Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Page 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Page 9
1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Ég er búinn að eiga heima á Surtsey síðan 1970. Þádvaldi ég tvö heil sumur á eynni, 1970-71, og kynntistþessari kellu ansi náið – ung stúlka þá reyndar, bless- uð eyjan,“ segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur sem ný- verið gaf út veigamikla bók, Surtsey – Í sjónmáli, ásamt Lovísu Ásbjörnsdóttur sem starfar sem sérfræðingur Surts- eyjar frá Umhverfisstofnun. Erling, sem hefur dvalið í Surtsey og rannakað lífríki smá- dýra og fugla meira og minna frá árinu 1970, gerþekkir þessa merku náttúruperlu. „Mig hefur hefur lengi langað til þess að gera nokkuð af þessu tagi, að skrifa alþjóðlega fræðslubók um eyna,“ segir Erling og bætir við að ástæðan fyrir því sé sú að eyin er lokuð, nema bara fyrir fræðimenn í rannsóknum. „Svoleiðis að Surtsey er algerlega hulinn heim- ur fyrir almenning. Þetta hefur blundað lengi í mér og ég hef alla tíð tekið mikið af myndum á eynni sem gátu orðið grunnur að bókinni. Maður lýsir ekki Surtsey fyrir almenn- ingi nema sýna það myndrænt.“ Bókin er gefin út á íslensku og ensku í stóru broti til þess að leyfa ljósmyndunum að njóta sín sem best. Þetta eru um fimm hundruð myndir, flestar teknar af Erling sjálfum. „Lovísa er jarðfræðingur og í bókinni tengjum við land- grunnið við náttúrulífið og hvernig það myndar undirstöður fyrir lífið. Í bókinni erum við að segja frá stóra samhenginu. Tilurð, mótun, myndun móbergs og hvernig lífverur berast til eyjarinnar, hvernig þær setjast þar að og baráttunni sem þær þurfa að stunda til þess að koma sér fyrir. Einnig segj- um við frá því hverjar þessara fáeinu tegunda nema land, hvernig þeim fjölgar og mynda samfélög og hvernig þetta þróast áfram, þessi blómlega stórglæsilega ey með ríku gróð- urlífi, fuglalífi og smádýralífi.“ Erling og Lovísa ræddu það fyrst árið 2010 að gefa út bók um eyna í sameiningu. „Svo kom að þeim tímamótum í fyrra að Surtsey varð fimmtug, maður gefur góðri vinkonu fimm- tugsafmælisgjöf og það gat ekki verið verðugri gjöf en að skrifa um hana bók.“ GEFUR GÓÐRI VINKONU FIMMTUGSAFMÆLISGJÖF Hulinn heimur Erling Ólafsson skordýrafræðingur hefur dvalið á Surtsey meira og minna frá árinu 1970 og rannsakað lífríki smádýra og fugla. Morgunblaðið/Eggert Erling segir að á þeim 50 árum sem liðin eru frá því að Surtsey reis úr sæ hafi þróun gróðurfars og annars lífríkis verið undraverð. Ljósmynd/Erling Ólafsson Höfundar bókarinnar Lovísa Ásbjörnsdóttir fyrir miðju og Erling Ólafsson lengst til hægri í rannsósknarleiðangri líffræðinga og jarðfræðinga á Surtsey 2011. Ljósmynd/Erling Ólafsson Á Surtsey verpir fjöldi máfa. Svartbakur varð fyrstur þeirra til að nema land en silfurmáfur og sílamáfur komu í kjölfarið. Ljósmynd/Erling Ólafsson ÞAÐ VAKTI HEIMSATHYGLI ÁRIÐ 1963 ÞEGAR SURTSEY REIS ÚR SÆ. NÝVERIÐ KOM ÚT VEGLEG BÓK SEM SVIPTIR HULUNNI AF ÞESSARI MERKU EYJU SEM LOKUÐ ER ALMENNINGI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Sölustaðir: Útilíf • Intersport • Hagkaup • Lyfja • Sportís • Afreksvörur • Crossfit Reykjavík • Markið GÁP Hjólabúðin • Kría Hjól • TRI • Jói Útherji • Örninn golfverslun • Sjúkraþjálfun Íslands

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.