Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 22
Heilsa og
hreyfing
Sippað í sumar
Morgunblaðið/Kristinn
*Með betri æfingum til að fullkomna líkamsræktinaer sú skemmtilega en einfalda athöfn að sippa. Ekkiskemmir að ungum sem öldnum þykirþað gaman svo að enginn þarf að veraútundan. Hægt er að fá ódýrari og dýr-ari sippubönd – allt frá fínni gerðum íverslunum sem selja líkamsræktarvörur
og svo ódýr og einföld í stórmörkuðum
og leikfangaverslunum.
F
yrsta myndin af mér í þessari jógastellingu
var tekin þegar ég var í fríi með fjölskyldu
minni og vinafólki í Frakklandi,“ segir Agnes
Ósk Sigmundardóttir sem hefur á síðustu
tveimur árum stillt sér upp í jógastellingunni
„standandi bogi“ um allar trissur, hérlendis og er-
lendis.
„Maður á að bara leika sér í lífinu og gera grín
og þetta hefur verið skemmtilegt. Ég hef ferðast
mikið síðustu tvö árin og þetta er mín leið til að
gera planka eða eitthvað slíkt en umhverfið er að-
alatriðið – sýna það og segja svo; hér er ég.“
Agnes Ósk hefur stundað jóga, hot yoga upp á
síðkastið, og segir þessa stöðu efla styrk og sveigj-
anleika og það sé eiginleiki sem hún vilji hafa á
sál og líkama. Þá eigi hún að efla einbeitingu og
þolinmæði.
„Og hver vill ekki efla það? Svo er ég í stjörnu-
merkinu bogmanni svo þetta á einstaklega vel við.“
Skellt sér í jógastöðuna í Amsterdam.
Jóga í Arizona í Bandaríkjunum. Fallegur jógadagur í Atlavík.
Brooklyn Bridge jóga. Jóga í vinnunni; á Dale Carnegie-skrifstofunni. Skriðuklaustur myndaði fallegan bakgrunn.
Jóga í útlöndum, nánar tiltekið í Utah.
Jógatími í Aðaldal.
Með nið Seljalandsfoss í bakgrunni.
UMHVERFIÐ FEST Á FILMU Á ÓVENJULEGAN HÁTT.
„Mín leið til að
gera planka“
AGNES ÓSK SIGMUNDARDÓTTIR HEFUR FARIÐ Í
JÓGASTELLINGUNNI STANDANDI BOGI ÚT UM VÍÐA VERÖLD
OG FEST UM LEIÐ UMHVERFI FERÐALAGANNA Á FILMU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Smá jóga í miðjum hjólreiðatúr, á leið frá
Bláfjöllum og niður í Heiðmörk.
Jógað mátað við vetrarsnjóinn í Grafarholti.
Leikskólabörn fylgjast athugul með Agnesi Ósk.Jóga í sólinni á Rauðasandi. Agnes Ósk prufukeyrir jóga við friðarsúluna.
Jóga í sveitinni, í sauðburði í Borgarnesi.
Farið í stellinguna eftir
Reykjavíkurmaraþon.