Morgunblaðið - 28.12.2013, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2013
Aðeins 2 hitaeiningar og
0,5 g kolvetni í 100 ml.
Koffín, guarana og ginseng... virkar strax!
15 kraftmiklar freyðitöflur í einum stauk. Skellt út í
vatn nákvæmlega þegar þér hentar – heima, í vinnunni,
skólanum, í ræktinni, í golfinu...
Handhægt, bragðgott og frábært verð
Vertu alltaf með orkuna við höndina og gríptu einn
stauk af FOCUS í næstu verslun .
Fæst í Fjarðarkaup og helstu apótekum um land allt
brokkoli.is
FOCUS
Kraftmikill og frískandi
orkugefandi drykkur án sykurs!
Vantar þig aukna orku fyrir jólin?
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur það á tilfinningunni að
samstarfsmenn þínir efist um hæfileika
þína. Haltu bara þínu striki og sýndu öðrum
þolinmæði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú tekur hversdagslegar ákvarðanir –
um fataval og matvælakaup – með stæl. Er
ekki kominn tími til þess að slaka á? Þú
þarft að lyfta þér upp endrum og sinnum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að endurskoða framkomu
þína í garð samstarfsmanna því þú átt þína
sök á neikvæðum viðhorfum þeirra í þinn
garð. Þú ert mikið í sætindunum þessa dag-
ana – líkt og hálf þjóðin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Settu það í forgang að verða öðrum
að liði því það gefur sjálfum/-ri þér mest.
Allt endurmat kallar á aðgerðir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gerir uppgötvanir. Mundu að vinir
þínir geta haft mikil áhrif á framtíð þína
með því að hafa áhrif á þær ákvarðanir sem
þú tekur. Reyndu eftir fremsta megni að
miðla málum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér kann að reynast erfitt að hemja
hugann í dag eða jafnvel að hafa við fram-
vindu lífsins. Hugsanlega finnur þú hjá þér
hvöt til þess að koma vini til hjálpar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt
áætlun. Heiðarlegar og beinskeyttar upplýs-
ingar leiða þig enn og aftur að sama fólk-
inu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að venja þig af þess-
um stöðugu áhyggjum sem þú hefur af öll-
um sköpuðum hlutum. Vertu ekki stíf/ur
heldur reyndu að slá á létta strengi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þiggðu bestu ráð sem fáanleg
eru. Ekki reyna að gera allt í einu. En þú
þarft að vera tilbúin/n til að hlusta á vin,
þegar hann þarfnast þín.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú verður beðin/n um að taka að
þér vandasamt verk og þarft að gera þér
grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir. Ef
það gerist, skaltu segja allt af létta.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefðir gott af því að tala við
góðan vin í dag. Verndaðu sjálfa/n þig og
láttu engan ráðskast með þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekkert auðveldara en að of-
stjórna öðrum og þú þarft að venja þig af
því. Góður göngutúr gerir kraftaverk. Ham-
ingjan en handan við hornið.
ÁLeirnum birtist skemmtilegvísa eftir Björn Ingólfsson
með mynd af „jólarjúpunni“ þar
sem hún stendur úti á fönninni við
birkihríslu. Þessi athugasemd
fylgdi: „Á mínu heimili er jólarjúp-
an ekki étin heldur ljósmynduð.“
Í mjúkum snjónum
unir ein sem slapp
og undrast þetta tré
með rafmagnsljósum
en veit þó ekki
að mest var hennar happ
að hafna ekki í steik
með kryddi og ljósum.
Sigrún Haraldsdóttir s sendi jóla-
kveðjur inn á Leirinn:
Frýs á rúðu fannhvít rós
friðsælt er og hljótt,
þekja hvolfið þúsund ljós,
það er jólanótt.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Jólasveinar, bölvuð beinin,
bregða nú sem fyrr á leik.
Höfðinu þeir stinga í steininn
og stara eftir rangsannleik.
Hjálmar Freysteinsson er á öðr-
um nótum og gefur „hagnýtar upp-
lýsingar MMR“:
Sú er margra sannfæring,
samþykkt hana ekki get,
að engan kjósa ætti á þing
sem ekki borðar hangiket.
