Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.6. 2014
Ferðalög og flakk
Casa Milà, einnig þekkt sem La Pedrera, er bygging sem Antoni Gaudí hannaði og var byggð á upphafi tuttugustu ald-
arinnar. Byggingarlist Gaudí er einstök, litrík og frumleg, eins og hún lifni við bæði að utan jafnt sem innan.
Barri Gótic er einnig áhugavert
hverfi með fjölda smærri verslana
sem selja hönnunarvöru. Efri
hluti Las Ramblas sem byrjar
fyrir ofan Plaça de Catalunya er
vinsæll staður meðal Katalana til
að versla en þar er gott úrval af
búðum sem selja undirfatnað.
Flestir þekkja stóru versl-
unarkeðjurnar H&M, Mango og
Zöru, en slíkar búðir er auðvelt
að finna á breiðgötunni Passeig
de Gràcia og götunni Portal de
l’Angel sem liggur fyrir neðan
Plaça de Catalunya. Hins vegar
er einnig fjöldi spennandi
spænskra hönnuða í Barcelona
þar sem hægt er að kaupa ein-
stakar flíkur sem ekki fást ann-
ars staðar. Adolfo Dominguez,
upprunalega frá Galicíu, er vel
þekktur hönnuður á Spáni og „er
með vönduð og flott föt sem oft
er hægt að fá á viðráðanlegu
verði“, segir Elma. Í smærri
kantinum bendir hún á D-lirio
sem er „krúttleg skartgripa- og
fylgihlutahönnun frá Sara Saa-
vedra“, en sú búð er bæði í
Gràcia- og El Born-hverfunum.
Önnur búð í svipuðum „krúttstíl“
er Nice Things sem selur bæði
fatnað og fylgihluti. „Glint er
mjög töff og örðuvísi búð niðri í
El Born, „street style“-búð svipuð
búðinni minni Dusted,“ segir
Elma. Hún bætir Andro við á
listann yfir flotta „street style“-
hönnun en samsafn af hönnuðum
í Barcelona hannar undir því
merki.
Brick Lane er svo kallaður
BARCELONA
Menningar- og matar-
borg í Suður-Evrópu
BARCELONA, HÖFUÐBORG KATALÓNÍU, ER EINSTÖK BORG AÐ MÖRGU LEYTI. ÞRÖNG
STRÆTI GAMLA HVERFISINS, CIUTAT VELLA, ENDURÓMA SÖGU BORGARINNAR ALLT
FRÁ HERNÁMI RÓMAVELDIS TIL INNRÁSAR ARABA Á ÁTTUNDU ÖLDINNI OG TIL
FRANCO-TÍMABILSINS. BREIÐGÖTUR EIXAMPLE-HVERFISINS, LAGÐAR UM ALDAMÓT
NÍTJÁNDU OG TUTTUGUSTU ALDARINNAR, FÆRA OKKUR NÆR NÚTÍMANUM. ÞÆR
BERA VITNI UM ÁHRIF MÓDERNISMA Á ÞRÓUN BORGARINNAR. BYGGINGARLIST ANT-
ONI GAUDÍ ER EIN FRÆGASTA BIRTINGARMYND KATALÓNSKRA SÉRKENNA SEM EIN-
KENNDU MÓDERNISMA Í BARCELONA, OG VERK HANS ÁSAMT BYGGINGUM SVIPAÐRA
ARKITEKTA ER AÐ FINNA VÍÐA UM HVERFIÐ.
Texti og myndir: Lára Hilmarsdóttir lara.hilmarsdottir@gmail.com
K
atalónsk menning og
tungumál einkenna borg-
ina. Heimamenn heilsast
með því að segja
„bondia“ eða „bona tarda“ og
kveðjast oftast með „adeu“ og
katalónskan hljómar oft sem sam-
bland af spænsku og frönsku.
Fyrir kemur að maður verði að
leggja lykkju á leið sína þegar
aðskilnaðarsinnar mótmæla á göt-
um borgarinnar. Sterk sjálfsmynd
Katalóníu í gegnum aldirnar birt-
ist einnig í matargerð, tísku og
daglegu lífi borgarbúa. Barcelona
er engu að síður undir alþjóð-
legum áhrifum. Þegar maður hef-
ur borðað nægju sína af tapas og
paella er ekkert að óttast því
matargerð úr nær öllum heims-
hornum er að finna í borginni.
Krúttbúðir, „street“-
stíll og fatamarkaðir
Elma Dögg Steingrímsdóttir, eig-
andi tísku- og hönnunarbúð-
arinnar Dusted á Íslandi, kynnti
sér búðir og verslunargötur borg-
arinnar á meðan hún lærði hönn-
un við IED-háskólann í Barce-
lona. „Mér fannst skemmtilegast
að versla efst í Raval, þar er
mikið af vintage- og second-hand
búðum. Þar er líka oft mikið um
fatamarkaði og slíkt.“ Hún bendir
á götuna Carrer dels Tallers þar
sem nokkrar vintage-búðir er að
finna, og verslunina Kling sem
selur ódýra spænska hönn-
unarvöru.
Fiskisalinn á La Boquería matarmarkaðnum skammar forvitna sem laumast til
þess að pota í humarinn til þess að athuga hvort hann er enn lifandi.
Á Passeig de Gràcia má finna helstu tískumerki heims, og hvort sem hátísku-
vara er á fjárhagsáætlun frísins eða ekki þá er alltaf gaman að skoða.
Hvort sem það eru bækur, föt, húsgögn eða gamlar fjarstýringar, þá er hægt að
finna næstum hvað sem er á hinum ýmsu mörkuðum Barcelona.
Ströndin í nágrenni Barcelona heillar marga en þar er hægt að gera fleira en að
liggja í sólbaði því á ströndinni eru veglegir hjóla- og göngustígar.