Morgunblaðið - 05.10.2013, Side 12
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Í ár eru hundrað ár liðin frá því að
jólamerki Thorvaldsensfélagsins var
gefið út í fyrsta sinn. Félagið, sem
var stofnað árið 1875, stofnaði árið
1906 sérstakan Barnauppeldissjóð,
sem hafði það að markmiði að koma á
fót uppeldisstofnun fyrir umkomu-
laus og fátæk börn, og jólin 1913 öðl-
aðist félaginu ný tekjulind þegar út-
gáfa jólamerkjanna var hafin, eftir
fyrirmynd frá Caritas-samtökunum í
Kaupmannahöfn. Thorvaldsenskon-
ur, sem í dag eru
um hundrað tals-
ins, hafa haldið
vel utan um sögu
jólamerkisins,
sem hefur vakið
áhuga safnara hér
heima og erlend-
is, og um helgina
efna þær til sýn-
ingar í Ráðhúsi
Reykjavíkur í til-
efni aldarafmælis
merkisins. „Það er mjög merkilegt
að svona félag, sem er fyrst og fremst
að vinna að góðgerðarmálum, hafi
eignast svona stórmerkilegt safn og
að saga merkisins sé óslitin,“ segir
Anna Birna Jensdóttir, formaður
Thorvaldsensfélagsins, en á þessum
hundrað árum hafa aðeins ein jól liðið
án þess að merkið væri selt, árið
1917, þegar skipinu sem flutti upp-
lagið til Íslands var sökkt.
„Konurnar fengu í lið með sér
þekktustu listamenn samtímans á
hverjum tíma og margir þeirra hafa
lagt málefninu lið aftur og aftur. Og
það sem er svo skemmtilegt við þessa
sýningu er að þeir hafa svo margir,
nærri helmingur, gefið frummynd-
ir,“ segir Anna.
Selja merki fyrir milljón
Listaverkið sem prýðir merkið í ár
heitir Tré Jesaja og er eftir Baltasar
Samper. Allur ágóði af sölu þess mun
renna til Reykjadals, sumarbúða á
vegum Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra, en mynd Baltasars mun
jafnframt prýða jólakort Thorvald-
sensfélagsins, sem verða seld til
styrktar sykursjúkum börnum. Anna
segir ágóðann af sölu jólamerkisins
jafnan hafa verið yfir einni milljón
króna en félagið veitir árlega styrki
fyrir um 8-12 milljónir. Þeir hafa á
nýliðnum árum m.a. runnið til
Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins
og verkefna í þágu barna með ein-
hverfu, en Thorvaldsensfélagið hefur
lagt áherslu á að styrkja málefni sem
hafa lítið verið í sviðsljósinu.
„Félagið hefur margar
tekjulindir og bas-
arinn okkar við
Austurstræti 4
hefur náttúrlega
verið á sama stað í
áraraðir og selur
mikið af íslensku
handverki. Hann
gengur mjög vel,
núna í allri þessari
fjölgun á ferðamönn-
um og við höldum
dampi í því að vera
með vörur sem eru í
tísku,“ segir Anna og
nefnir neonlitar lopa-
vörur sem dæmi.
Fengu í lið með sér þekkt-
ustu listamenn samtímans
100 ár eru frá því að jólamerki Thorvaldsensfélagsins var gefið út í fyrsta sinn
Málefni Barnauppeldissjóður veitti í sumar styrk til þróunar á snjallsímaforriti í leikjaformi sem er ætlað að hjálpa
ungu fólki að bæta heilsu sína. Ein af tekjulindum sjóðsins er sala á sívinsælu bókinni um Karíus og Baktus.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Biblían er án efa ein merkasta bók allra tíma.
Hún er til á flestum heimilum og hefur orðið
þúsundum til mikillar blessunar öldum saman.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að
fræðast um veigamikil efni hennar.
Átta fyrirlestrar verða haldnir um eftirfarandi
efni á þriðjudögum kl. 20.00 í Loftsalnum,
Hólshrauni 3, Hafnarfirði (Við Fjarðarkaup).
Fyrsti fyrirlesturinn verður fluttur þriðjudaginn
8. október.
Hvað segir Biblían um:
1. Hvernig Biblían varð til?
2. Áreiðanleika Biblíunnar?
3. Hver Jesús Kristur sé?
4. Helgidóminn, fagnaðarerindið í
myndmáli?
5. Starf Jesú Krists í dag í hinum himneska
helgidómi?
6. Pétur og lyklavaldið?
7. Endurkomu Jesú Krists?
8. Sköpun nýs himins og nýrrar jarðar?
Námskeiðið er öllum opið og ókeypis.
Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða.
Björgvin Snorrason PhD, guð-
fræðingur og kirkjusagnfræðingur flytur
fyrirlestrana. Hann hefur flutt fyrirlestra
um þessi efni hér á landi og erlendis
um árabil.
Tími endurkomu
Krists er í nánd
Biblíunámskeið
Um 950.000 gestir hafa komið í tón-
listar- og ráðstefnuhúsið Hörpu það
sem af er ári, samkvæmt tölum frá
Huldu Kristínu Magnúsdóttur, að-
stoðarmanni forstjóra.
Af þessu má ráða að útlit sé fyrir
að talsvert fleiri komi til með að
sækja Hörpu heim í ár en í fyrra,
því allt árið 2012 komu
1.011.000 manns í húsið.
Til viðmiðunar komu 775.000
gestir fyrstu níu mánuði ársins
2012.
Hulda Kristín sagði nokkrar
ástæður liggja að baki aukning-
unni. „Það hefur orðið mikil aukn-
ing á ráðstefnusviði, sem gengur
mjög vel hjá okkur, auk þess sem
húsið er í auknum mæli áningar-
staður ferðamanna. Þar að auki
vann Harpan Mies van der Rohe-
verðlaunin, ein virtustu bygging-
arlistarverðlaun heims,“ en 350
byggingar frá 37 Evrópulöndum
voru tilnefndar til þeirra.
gunnardofri@mbl.is
Gestum í Hörpu
fjölgar milli ára
Eldborg Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur
heimkynni sín í Eldborg, aðalsal Hörpu
Uppi varð fótur og fit í verslun Krón-
unnar í Vallakór í Kópavogi í gær-
morgun þegar þar fannst um það bil
20 cm langur kornsnákur. Telpa í
fylgd móður sinnar varð fyrst vör við
snákinn. Að sögn Gunnhildar Svein-
bjarnardóttur, móður stúlkunnar, var
henni og barninu mjög brugðið við
uppákomuna.
Meindýraeyðir var kallaður í versl-
unina sem hafði hendur í hári snáks-
ins og aflífaði hann.
Í tilkynningu frá Krónunni kemur
fram að öllu grænmeti og ávöxtum í
versluninni hafi verið skipt út eftir að
snákurinn fannst. Þar er atvikið jafn-
framt harmað og sagt að ítarleg at-
hugun á því hvernig snákurinn rataði
í verslunina hafi verið sett af stað.
Öryggisdeild fyrirtækisins hafi far-
ið í gegnum myndir úr öryggis-
myndavélum verslunarinnar til að
reyna að bregða ljósi á uppruna dýrs-
ins.
Snákurinn Kornsnákur er bandarísk tegund sem getur mest orðið 1,5 metr-
ar að lengd. Þeir eru kyrkislöngur og lifa aðallega á litlum nagdýrum.
Kornsnákur skreið
um ganga verslunar
Flóttamannaskýli verður slegið upp
á Skólavörðustíg í dag þar sem
fólki gefst tækifæri til að kynna sér
aðstæður sem fjölmargar flótta-
mannafjölskyldur búa við. Það er
Rauði kross Íslands (RKÍ) sem
stendur fyrir viðburðinum en tekið
verður við framlögum í Sýrlands-
söfnun félagsins á staðnum.
Auk þess ætla sjálfboðaliðar
Rauða krossins að koma sér fyrir í
Kringlunni og Smáralind til að
vekja athygli á neyðinni í Sýrlandi
og hjá því flóttafólki sem hefst við í
nágrannalöndum þess. Þeir ætla að
safna fé og kynna verkefni Rauða
krossins í þessum löndum.
RKÍ hefur frá því í ágúst útvegað
fjármagn til að reka færanlegar
læknastöðvar í Líbanon sem fara á
milli þorpa og flóttamannabúða og
veita brýna læknisaðstoð. Þá styður
RKÍ neyðaraðstoð alþjóðadeild-
anna í Sýrlandi.
RKÍ kynnir fólki að-
stæður flóttamanna
Fjallkonan prýddi fyrsta jólamerki
Thorvaldsensfélagsins, sem kom
út 1913, en myndin var eftir Bene-
dikt Gröndal Sveinbjarnarson,
skáld og náttúrufræðing. Meðal
annarra listamanna, teiknara og
grafískra hönnuða sem hafa gefið
verk á jólamerkin má nefna Ásgrím
Jónsson, Einar Jónsson, Jóhannes
S. Kjarval, Nínu Tryggvadóttur,
Ágústu Pétursdóttur Snæland og
Tryggva Magnússon, en verk eftir
hann hafa prýtt jólamerkin átta
sinnum.
„Jólamerkin hafa jafnan haft
fallegan boðskap tengdan jóla-
haldinu: kærleika, frið, ljós og von,
móður og barn, og efni sem endur-
speglar þjóðarstoltið, náttúru Ís-
lands, s.s. fugla og blóm. En saga
jólamerkjanna 100 sem nú hafa
komið út er einnig saga
þess markverðasta sem
gerðist þessi 100 ár,“
segir í samantekt Önnu
um jólamerkin.
Í tilefni af 100 ára af-
mæli jólamerkjanna
auglýsir Barnauppeld-
issjóður eftir umsókn-
um um 2 milljóna
króna styrk í þágu
velferðarmála barna
og ungmenna en
sýningin í Ráðhúsi
Reykjavíkur verður
opin frá kl. 12-18 í
dag og á morgun.
Fallegur boðskapur jólanna
og íslensk saga og náttúra
JÓLAMERKI THORVALDSENSFÉLAGSINS
Anna Birna
Jensdóttir