Morgunblaðið - 05.10.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.10.2013, Blaðsíða 25
stefnt og hvers sé að vænta. Illt sé við þetta að búa. Óvissan valdi því að fólk kjósi stundum að flytja á brott eða hætta að leita fyrir sér um at- vinnu og búsetu á stöðum sem að öðru leyti eru aðalandi og áhuga- verðir. „Það vantar líka greiningu á stöðunum,“ bætir Pétur við. „Slík greining þarf að byggjast á kostum þeirra og göllum.“ Björn Valdimars- son telur fábreytt atvinnulíf helsta ókost við búsetuna fyrir norðan. „Og hvað sem öllum samgöngubótum og snjómokstri líður, verður ekki framhjá því horft að veturnir eru langir.“ Dagbjört tekur undir þörfina á markaðri byggðastefnu. Óvissan um hvað við taki í opinberri þjónustu sé alltaf verst. Samfélögin hafi þörf fyr- ir stöðugleika og framtíðarsýn. Háskólinn skipti sköpum Þátttakendur í umræðunum tala um mikilvægi skóla og mennt- unar fyrir samfélögin á Norðurlandi. „Háskólinn á Akureyri hefur orðið mikil lyftistöng fyrir allt Norður- land,“ segir Sigrún Björk. „Hann breytti hreinlega lífsgæðum okkar sem hér búum,“ segir hún. Ásta Björg tekur undir þetta og segir að einmitt vegna þess sé svo sárt að þurfa stöðugt að hlusta á umræður um sameiningu háskóla og niður- skurð í háskólakennslu, þar sem framtíð Háskólans á Akureyri geti verið undir. Ásta nefnir einnig mik- ilvægi svokallaðs dreifnáms sem stýrt er af Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra (FNV) og nær núna til Hólmavíkur, Blönduóss og Hvammstanga. Dreifnám tekur til tveggja fyrstu ára framhaldsskólans og fer fram með mætingu í skólann á Sauðárkróki í ákveðnum lotum og síðan með fjarnámi. „Þetta er gíf- urleg kjarabót fyrir fjölskyldurnar og gott að geta haft börnin heima til 18 ára aldurs,“ segir Ásta. Hún bendir líka á að hjúkrunarfræðinám- ið á Akureyri hafi orðið til þess að enginn skortur hafi verið á hjúkr- unarfræðingum í landshlutanum. Gagnsemi skólans fyrir byggðirnar leyni sér ekki. Aðalsteinn minnist á þýðingu framhaldsskólans á Húsavík fyrir bæjarbúa. Skólinn hóf starfsemi haustið 1987. „Bæjarlífið gerbreytt- ist. Áður tæmdist bærinn af ungu fólki á haustin,“ segir hann. Hann nefnir einnig Þekkingarnet Þing- eyinga á Húsavík, en það er sí- menntunar-, háskólanáms- og rann- sóknarsetur. „Það er gífurleg kjarabót að hafa allt þetta náms- framboð.“ Björn Valdimarsson segir að stofnun Menntaskólans á Trölla- skaga árið 2010 sé eitt það besta sem gerst hafi í sínum heimahögum. Nemendur koma flestir frá Ólafs- firði og Siglufirði og það eru Héðins- fjarðargöngin sem sköpuðu grund- völl fyrir skólahaldinu. „Þetta er orðinn einn stærsti vinnustaðurinn á okkar svæði,“ segir hann. Sérstakur framhaldsskóli er á Laugum. Til tals hefur komið að sameina hann fram- haldskólanum á Húsavík. Það væri óráð að mati Dagbjartar Jónsdóttur. Skólarnir séu mjög ólíkir og nem- endahópurinn á Laugum allt öðru vísi samsettur en á Húsavík. Lauga- skóli þurfi að fá að starfa og þróast á eigin forsendum. Við hringborðið er tilkoma Menningarhússins Hofs á Akureyri nefnd sem dæmi um eitt það besta sem gerst hafi á Norðurlandi á und- anförnum árum. Í Hofi eru haldnir tónleikar og sýningar og húsið er líka vettvangur fyrir ráðstefnuhald og margs konar mannfagnað. „Afar jákvætt og breytir alveg bæjar- bragnum á Akureyri,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir. fyrir landið í heild Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þátttakendur í hringborðs- umræðum Morgunblaðsins um málefni Norðurlands. Frá vinstri: Ásta Björg Pálmadóttir, Aðal- steinn Á. Baldursson, Sigrún Björk Jakobsdóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Björn Valdimarsson og Pétur Snæbjörnsson. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 VELKOMIN Í BATA SMÁRALIND Vertu vinur á DRESSAÐU UPP SKÓNA ÞÍNA MEÐ SKÓSKRAUTI „Sjávarútvegur er enn undirstöðu- grein á Norðurlandi,“ segir Björn Valdimarsson hjá Ramma á Siglu- firði. „Atvinnuástandið er gott. Allt unga fólkið gat fengið vinnu í sum- ar.“ Á Þórshöfn hefur á undanförnum misserum orðið mjög jákvæð þróun í atvinnumálum. Eftir að Ísfélagið í Vestmannaeyjum hóf að fjárfesta á staðnum og reka þar útgerð og vinnslu hafi bæjarfélagið tekið ger- breytingum. „Það er verið að moka upp gjaldeyri þarna í stórum stíl,“ segir Aðalsteinn Á. Baldursson. Störfum hefur fjölgað á staðnum og mannlífið tekið stakkaskiptum í kjölfarið. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Uppgangur Mikil gróska er í atvinnulífinu á Þórshöfn um þessar mundir. „Moka upp gjaldeyri á Þórshöfn“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.