi á Þeistareykjum og vildir ekki lána mér pening fyr- ir pitsu, sem og þau skipti sem þú stóðst á planinu heima hjá þér og kallaðir og kallaðir á mig í anda Herberts Guðmundssonar „Svar- aðu – Kallinu – Frá mééééééér!“ og ég stóð á planinu heima hjá mér og heill rútufarmur af útlend- ingum glápti á þennan athyglis- verða samskiptamáta. Ég svaraði þér auðvitað. Þinn sterkasti eiginleiki var já- kvæðni og óbilandi bjartsýni. Einu sinni var ég að barma mér yfir verkefni sem ég hafði tekið mér fyrir hendur og fannst mér ofviða og sagði þér af því. Þú mátt vita að svarið sem þú gafst mér þá hefur verið mitt lífsmottó æ síðan. Þú varst minn ráðgjafi og trún- aðarvinur, sást til að mér leiddist aldrei og kenndir mér að krefj- andi aðstæður væru tækifæri til að sanna sig. Ég fann þig uppi í skemmu sunnan við veg í sumar. Þú heyrð- ir ekki í mér þegar ég kom inn og það fyrsta sem ég sagði var „Djöf- ull er heitt hérna!“ og þú mættir mér með hlátri. Þannig mun ég alltaf minnast þín. Kæri vinur, takk fyrir að hringja bara til að heyra í mér. Takk fyrir að gefa þér tíma til að hittast þó að mikið væri að gerast. Takk fyrir að hafa aldrei ávítt mig þegar ég klúðraði heldur gefið mér ráð í staðinn. Ég rölti svo með þér síðustu metrana í dag. Ríkey. Það var mikið reiðarslag laug- ardagsmorguninn fyrir viku er fréttir bárust af því að Sveinn frændi Björnsson í Árdal hefði látist þá um morguninn í bílslysi. Það var nóg framundan hjá Sveini þennan dag enda göngur í Keldu- hverfi. Og það voru bjartir tímar framundan. Sveinn eignaðist dóttur fyrir fáum vikum, fé kom vel undan fjalli, hann var ánægð- ur í vinnunni á Kópaskeri. En skyndilega var hann á brott kall- aður og í dag fylgjum við til grafar frænda kærum. Sveinn Björnsson var góður drengur og ættarsómi. Hann átti tvö börn, nýfædda stúlku og fjög- urra ára dreng sem hann naut að hafa hjá sér og var afar stoltur af. Sveinn var traustur og raungóður vinur enda ávann hann sér vina- hylli sem meðal annars sést á fjölda fallegra tregafullra kveðja á fésbókarsíðu hans. Sveinn var gamansamur. Ég minnist þess að strax þegar hann var lítill drengur færðist glettn- isvipur yfir andlit hans á góðri stundu, svipur sem brá fyrir alla ævi hans. Sveinn var fróður, skemmtileg- ur og viðræðugóður, aldrei kom maður að tómum kofunum hjá honum. Ljóslifandi er minningin frá okkar síðasta fundi á hlaðinu í Árdal. Ég kom við til að kveðja hann eftir stutta heimsókn í Hverfið. Við spjölluðum og áður en við vissum af var liðinn hálf- tími. Hundur hans orðinn leiður á að fá ekki athygli og drengirnir mínir orðnir óþolinmóðir að kom- ast af stað enda sáu þeir að við myndum ekki ljúka spjalli okkar sjálfviljugir. Ræddum við allt milli himins og jarðar, veiðar, Keldhverfunga, pólitíkina, bú- skap og margt fleira. Mér fannst hann minna mig á afa sinn og nafna Þórarinsson í Krossdal sem í dag syrgir elsta barnabarnið sitt. Líkt afa sínum var Sveinn vel að sér, fór ekki í grafgötur með skoðanir sínar og hafði gaman að því að skiptast á skoðunum. Og líkt afa sínum var hann vel máli farinn og áhugamálin spönnuðu vítt. Náttúran, fólkið, samfélagið, dýralíf, veður, gróður og svo mætti lengi telja. Sveinn var mikill dugnaðar- forkur svo eftir var tekið. Oft ræddum við ættingjar hans fyrir sunnan hvernig honum tækist að finna tíma fyrir allt sem hann sinnti. Hann var bóndi í Árdal með vel á annað hundrað fjár, geitur, hesta, hænur og vann auk þess á verkstæði á Kópaskeri. Um tíma rak hann líka ferðaþjón- ustu. Hann var jafnframt rómuð og iðin refaskytta og eyddi ómældum tíma í að reyna að halda