Morgunblaðið - 05.10.2013, Page 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Guðrún Hjart-
ardóttir frá
Köldukinn, nú
Hraunbæ 90,
Reykjavík, er
níræð í dag, 5.
október. Hún
tekur á móti
ættingjum og
vinum á afmælisdaginn á heimili sínu,
Hraunbæ 90, frá kl. 15 til 18.
Árnað heilla
90 ára
Brúðhjón Þórný Birgisdóttir og Ólaf-
ur Gunnarsson voru gefin saman í
Grafarvogskirkju 24. ágúst síðastlið-
inn, af sr. Guðrúnu Karlsdóttur. Með
þeim á myndinni eru synir þeirra Björn
Steinar og Birgir Örn.
Brúðkaup
Meðan heilsaner góðskipta töl-
urnar ekki máli,“
sagði Þór Jakobs-
son, sem er 77 ára í
dag. „Ég stunda lík-
amsrækt eins og ég
get. Ég kalla það
ellileikfimi í Vík-
ingsheimilinu, þar
eru ein 50-60 spræk
gamalmenni sem
koma þangað og
æfa undir stjórn
ágætrar stúlku.“
Þór sagði sig vera á
kafi í undirbúningi
hafísráðstefnu sem
haldin verður seinni
hluta október. „Há-
skólinn og Veður-
stofan standa að
þessu og fjölmargir
koma að undirbún-
ingnum og ég fæ að
lafa þarna með.
Þetta heldur heila-
sellunum við.“ Hann
sagðist hafa mikla
ánægju af að vera í
sveitinni sinni. „Við
hjónin erum að
bauka í Landsveit, að Mörk á Landi,“ en kona Þórs er Jóhanna
Jóhannesdóttir. „Ég er ættaður þaðan í móðurætt. Við höfum
verið þarna í skógrækt og girðingarvinnu og við annað skemmti-
legt. Landgræðslan á landið, en við þykjumst gera gagn þarna.
Aðalsportið er að halda kindunum í hæfilegri fjarlægð, en svo
saknar maður þeirra óðar þegar maður sér engar. Hekla er bæj-
arfjallið okkar.“ Hann segist halda sambandi við börn og barna-
börn í útlöndum með nýrri tækni. „Maður nota Skype eins og
ekkert sé. Það er afar heillandi tækni. Þessi upplýsingatækni
sem er úti um víða veröld, þetta eru ákaflega spennandi tímar.
Ég kynntist tölvum þegar þær fylltu stóra sali. Svo hefur orðið
lygileg þróun. Ég væri alveg til í 100 ár í viðbót til að sjá þróun-
ina.“ gunnardofri@mbl.is
Þór Jakobsson er 77 ára í dag
Skæpar við börnin Þór er ekki feiminn við
að tileinka sér nýja tækni. Hann talar við
börn og barnabörn erlendis með Skype.
Hefði ekkert á móti
100 árum í viðbót
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Selfoss Perla Rós fæddist 4. jan-
úar. Hún vó 4.430 g og var 54 cm
löng. Foreldrar hennar eru Ásdís
Sigríður Björnsdóttir og Ólafur
Björnsson.
Nýir borgarar
F
riðrik fæddist í Sand-
fellshaga í Öxarfirði
5.10. 1918 og ólst þar
upp. Hann gekk í
barnaskólann í Lundi í
Öxarfirði og stundaði nám við Hér-
aðsskólann að Laugarvatni 1938-
40. Að námi loknu vann Friðrik al-
menn landbúnaðar- og verka-
mannastörf, m.a. hjá hernámsliði
Breta 1942 en réðst til Kaupfélags
Norður-Þingeyinga á Kópaskeri
1944. Hann var þar bílstjóri fyrstu
árin, sinnti síðan bíla- og drátt-
arvélaviðgerðum og stundaði svo
verslunarstörf.
Friðrik varð deildarstjóri ný-
stofnaðrar véla- og varahlutaversl-
unar KNÞ árið 1962 og gegndi því
starfi í tæp 30 ár. Hann sinnti auk
þess ökukennslu um margra ára
skeið.
Friðrik var formaður klúbbsins
Öruggur akstur til margra ára.
Hann söng með kirkjukór Snart-
arstaðasóknar á 1945-2000, var for-
maður sóknarnefndar um árabil og
síðan safnaðarfulltrúi. Þá sat hann
í hreppsnefnd Presthólahrepps frá
1968 og var oddviti hreppsins 1974-
78, vann að málefnum aldraðra og
sat í mörgum skólanefndum, m.a. í
skólanefnd Öxarfjarðarhéraðs.
Friðrik og Anna, kona hans,
fluttu til Akureyrar árið 2000 og
síðasta árið hefur hún dvalið á
Lögmannshlíð – öldrunarheimili.
Friðrik verður hins vegar að
borga með sér til að vera sam-
vistum við hana því hann fær ekki
vistunarmat sökum heilsuhreysti:
„Já, ég er eiginlega tilraunagripur
hér. Eiginkonan vill skiljanlega
hafa mig hjá sér og við erum hér í
36 fermetra herbergi og höfum auk
Friðrik J. Jónsson, fyrrv. deildarstjóri KNÞ á Kópaskeri – 95 ára
Dansað við dótturina Friðrik dansar hér við Kristínu Helgu í fimmtugsafmæli hennar í Hafnarhvoli í fyrra.
Sinnir vel gamla fólkinu
Afmæliskaffi Frá vinstri: Friðrik, Anna Guðný, Kristín, Ólafur og Árni.
Emilía S. Emilsdóttir og Hreiðar Þór-
hallsson eiga fimmtíu ára brúðkaups-
afmæli í dag, 5. október.
GullbrúðkaupGÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
gluggatjöldin
tandurhrein og
pressuð
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA