Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að taka á móti
pöntunum í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is
Hringdu núna og pantaðu
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Forseti Alþýðusambands Íslands
gagnrýnir forystu ríkisstjórnar og
meirihlutans á Alþingi fyrir að koma
ekki til móts við óskir verkalýðs-
hreyfingarinnar
til að liðka fyrir
gerð nýs kjara-
samnings. Ekki
komi til greina að
ganga frá kjara-
samningi á meðan
menntun og þjón-
ustu við atvinnu-
leitendur sé rúst-
að.
Staðan í kjara-
viðræðunum er
erfið, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar,
forseta ASÍ. Eftir að slitnaði upp úr
viðræðum ASÍ og Samtaka atvinnu-
lífsins hafa samtök verkmanna- og
verslunarmannafélaga vísað kjara-
deilunni til ríkissáttasemjara og ekki
langt í að iðnaðarmannafélögin geri
það einnig. Formlegar og óformlegar
viðræður hafa verið í vikunni og verð-
ur þeim haldið áfram um helgina.
Gylfi segir að svolítið beri á milli
ASÍ og SA um samning sem geti
stuðlað að stöðugleika. Segir hann að
SA verði að axla ábyrgð á launaskriði
áður en hægt sé að draga úr kröfum
um launahækkanir fyrir láglauna-
fólk. Launaskrið hafi jafn mikil áhrif
á verðbólgu og aðrar hækkanir.
Blæs ekki byrlega
Gylfi segir að staðan í fjárlaga-
gerðinni valdi áhyggjum. Hann fagn-
ar því að bætt hafi verið í heilbrigð-
isþjónustuna. Hins vegar hafi ekki
verið komið til móts við óskir ASÍ,
meðal annars í menntun og þjónustu
við atvinnuleitendur, sérstaklega þá
sem hafi verið lengi án vinnu. Segist
hann hafa skilið fjármálaráðherra
þannig að ríkissjóður vildi koma til
móts við verkalýðshreyfinguna í
þessu efni. Ekki sé heldur búið að ná
ásættanlegri útfærslu í skattamál-
um.
„Ég hélt að það væri hægt að
treysta forystu ríkisstjórnarinnar,
um að hún hefði hug á því að koma til
móts við okkur,“ segir Gylfi og rifjar
upp þann trúnaðarbrest sem var á
milli aðila vinnumarkaðarins og fyrri
ríkisstjórnar. „Það blæs ekki byrlega
í samskiptunum. Það er með ólíkind-
um að svona sé komið fram,“ segir
Gylfi og bætir því við að ef tilgangur
ríkisstjórnarinnar sé að koma í veg
fyrir kjarasamninga gangi það ágæt-
lega. helgi@mbl.is
Ekki komið til
móts við óskir ASÍ
Gylfi
Arnbjörnsson
Þreifingar um samninga halda áfram
Framleiðsla og
sala á íslensku
nautakjöti hefur
dregist verulega
saman allra síð-
ustu mánuði. Hún
var 360 tonn í
nóvember sem er
19% samdráttur
frá sama mánuði í
fyrra. Fram-
leiðslan hefur
minnkað um tæp 12% síðustu þrjá
mánuðina. Mikil framleiðsla var á
fyrri hluta ársins og þess vegna er
aðeins 2% samdráttur á milli ára,
þegar litið er til tólf mánaða tíma-
bils.
Kúabændur hafa verið hvattir til
að auka mjólkurframleiðslu vegna
aukinnar sölu. Búist var við því að
það myndi leiða til þess að minna
framboð yrði á nautgripakjöti vegna
þess að mjólkurkýrnar fengju
lengra líf og fleiri kálfar yrðu settir
á. helgi@mbl.is
Minna af
nautakjöti
Steiking Nauta-
kjöt á pönnunni.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Einar Hugi Bjarnason hæstaréttar-
lögmaður telur að dómur Hæstarétt-
ar í máli Landsbankans gegn Fluga-
straumi ehf. hafi fordæmisgildi.
Forsaga málsins er sú að Fluga-
straumur sló 2,7 milljóna gengislán
hjá Landsbankanum árið 2006 vegna
kaupa á dráttarvél. Lánið hækkaði
við gengishrunið og greiddi lántakinn
upp eftirstöðvar þess árið 2011.
Héraðsdómur hafði dæmt Lands-
bankann til að greiða til baka oftekinn
gengismun að upphæð 1.123 þúsund
krónur, ásamt 700.000 kr. í máls-
kostnað. Hæstiréttur staðfesti endur-
kröfuna og gerði bankanum að greiða
900.000 kr. í málskostnað.
Kröfu Landsbankans, að upphæð
568 þús., um að lánið skyldi bera
óverðtryggða
vexti SÍ í stað
samningsvaxta
var hafnað.
„Dómurinn er
fróðlegur fyrir
margra hluta sak-
ir. Í fyrsta lagi
staðfestir Hæsti-
réttur þá niður-
stöðu héraðsdóms
að samningurinn
sem um var deilt væri samningur um
lán en ekki leigu. Þetta atriði var
kjarninn í ágreiningi málsaðila, enda
er heimilt að gengisbinda leigusamn-
inga en ekki lánssamninga.
Þetta er mjög merkilegt enda í
fyrsta sinn sem reynir á fjármögnun-
arleigusamningsform SP-Fjármögn-
unar fyrir Hæstarétti – og niður-
staðan er þessi; samningurinn er
lánssamningur „klæddur í búning“
leigusamnings, eins og það er orðað í
hæstaréttardóminum.“
Einar Hugi, sem vann gengislána-
mál Plastiðjunnar gegn Landsbank-
anum, telur fróðlegt að sjá hver við-
brögð Landsbankans verða.
