Morgunblaðið - 05.10.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.10.2013, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Brynjar Smári Rúnarsson hefur verið ráðinn mark- aðsstjóri Póstsins. Brynjar er við- skiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og er með meistarapróf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Hann starfaði áður sem markaðs- sérfræðingur í markaðsdeild Póstsins. Markaðsstjóri Póstsins Brynjar Smári Rúnarsson ● Útflutningur í september 2013 var fob 55,5 milljarðar króna og innflutningur fob 46,7 milljarðar króna. Vöruskiptin voru því hagstæð um 8,8 milljarða króna skv. bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Vöruskipti hagstæð um 8,8 milljarða króna Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Fjárfestingarfélagið Stekkur, sem er í eigu Kristins Aðalsteinssonar, fyrr- verandi útgerðarmanns, gaf nýverið út 369 milljóna króna skuldabréf til þess að koma með erlendan gjaldeyri til landsins í skiptum fyrir krónur. Félagið nýtti sér fjárfestingarleið Seðlabankans sem veitir um 20% af- slátt af krónum miðað við skráð gengi gegn því að fjárfest verði hér á landi í lengri tíma. Stekkur hóf að fjárfesta hér á landi árið 2009 og á hlut í þremur fyrir- tækjum: MP banka (1,7%), Securitas (34,4%) og Límtré-Vírneti (41,3%). Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins horfa stjórnendur Stekks til þess að fjárfesta í stöndugum fyrirtækjum með góða rekstrarsögu eða fasteign- um. Skýrt er tekið fram á heimasíðu fyrirtækisins að það leggi hvorki fé í nýsköpun né sprotafyrirtæki. Stekkur skipar stjórnarmenn þar sem það hefur hagsmuna að gæta. Kristinn situr í stjórn Securitas en Guðlaug dóttir hans situr í stjórn Límtrés-Vírnets og Júpiters, dóttur- félags MP banka sem annast rekstur fjárfestingarsjóða. Hér á landi eru gjaldeyrishöft og því getur það reynst erfitt að skipta íslenskum krónum í erlenda mynt til þess að nýta annars staðar í heim- inum. Til þess að reyna að stuðla að því að fjárfestar sjái hag sinn í því að koma með erlent fé til landsins og fjárfesta – en það er ekki sjálfið að hægt sé að breyta þeim krónum aftur í erlenda mynt – var komið á fót svo- kallaðri fjárfestingarleið Seðlabank- ans. Hún gengur út á að fjárfestar komi með gjaldeyri til Íslands, skipti honum fyrir krónur og fjárfesti hér á landi til lengri tíma. Gulrótin fyrir fjármagnseigendur er að þeir fá um 20% afslátt af krónunum miðað við skráð gengi Seðlabankans. Faðir Kristins, Aðalsteinn Jóns- son, keypti hlut í sjávarútvegsfyrir- tækinu Eskju ásamt bróður sínum árið 1960. Reksturinn gekk vel og gekk Aðalsteinn, sem lést árið 2008, undir nafninu Alli ríki. Kristinn seldi sinn hlut í útgerðinni árið 2007 til systur sinnar og eiginmanns hennar, hjónanna Bjarkar Aðalsteinsdóttur og Þorsteins Kristjánssonar. Félag Kristins kom með 369 milljónir til landsins  Kristinn Aðalsteinsson hefur fjárfest í MP banka, Securitas og Límtré-Vírneti Hlutafjáreign Fjárfestingarfélagið Stekkur á 1,7% hlut MP banka, samkvæmt hluthafalista bankans. Ljósmynd/Arnaldur                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +12./0 ++3./2 ,+.124 ,-.+52 +4.1+, +22./0 +.,21, +40.+2 +32.35 +,-.5/ +12.1, ++3.55 ,,.--, ,-.,2, +4.135 +22.4, +.,/,4 +40.34 +3/.+2 ,+1.2+/ +,+.-2 +1/.21 ++5.++ ,,.-33 ,-.,1+ +1.-,, +2/.+1 +.,/3/ +43.,2 +3/.01 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Heildarvelta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var 16,3 ma.kr. í september síðastliðnum og jókst um 35% frá sama mánuði í fyrra, samkvæmt því sem fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í gær. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs var veltan 50,4 ma.kr., sem er 32,1% aukning frá sama ársfjórð- ungi í fyrra. Þetta er mesti árs- fjórðungslegi vöxtur á íbúðamark- aðinum á höfuðborgarsvæðin sem mælst hefur síðan á fyrsta ársfjórð- ungi í fyrra. Kemur þetta fram í töl- um frá Þjóðskrá Íslands. „Hvað fjölda kaupsamninga með íbúðarhúsnæði varðar þá voru þeir 516 talsins í september á höf- uðborgarsvæðinu, sem er 24% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á þriðja fjórðungi þessa árs voru þeir 1.551, sem er 17,4% aukning frá sama tíma í fyrra. Líkt og með velt- una hefur vöxturinn í fjölda samn- inga frekar verið að færast í aukana undanfarið en úr honum dró í upphafi árs. Var hann þannig einungis 6,8% á öðrum ársfjórðungi svo dæmi sé tekið. Virðist veltan á íbúðamark- aðinum haldast nokkuð í hendur við þróun einkaneyslu, en á vexti henn- ar hægði á fyrri hluta árs sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Að baki liggur m.a. minni vöxtur kaup- máttar ráðstöfunartekna. Við reiknum með að vöxtur í bæði heildarveltu og fjölda samninga á höfuðborgarsvæðinu muni halda áfram á næstu misserum af nokkr- um krafti, og að frekar muni bæta þar í,“ segir í Morgunkorni. Veltan 16,3 milljarðar  Veltuaukning á þriðja ársfjórðungi var 32,1%  516 kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu í september Morgunblaðið/Ómar Samningar 516 kaupsamningar voru gerðir í septembermánuði. Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 51 /0 1. 13 m ag gi @ 12 og 3 is 21 85 1/ 01 13 Flokkunarílát til notkunar innan húss FLOKKUNARBARIR Eitt hólf 20 l. 2 x 11 l. 3 x 11 l. 1 x 8 l. karfaTvistur (á sleða) Þristur (á sleða) Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm. 2 x 40 l. á vagni 2 x 90 l. á vagni Ás (á sleða)2 x 60 l. á vagni 2 x 10 l. + karfa. Mál: 25 x 38/35 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 38 x 66/66 cm. Allar upplýsingar í síma 535 2510 Mál: 31 x 46/36 cm. Mál: 31 x 46/36 cm. Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm. Mál: 25 x 31/44 cm. Mál: 25 x 47/44 cm. Fyrir lífræna söfnun. Mál: 18 x 22/22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.