Morgunblaðið - 05.10.2013, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.10.2013, Qupperneq 26
HRINGBORÐSUMRÆÐUR NORÐURLAND DAGA HRINGFERÐ 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Full búð af nýjum vörum á frábærum verðum Ásta Björg Pálmadóttir ’ Hvergi hefur ríkisstarfsmönnum fækkað jafn mikið og á Norð- urlandi. Mest hefur fækkunin orðið í Skagafirði og bitnað illi- lega á heilbrigðisþjónustunni. Þetta er óviðunandi ástand. Fólk flytur brott ef þetta heldur áfram. Aðalsteinn Á. Baldursson ’ Alþingi og stjórnvöld hafa ekki markað neina byggðastefnu fyr- ir landið í heild. Þess vegna vitum við ekki að hverju er stefnt og hvers er að vænta í opinberri þjónustu og á fleiri sviðum. Óvissa leiðir oft til þess að fólk flytur brott. Sigrún Björk Jakobsdóttir ’ Tilkoma Menningarhússins Hofs á Akureyri er eitt það besta sem gerst hefur á Norðurlandi á síðustu árum. Það hefur auk- ið lífsgæði fólks hér svo að um munar. Sama er að segja um Háskól- ann. Hann hefur orðið mikil lyftistöng fyrir landshlutann. Þegar stjórnvöld kynntu fyrir nokkrum árum áform sín um eina heilbrigðisstofnun fyrir allt Norður- land kváðu við svo hávær mótmæli að þau hrökkluðust til baka. „Það voru allir sveitarstjórnarmenn á móti þessu. Og það áður en tillagan hafði fengið nokkra kynningu að ráði. Umræðan var einfaldlega ekki tekin eins og brýn þörf er á,“ segir Björn Valdimarsson á Siglufirði. „Menn þurfa að setjast niður og ræða þetta, en ekki vera með tómar upphrópanir,“ bætir hann við. Björn segir að alveg megi hugsa sér eina stofnun til að skipuleggja og stýra heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Öflugt samstarf fyrir hendi Aðrir við hringborðið tala um tor- tryggni sem skapast hafi vegna þessara áforma. Menn treysti ekki ríkisvaldinu á þessu sviði. Ásta Björg bendir á að þegar sé til staðar á Norðurlandi víðtækt samstarf heilbrigðisstofnana. Nettengt upp- lýsingakerfi þeirra sé meira að segja fullkomnara en hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn af sameiningunni hafi ekki verið skýr og Aðalsteinn segir málið hafa verið illa kynnt af stjórnvöldum. „Það kom fram að kostnaður ein- staklinga mundi aukast og ný gjöld yrðu lögð á sjúklinga. Það vakti and- stöðu,“ segir Ásta. „Það var klaufa- lega að þessu staðið og ekki í sam- vinnu við heimamenn,“ segir Pétur Snæbjörnsson. Óviðunandi í Skagafirði Við hringborðið leiðir þetta talið að ástandinu í heilbrigðisþjónust- unni á Norðurlandi. Það er yfirleitt talið gott eða viðunandi í þéttbýli, en þjónustan í dreifbýlinu er tak- mörkuð. Í Skagafirði er þó aðra sögu að segja. Niðurskurður á heil- brigðisþjónustu á Norðurlandi hefur hvergi verið meiri. Ásta Björg veifar nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans þar sem fram kemur að starfsfólki heilbrigðisstofnana á Blönduósi og Sauðárkróki fækkaði um meira en 38 ársverk, eða um rúman fimmtung, á síðustu fimm ár- um. „Þetta hefur að sjálfsögðu gífur- leg áhrif og leiðir til fólksflutninga af svæðinu,“ segir Ásta. Það blasi við að þegar heilsugæslulæknum, sér- fræðingum og öðru hjúkrunarfólki fækki hafi slíkt áhrif á búsetuval fólks. Hún segir að Skagfirðingar séu mjög áhyggjufullir út af þessu. Engar skýringar Ásta segir að sveitarstjórnar- menn hafi leitað eftir skýringum á þessum mikla niðurskurði hjá stjórnvöldum en engin fullnægjandi svör fengið. Ástandið núna sé óvið- unandi og það verði að finna leiðir til að bæta það. Ræða þarf heil- brigðismálin  Skiptar skoðanir um eina heil- brigðisstofnun fyrir allt Norðurland Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heilbrigðisþjónusta Sjúkrahúsið á Akureyri þjónar ekki bara Akureyringum heldur öllu Norðurlandi.  Raufarhöfn hefur enn ekki náð að rétta við eftir þau áföll sem yfir staðinn hafa dunið á undanförnum árum. Vonir eru þó bundnar við byggðaþróunarverkefni sem Byggða- stofnun og ýmsir aðilar á Norður- landi standa að. „Á staðnum er mik- il þekking á fiskveiðum og fisk- vinnslu og mikilvægt að nýta sér það í uppbyggingunni,“ segir Aðal- steinn Á Baldursson, verkalýðsfor- ingi á Húsavík. Pétur Snæbjörnsson telur að ferðaþjónusta geti skotið rótum á Raufarhöfn og í nágrenni. Hann minnist á Heimskautsgerðið sem unnið hefur verið að á undanförnum árum á Melrakkaási við Raufarhöfn. Þar er verið að reisa goðsögulegt mannvirki og virkja áhuga ferðafólks á miðnætursólinni. Pétur segir að gerðið geti haft mikið aðdráttarafl. Þeir fjármunir sem settir verði í verkefnið muni skila sér margfalt til baka. Þegar hefur framkvæmdasjóð- ur ferðamála lofað 25 milljónum króna. Verkefnið þarf hins vegar meiri stuðning að mati Péturs. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tækifæri Efling ferðaþjónustu gæti orðið Raufarhöfn til viðreisnar. Aðdráttarafl Heimskautsgerðis gæti eflt Raufarhöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.