Geti kallað á fjölda dómsmála
Þ.e.a.s. hvort bankinn fallist á að
þessi dómur hafi fordæmisáhrif gagn-
vart öðrum viðskiptavinum SP-Fjár-
mögnunar sem skrifuðu undir sams-
konar samninga, eða hvort vísað verði
til þess að sönnunargögn í einstökum
málum kunni að vera mismunandi og
því þurfi fleiri dóma til að skera úr um
lögmæti gengistryggingar í slíkum
samningum SP. Það geti kallað á
fjölda dómsmála.
Í öðru lagi sé sú niðurstaða Hæsta-
réttar að miða skuli við samningsvexti
en ekki óverðtryggða vexti Seðla-
bankans í samræmi við og styrki fyrri
fordæmi Hæstaréttar í svonefndum
fullnaðarkvittanadómum.
„Í þriðja lagi fellst Hæstiréttur á
endurgreiðslukröfu Flugastraums í
málinu, þ.e.a.s. að félagið hafi sam-
kvæmt framansögðu ofgreitt bankan-
um rúma 1,1 milljón króna, ásamt
dráttarvöxtum. Í þessu felst mjög
mikilvægt fordæmi enda viðurkennt
að skuldarar geti átt beinan endur-
kröfurétt, að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum, á fjármálafyrirtæki hafi
þeir ofgreitt vegna ólögmætrar
gengistryggingar. Þessi niðurstaða
hefur að mínu áliti afar víðtæk for-
dæmisáhrif og kollvarpar því sem ein-
hver fjármálafyrirtæki hafa haldið
fram að slíkur endurkröfuréttur geti
ekki undir nokkrum kringumstæðum
verið fyrir hendi,“ segir Einar Hugi.
„Afar víðtæk fordæmisáhrif“
Hæstaréttarlögmaður telur nýjan dóm í máli Landsbankans gegn Flugastraumi
munu hafa mikil áhrif í gengislánamálum Málið varðar kaup á dráttarvél
Einar Hugi
Bjarnason
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Óvíst er hvenær umræðum um fjár-
lagafrumvarpið lýkur að sögn Ein-
ars K. Guðfinnssonar, forseta Al-
þingis. Hann segir að umræðurnar
um það standi til klukkan fimm í dag
en segir að ekki sé gert ráð fyrir því
að atkvæðagreiðsla fari fram. Þing
muni svo koma saman á mánudag.
Hann segir að ekki sé orðið ljóst
hvernig dagskráin líti út að loknum
umræðum um fjárlög. Óformlegar
viðræður hafi farið fram við þing-
flokksformenn um dagskrána en
niðurstaða liggi ekki fyrir.
Deilt um forgangsröðun
Önnur umræða um fjárlaga-
frumvarpið hélt áfram í gær og stóð
fram á kvöld. Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaganefndar, sagði að
það væri til marks um forgangs-
röðun í grunnþjónustunni en óþarf-
anum sleppt. „Við náum að snúa af
braut hömlulausra útgjalda í rík-
isrekstri í það að skila hallalausum
fjárlögum og meira að segja skila ör-
litlum afgangi.“ Þá sagði hún að nú-
verandi ríkisstjórn hefði tekið við
villandi búi hvað varðaði rekstur rík-
issjóðs. Skv. fjárlögum síðasta árs
hefði halli átt að vera 3,7 milljarðar
kr. en hefði í raun verið 25,5 millj-
arðar kr. „Stafar það helst af því að
tekjuáætlun fyrri ríkisstjórnar var
byggð á lofti og var innistæðulaus
með öllu,“ sagði Vigdís.
Guðbjartur Hannesson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, gerði at-
hugasemdir við orðaval Vigdísar.
„Við erum búin að skera niður frá
því að vera með 14% halla á lands-
framleiðslu niður í 1%. Við erum að
tala um að menn hafi tekið við vill-
andi búi, hvað sem það þýðir. Að
tekjuáætlun á þessu ári hafi verið
byggð á lofti, innhaldslaus með öllu,
eins og hér er sagt. Ég verð að biðj-
ast undan svona málflutningi,“ sagði
hann. Vinstri græn gerðu meðal
annars komugjöld á þá sem leggjast
inn á sjúkrahús að umfjöllunarefni.
„Hér er um að ræða grundvall-
arbreytingu á fjármögnun heilbrigð-
iskerfisins sem Vinstrihreyfingin –
grænt framboð leggst algerlega
gegn,“ sagði Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri grænna.
Morgunblaðið/Eggert
Umræður Miklar annir eru á Alþingi. Umræða um fjárlög stóð yfir í gærdag. Þingfundi var frestað laust fyrir kl. 22.
Óljóst hvenær um-
ræðum um fjárlög lýkur
Tekist á um fjárlagafrumvarpið
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður fjárlaganefndar, lagði í
gær fram breytingartillögu við
fjárlagafrumvarpið fyrir hönd
meirihluta fjárlaganefndar um
að í stað þess að 215 milljónir
verði millifærðar frá Ríkisútvarp-
inu til háskólastarfsemi, verði
millifærslan 150 milljónir. Þetta
var gert að beiðni Illuga Gunn-
arssonar menntamálaráðherra.
Ráðherrann vill einnig að Rík-
isútvarpið geti haldið sig við 12
auglýsingamínútur á klukku-
stund í stað 8 og jafnframt að
fresta kostnaðarsömum ákvæð-
um um að rekstur Ríkisútvarps-
ins færist til dótturfélaga. Illugi
segir að samantekið megi virða
þessar breytingar að upphæð
150 milljóna. „Þar með losa ég
um fjármagn og kemur þetta á
sléttu út fyrir Ríkisútvarpið.“
Millifærslan
150 milljónir
FRAMLÖG TIL RÚV