Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 41
1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 FLUGFARÞEGAR FÁVSK AFÖLLUMGLERAUGUM SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU K venpeningurinn er upp til hópa mjög upptekinn af því að líta vel út og í mörgum tilfellum skiptir engu máli hvað það kostar. Það að vera svolítið upptekinn af útlitinu hefur ekkert með stétt eða stöðu að gera þótt tískustraumar hins eftirsótta útlits séu mis- munandi. Það fer nefnilega alveg eftir kreðsum fyrir hverju snobbað er (útlitslega). Í sumum hópum þykir brúnka eftirsóknarverð á meðan aðrar kreðsur snobba fyrir rándýrum kremum og vinna þannig með förðunar- vörur að það sjáist ekki að viðkomandi sé farðaður heldur líti út fyrir að fá alltaf átta tíma svefn. Svo eru enn aðrar sem gera ekkert annað en að býsnast yfir útlitinu og hvað það sé í miklu hakkabuffi en gera ekkert í því að reyna að bæta það. Reglulega sér maður svo konur sem hafa bara gef- ist upp … og þá er ekkert annað til ráða en að fylla bara vel á tankinn í sjoppunni og fá sér stærri flíspeysu. Það sem er merkilegt þegar neyslumunstur kvenna í heiminum er skoðað er að kvenpeningurinn er til í að eyða miklu meiri peningum í að líta vel út en vera heilsuhraustur. Það sem kemur samt alltaf jafnmikið á óvart er hvað konur fara oft illa með sig án þess kannski að gera sér fyllilega grein fyrir því. Okkur hættir til að sofa ekki nóg, borða allt of mikið af sætindum, hreyfa okkur of lítið, eiga í vondum samskiptum við aðra og svo má ekki gleyma því að við drekkum oft og tíðum allt of mikið af víni. Auðvitað koma reglulega ein- hverjar rannsóknir (sem eru líklega kostaðar af vínframleiðendum) sem „sanna“ það að eitt rauðvínsglas á dag geri okkur ekkert nema gott. Það má samt alveg velta hollustu áfengisdrykkju fyrir sér sér. Ef við drekkum til dæmis eitt vínglas á dag nær líkaminn aldrei að hreinsa sig – lifrin fær aldrei hvíld. Varla getur það talist gott fyrir okkur! Milli tvítugs og þrítugs skiptir áfengisneysla kannski ekki öllu máli. Fólk staupar sig um helgar og það þykir ekkert tiltökumál. Þessi mark- hópur getur jafnvel tekið tvistinn eða þristinn án þess að viðkomandi beri þess merki. Eftir þrítugt fara hins vegar áhrifin að sjást mun betur og eft- ir fertugt er hægt að sjá það langar leiðir hvaða konur drekka of mikið og hverjar ekki. Vikuleg áfengisneysla framkallar þrota í andliti og ljóminn í augunum minnkar (þetta á við um bæði kynin). Þá er alveg sama hversu mikið við setjum af „frískandi“ augndropum í augun á okkur og hvað við berum á okkur fín krem. Áfengisneyslan skín alltaf í gegn. Þær sem eru hins vegar á vodkakúrnum taka nátt- úrlega ekki eftir neinu – þokan er svo mikil að þær sjá ekki heildarmyndina. Nú halda örugglega einhverjir að ég hafi verið að koma úr meðferð og sé frelsuð. Ég get glatt ykkur á því að svo er ekki. Ég hef hins vegar oft prófað að taka þurrkatímabil þar sem ég drekk nánast ekki neitt í marga mánuði og svo koma ógæfutímabil inn á milli þar sem lífið kallar á aðeins meira vodka. Í öllum tilfellum líður mér miklu betur og lít skár út þegar tappinn er í flöskunni. Þegar tappinn er í flöskunni er aldrei mánudagur. Lærdómurinn af þessu öllu er að lífið verður bara svo miklu innihaldsríkara og betra þegar lífsblómið er vökvað með sódavatni – ekki vodka. En af því áfeng- isdrykkja er svo mikil stemningshegðun hef ég lært að tala helst ekki um það þegar ég er á snúrunni. Flestir eru nefnilega svo uppteknir af sjálfum sér að þeir taka ekki eftir umhverfinu og alls ekki hvað hinir í kringum þá eru að drekka. Skál! martamaria@mbl.is Lífið á snúrunni Stelpurnar í Beðmálum í borginni voru sjaldan edrú. Þær drukku ekki jafn- mikið í sínu raunverulega lífi og í þáttunum og Sara Jessica Parker viður- kenndi á dögunum að hún hefði bara einu sinni smakkað Cosmopolitan. Það er fínt að skála í sódavatni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.