niðri refastofninum í Keldu- hverfi og þar um kring. En það var við ramman reip að draga. Ekki síst vegna þess að þær eiga gott skjól í þjóðgarðinum í Jök- ulsárgljúfrum eins og hann þreyttist ekki á að benda á í bloggi sínu. Og já, hann hélt lengi vel úti bloggsíðu þar sem hann sagði ekki einungis frá veiðum sínum heldur miðlaði geysimikl- um fróðleik um refi og lifnaðar- hætti þeirra svo að menn gætu lært meira um þetta elsta spen- dýr Íslands og þann skaða sem það getur valdið sé stofninum ekki haldið í skefjum. Hann var einnig virkur í að reyna að hafa áhrif á stjórnvöld landsins og reyna að fá þau til að beina frekari miðlum í baráttuna við refinn. Raunar koma margir af kostum Sveins fram á bloggi hans. Eljan, iðnin, baráttugleðin, húmorinn, greindin og góð tök hans á ís- lenskri tungu. Sveinn var mikill Keldhverf- ungur eins og títt er um fólk sem þangað á ættir að rekja og hefur alist þar upp, þó að ekki sé nema að hluta. Fegurð Kelduhverfis höfðaði til hans og undi hann sér við veiðar suður í heiði og útreið- artúra með ánni. Hoggið er stórt skarð í frænd- garðinn. Kelduhverfi hefur misst einn af sínum bráðduglegu sonum og verður þar nú fátæklegra þeg- ar maður vitjar þess. Ættingjar og vinir Sveins eru harmi slegnir. Í dag safnast þeir í Garðskirkju til að kveðja frænda. En við munum ekki aðeins syrgja góðan dreng. Við munum minnast harðduglegs og trausts vinar og þakka árin sem við fengum með honum og ávextina sem hann lét eftir sig. Börnum Sveins, foreldrum, systkinum, ömmum, öfum og öðr- um nánum vinum og ættingjum vottar fjölskylda mín sína dýpstu samúð. Þórður Þórarinsson Við fæddumst með 40 daga millibili, börn bræðra. Við ólumst ekki upp við mikinn samgang, enda bjuggum við bróðurpart æskunnar á sitthvoru landshorn- inu. Stundirnar sem við áttum saman voru þó alltaf gæðastundir og aldrei feimni eða hik, heldur gleðin ein sem réð ríkjum. Við gátum spjallað um allt og ekkert tímunum saman, og þegar um- ræðuefni þraut, var þögnin ekki óþægileg. Mér er minnisstæð vikan sem við vorum saman hjá ömmu og afa í Garði, deildum herbergi uppi á lofti og spjölluðum langt fram eft- ir, kvöld eftir kvöld. Og hvað ég saknaði hans þegar hann fór aft- ur. Eftir strokutilraunina frægu heimsótti ég hann líka á sjúkra- húsið daglega og við bara sátum saman, stundum svaf hann, stundum spjölluðum við. Nærver- an hans var stór og kærleiksrík. Við hittumst oftar á unglings- árunum, enda styttri vegalengdin á milli okkar þá. Áhugamálin voru ekki þau sömu, en við áttum sam- leið engu að síður. Eitt kvöldið var hringt og svo komu tveir vinir, Sveinn og Að- alsteinn, og sóttu mig til að rúnta fyrir sig. Það kvöld er mér helst minnisstætt fyrir gleði og mikinn hlátur. Þegar pabbi hans dó sagði ég við Svein að hann væri miklu frekar bróðir minn en frændi. Þannig var það bara. Bróðir sem ólst upp hjá annarri fjölskyldu. Síðustu 5 árin spjölluðum við nokkrum sinnum símleiðis. Það voru sjaldan stutt símtöl, um allt og ekkert, lífið, dauðann, sveitina, búskap, refaveiðar, peninga og börnin okkar. Síðasta símtalið okkar á milli var í apríl, stuttu eft- ir afmælið mitt. Endann á því samtali mun ég verða ævinlega þakklát fyrir og geyma í hjartanu um aldur og ævi. Fáir á okkar aldri bera jafn gott skynbragð á náttúruna, dýr og menn, og Sveinn. Hann var mikil refaskytta og vann lengi við landgræðslu. Bústörfin gengu Sveinn Björnsson Davíð úrfararstjóri Jóhanna guðfræðingur útfararþjónusta Óli Pétur úrfararstjóri Sími 551 3485, svarað allan sólarhringinn. Vefsíða www.udo.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.