Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 42
Ég tek alltaf með mér:
Í flug
Fer alltaf í þægilegum fötum sem þrengja ekki að.
Strigaskór
Kósýbuxur
Layera efri partinn því það er aldrei að vita hvernig hitastigið er í flugvélinni
og líka ef það er heitt á áfangastað.
Fer td. í hlýrabol, bol og jakkapeysu.
Tek með mér þægilega sokka því ég er alltaf farin úr skónum um leið og ég
finn sætið mitt.
Í ferðir að sumri til
Svartan kjól og svart pils, passar við allt
Litrík pils og stuttbuxur, ég er mjög hrifin af allskonar fínum stutt-
buxum og nota þær meira en pils.
Toppa
1-2 Blazer jakka
Hvítar skyrtur, eina tailored bómullar og aðra létta úr silki sem ég
nota yfirleitt opna í staðinn fyrir og léttan jakka.
Silkislæðu fyrir kvöldin og þegar ég fer inn í loftkæld rými.
Strigaskó, sandala og fína skó amk. eitt par.
Nóg af nærfötum og sundfötum.
Létta kjóla, stuttbuxur og boli fyrir dagana við ströndina. Hatt og
nokkur sólgleraugu, allavegana 3 pör, haha.
Eitthvað smávegis af skarti
Vinnuferðir, tískuvikur
Þá geng ég aðeins lengra og tek með mér meira af fötum, skarti og
töskum. Reyni samt að setja saman dress áður en ég fer og halda mig
við þau.
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.6. 2014
Tíska
É
g reyni að ferðast með flíkur úr létt-
um efnum sem krumpast ekki og
helst flíkur sem passa saman svo ég
geti gert nokkur dress úr fáum flík-
um. Sniðugt að taka með sér föt
sem er hægt að nota á marga vegu, t.d. ein-
falda kjóla og skyrtu sem einnig er hægt að
nota sem jakka,“ segir Jóhanna Björg. Jóhanna
segir nauðsynlegt að klæða sig rétt fyrir flug
og velja réttan skófatnað eftir eðli ferðarinnar.
„Maður verður að hafa með sér þægilega skó.
Sérstaklega ef þú ert að fara í borgarferð er
nauðsynlegt að taka allvega eina strigaskó. Ég
fer yfirleitt í strigaskóm í flug og kýs að fljúga
í mjög þægilegum fötum.“ Jóhanna segir flug-
vélaloftið eiga það til að verða þurrt og þá sé
nauðsynlegt að halda raka í húðinni. „Ég er
fanatísk á rakakrem og rakamaska í flugi. Það
er gott að taka með sér handáburð, rakasprey
og varasalva í flug enda er rosalega óþægileg
tilfinning að þorna enda loftið mjög þurrt í
flugvélum.“ Grænt te er gott að hafa með sér
því margir fá bjúg eftir langt flug og í hita.
„Grænt te út í safa reddar því.“
Kaupir sólarvarnirnar heima
Jóhanna segir mikilvægt að kaupa sólarvarn-
irnar heima eða í fríhöfninni. „Ég treysti þeim
betur hér að þær séu ekki búnar að standa í
sólinni eins og maður sér stundum úti og þá
geta þær skemmst.“
Jóhanna segir nauðsynlegt að taka með í
ferðalagið þær snyrtivörur sem hún notar dags-
daglega og síðan aðeins auka. Maður hefur oft
aðeins meiri tíma í fríi til þess að dekra við sig.
„Mér finnst skipta miklu máli að hafa allt í
litlum stærðum svo ég þurfi ekki að
drösla of miklu með mér. Ég passa mig
að geyma allar prufur sem ég fæ og
reyni stundum að kaupa litlar útgáfur af
snyrtivörunum mínum. Ég mæli með því
að taka sjampó og hárnæringu sem maður
notar venjulega með í fríið í pufustærðum.
Í fríið tek ég með sjampó og næringu og
hárvörur sem ég nota reglulega, krem, ser-
um og snyrtivörur og gæti þess að vera
ekki með of mikið.“
Strigaskóna með í fríið
JÓHANNA BJÖRG CHRISTENSEN, RITSTJÓRI TÍSKUBLAÐSINS NUDE MAGAZINE, ER NÝKOMIN HEIM ÚR VINNUFERÐ TIL LOS ANGELES.
JÓHANNA FERÐAST MIKIÐ OG VEIT UPP Á HÁR HVERJU ER NAUÐSYNLEGT AÐ PAKKA FYRIR FLUG OG FERÐALAGIÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Snyrtivörurnar í fríið
Gott er að ferðast með snyrti- og hár-
vörur í litlum brúsum. Jóhanna segist
þvo litlar kremdollur og nýtir þannig
umbúðirnar fyrir ferðalögin.
Í flugið Rakamaski, varasalvi, rakasprey,
hreinsigel og handáburður eru nauðsyn-
legir rakagjafar í flugið.
Morgunblaðið/Golli
Jóhanna segir
mikilvægt að kaupa
sólarvarnirnar heima
eða í fríhöfninni.
Myndataka á ströndinni í Los Angeles.
Jóhanna Björg er
nýkomin heim úr fríi
til Los Angeles og
segir mikilvægt
að pakka ekki
of miklum farangri
fyrir fríið.