Morgunblaðið - 05.10.2013, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Átök blossuðu upp í Kaíró í gær eftir að stuðningsmenn
Mohammeds Morsi, fyrrverandi forseta Egyptalands,
efndu til götumótmæla og reyndu að komast inn á
Tahrir-torg. Hermenn hleyptu af byssum og beittu
táragasi gegn mótmælendum í miðborginni. Fjölmennt
lið hermanna var þar til að hindra að mótmælendurnir
kæmust á torgið. Læknir á staðnum sagði að minnst
einn mótmælandi hefði beðið bana og margir særst.
Átök blossuðu upp í tveimur öðrum hverfum Kaíró og í
hafnarborginni Alexandríu.
AFP
Hörð átök á götum Kaíróborgar
Ítalir syrgðu í gær um 300 afríska
flóttamenn sem óttast er að hafi far-
ist þegar bátur þeirra sökk í Mið-
jarðarhafi nálægt ítölsku eyjunni
Lampedusa í
fyrradag.
Talið er að 450-
500 manns hafi
verið í bátnum
sem var á leiðinni
til Ítalíu frá borg-
inni Misrata í
Líbíu. 155 flótta-
mönnum var
bjargað, þeirra á
meðal 40 ung-
mennum á aldr-
inum 14 til 17 ára og sex konum. 111
lík hafa fundist, að sögn ítalskra
yfirvalda í gær.
Lýst var yfir þjóðarsorg á Ítalíu í
gær vegna þessa hörmulega atburð-
ar. Flaggað var í hálfa stöng víða í
landinu og flóttafólksins sem dó var
minnst með mínútu þögn í skólum.
Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu,
hvatti þingið til að breyta laga-
ákvæðum sem fæla fólk frá því að
hjálpa flóttamönnum að komast til
landsins og fela í sér að þeir sem
bjarga þeim úr bátum í Miðjarðar-
hafi eiga yfir höfði sér refsingu.
Stjórn Ítalíu óskaði eftir aukinni
aðstoð frá Evrópusambandinu við að
hafa eftirlit með bátum sem sigla
með flóttafólk inn í lögsögu landsins.
Fórnar-
lömbin
syrgð
Ítalir óska eftir
aukinni aðstoð ESB
Flóttafólk í
Lampedusa.
Norska ríkissjónvarpið hefur verið
duglegt við að sýna ýmsa hvers-
dagslega viðburði í beinni útsend-
ingu og hyggst nú gera Norð-
mönnum kleift að fylgjast með
fimm tíma prjónaskap í beinni.
„Þetta er svolítið hversdagslegt
sjónvarpsefni en mjög hægt, þótt
þau ætli að prjóna eins hratt og þau
geta,“ hefur fréttaveitan AP eftir
Rune Møkleburst, stjórnanda út-
sendingarinnar. Markmiðið er að
slá heimsmet með því að prjóna í
samfellt fjórar klukkustundir og 50
mínútur. Áður hafði sjónvarpið
m.a. sýnt eld brenna út í beinni út-
sendingu í nokkrar klukkustundir.
Fimm tíma prjóna-
skapur í beinni
NOREGUR
Nefnd öldunga-
deildar ítalska
þingsins sam-
þykkti í gær að
leggja til að Silv-
io Berlusconi,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Ítalíu, yrði svipt-
ur þingsæti. Öld-
ungadeildin á að
greiða atkvæði um tillöguna síðar í
mánuðinum.
Nefndin samþykkti tillöguna eft-
ir að hæstiréttur landsins staðfesti
fangelsisdóm yfir Berlusconi fyrir
skattsvik í tengslum við fjölmiðla-
veldi hans. Dómstóll ákveður síðar
hvort Berlusconi verður gert að
sinna samfélagsþjónustu eða taka
dóminn út í stofufangelsi í eitt ár.
Vill svipta Berlu-
sconi þingsæti
Silvio Berlusconi
ÍTALÍA