Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 12
* Ég var góðglaður þegar ég festi kaup á honum og frúinvar ekki ánægð. Ég varð að fela hann í nokkra daga.Ágúst Rúnarsson í Vestra-Fíflholti keypti nýjan, kraftmikinn traktor. Landið og miðinSKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
MJÓIFJÖRÐUR
Mæting hefur örugg
eins góð á fverið
í Mjóafirði í viku
kjsem eru á ör
sögn Austu
sam
ÁRBORG
Sveitarfélagið
Árborg hefur
endurnýjað
þjónustu- og
styrktarsamning
við íþróttafélagið
Suðra en félagið
býður upp á skipulagt íþróttastarf fyrir
fatlaða í Árborg og mun samkvæm
samningnum gera það áfram.
VESTFIRÐIR
Bæjaryfirvöld á Ísafirði ha
lítið er fjallað um málefni V
í tillögu Landsnets að kerfi
2014 til 2023. „Nefna má
engin umfjöllun er um mö lega
Hvalárvirkjun sem þrefaldað gæti
orkuöflun áVestfjörðum. afa
heldur verið skoðaðir mö
að tvöfalda hluta línuleiða
að auka rekstraröryggi þe
segir í bókun umhverfisne
bæjarráð tekur undir.
ÞORLÁKSHÖFN
Lúðrasveit Þorlákshafnar
stofnuð árið 1984 af nokk
hljóðfæraleikurum í bænu
og á því 30 ára starfsafmæ
ár. Bæjarstjórn Öfluss hef
ákveðið að færa lúðrasvei
að gjöf málmblásturshljóð
túbu af því tilefni. Verðmæ ú
krónur. „Bæjarstjórn lýsir
frábæra starf sem lúðrasv
Robert Darling hafa unnið
jákvæðu áhrif sem hún he
sveitarfélagið,“ segir í bók
ÞINGEYJARSVEIT
Starfsemi leikskóladeildarinnar
Bárðargils hefur nú verið hætt og
deildin
fór fram á dögunum og
um dýrðir, þar sem
foreldrar skemmtu
Börn á leikskólaaldri
stunda héðan í frá nám
leikskóladeildinni í Stó
M
iklir hestamenn
hafa búið á
Lækjamóti í Víði-
dal í árafjöld. Nú
er á lokastigi
smíði glæsilegrar reiðhallar á bæn-
um, þar sem verður fjölbreytt
starfsemi.
„Við erum að byggja upp aðstöðu
til þjálfunar á okkar gripum og
hugmyndin er að vera líka með
reiðkennslu, sölu á hrossum og
endurhæfingu fyrir hesta. Þetta
verður alhliða þjálfunarmiðstöð,“
segir Ísólfur Líndal Þórisson
hrossabóndi í samtali við Morg-
unblaðið.
Gott fyrir samfélagið
Seinna í sumar verður þessi glæsi-
lega hestamiðstöð tekin í gagnið.
„Það eru til svona búgarðar á Ís-
landi en ekki víða hér norðan
heiða,“ segir Ísólfur aðspurður.
„Þetta eru fallegar byggingar.
Verkefnið ætlar að takast vel,“ seg-
ir hann lítillátur þegar blaðamaður
hefur á orði hve glæsilega er að
verki staðið.
„Það er rétt rúmt ár síðan fyrsta
skóflustungan var tekin, þetta hefur
gengið fljótt og vel og við erum á
lokasprettinum núna. Stefnt er að
því að opna um mánaðamótin júlí,
ágúst.“
Erlendur vinur fjölskyldunnar
tekur þátt í uppbyggingunni með
henni. Bakhjarl sem hjálpar við
þetta, eins og Ísólfur kemst að orði.
„Það er gaman að standa í þessu og
gott fyrir svæðið. Framkvæmdirnar
eru mikil innspýting í samfélagið,
mikil vinna hefur skapast við upp-
bygginguna, heimamenn koma að
jarðvegsframkvæmdum og smíðum.
Það er frábært að geta hjálpað til í
héraði.“
Í húsinu verður 31 stía. „Þær eru
allar stórar þannig að tveir hestar
geta í sjálfu sér verið í hverri þó
það sé reyndar ekki hugmyndin. Við
hugsum okkur einn í hverri stíu.“
Ísólfur er frá Lækjamóti. „Ég
hef alla tíð verið mikið í hesta-
mennsku. Það má segja að ég sé
fæddur og uppalinn á hestbaki!“
segir hann og hlær. Hann er
reyndur og margverðlaunaður
keppnismaður og var einmitt stadd-
ur á kynbótasýningu á Sauðárkróki
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í vikulokin. „Fjölskyldan er
öll í hestamennsku með einum eða
öðrum hætti. Nú eru orðnar þrjár
fjölskyldur sem búa á Lækjamóti
og lífið snýst meira og minna um
hesta.“
Foreldrar Ísólfs, Þórir Ísólfsson
og Elín Líndal, búa enn á jörðinni
og Sonja systir hans og Friðrik
Már Sigurðsson, maður hennar, eru
nýflutt þangað en Sonja var að
ljúka námi í dýralækningum.
Þrjár Morgunblaðsskeifur
Fjölskyldan hefur stundað hrossa-
rækt lengi og hefur unnið til marg-
víslegra verðlauna á þeim vettvangi
eins og á keppnisvellinum. Gott
dæmi um glæsilegan árangur er að
á Lækjamóti eru varðveittar þrjár
Morgunblaðsskeifur, verðlaun sem í
nærri sex áratugi hafa verið veitt
fyrir afbragðs árangur í tamn-
ingum og reiðmennsku í bænda-
skólunum.
Þórir vann Skeifukeppnina á
Hólum árið 1973, sonurinn Ísólfur
afrekaði það á Hvanneyri fyrir lið-
lega aldarfjórðungi og Sonja Líndal
Þórisdóttir fetaði í fótspor föður
síns og varð hlutskörpust á Hólum
árið 2007.
VÍÐIDALUR
Fæddur og
uppalinn á
hestbaki!
ÍSÓLFUR LÍNDAL ÞÓRISSON OG FJÖLSKYLDA Á BÆNUM
LÆKJAMÓTI Í VÍÐIDAL, Í HÚNAÞINGI VESTRA, ERU LANGT
KOMIN MEÐ AÐ BYGGJA UPP GLÆSILEGA HESTAMIÐSTÖÐ
ÞAR SEM BOÐIÐ VERÐUR UPP Á FJÖLBREYTTA ÞJÓNUSTU
Hjónin á Lækjamóti í Víðidal, Ísólfur Líndal Þórisson og Vigdís Gunnardóttir. Sonurinn heitir Guðmar Hólm.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hestamiðstöðin glæsilega sem tekin verður í notkun á Lækjamóti í sumar.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.6. 2014