16. desember gat að líta á Leirn-
um svohljóðandi athugasemd frá
Hallmundi: „Þá sjaldan ég kemst í
tæri við Moggann fletti ég gjarna
upp á Vísnahorninu. Ósjaldan sé ég
þar setninguna: Hallmundur Krist-
insson bregður á leik í limru:
Bregður á leik í limru,
listin er tær og hrein.
Síðan gerir hann glimru:
gargandi snilldin ein.
Glimra er nýyrði fyrir glimrandi
góðar vísur.“
Sigmundur Ben. brást skjótt við
og sagði: „Þetta líkar mér Hall-
mundur!“ Og síðan:
Löngum er hann limrandi,
líst mér vel á gripinn.
Gengur svo um glimrandi
glaðbeittur á svipinn.
Á þessum degi 1772 fæddist Arn-
ór á Hesti. Hann orti þegar daginn
tók að lengja:
Þó dagsins skundum skeið
skjótt fram að nóttu,
brátt hennar líður leið
að ljósri óttu
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af jólarjúpunni, jóla-
sveininum og glimru
Í klípu
„PANTAÐIR ÞÚ LÍFRÆNT RÆKTAÐ,
ÓUNNIÐ HEILHVEITIPASTA?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞVÍ MIÐUR, KALLINN MINN, VIÐ ERUM
EKKI MEÐ FLUGMÓÐURSKIP.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... vindurinn í
segl ykkar.
Ástar- fley
Bátaleiga
ANNAÐHVORT HJÁLPAR
ÞÚ MÉR MEÐ HEIMILIS-
STÖRFIN ...
... EÐA ÉG PAKKA SAMAN
OG FER TIL MÖMMU!
ÆTLI ÉG GETI GEYMT
ÞAÐ FRAM YFIR
KVÖLDMAT AÐ SVARA
ÞESSU?
Í ALVÖRU, LÍSA, ÉG
ELSKA ÖLL DÝR.
JAFNVEL FEIT, LÖT
OG GRÁÐUG DÝR.
ÉG
HEYRÐI
ÞETTA!
Kostir og gallar Víkverja koma allt-af bersýnilega í ljós í jólahaldinu.
Víkverji heldur því fram að hann sé
nokkuð vaskur, vill drífa hlutina
áfram eins og þrif, matseld og jóla-
gjafakaup. Hins vegar finnur hann
tilfinnanlega hversu lélegur hann er í
að pakka inn gjöfum og nostra við
heimilið með því að skreyta og
föndra og hengja upp jóladót um alla
veggi. Það fer ekki mikið fyrir óþarfa
smáhlutum á heimili Víkverja.
x x x
Enda er innpökkunin á gjöfunum íhöndum sambýlismanns Vík-
verja. Hann er mun flinkari og nostr-
ar betur við pakkana.
x x x
Heimagerðan ís þykir Víkverjaalltaf nokkuð gott að fá á jól-
unum. Hann hefur leyst það verkefni
af hendi með stakri prýði hingað til –
vill hann meina. Alveg þangað til í ár.
Útbúinn var vanilluís. Þegar Víkverji
var búinn að saxa niður alla vanill-
ustöngina og demba út í rjómablönd-
una hugsaði hann með sér: „Þetta
var ekki alveg svona í fyrra … eða
hvað, skiptir ekki máli, við pillum
þetta bara úr ísnum ef við viljum ekki
tyggja þetta.“
x x x
Eftir að hafa fært ísinn upp ástærðardisk á aðfangadag bauð
Víkverji gestum að bragða á gullna
ísnum. Gestirnir voru á einu máli um
að ísinn væri afbragð. Alveg þangað
til hann var spurður hvað þetta
svarta harða væri í ísnum. Víkverji
svaraði samviskusamlega eins og var
og bað þá sem ekki vildu svona mikla
vanillu að skilja þetta eftir á disk-
inum sínum.
x x x
Skarstu alla vanillustöngina út í?“spurði móðir Víkverja. „Æi já,
ég gleymdi mér aðeins,“ svaraði Vík-
verji. Hugurinn er oftar en ekki kom-
inn aðeins lengra.
x x x
Það sem fólk áttar sig ekki á er aðVíkverji situr einn að þessum
dýrindis ís sem nóg er til af í frystin-
um. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld
því að frá honum kemur von mín.
Hann einn er klettur minn og hjálp-
ræði, vígi mitt, mér skrikar ekki fótur.
(Sálmarnir 62:6-7)