Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 13
1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Oddur Helgason, fv. sjómaður, Reynir Björnsson loftskeytamaður og Þórir Sigurbjörnsson kafari koma allir að starfi ORG Ætt- fræðiþjónustu í Skerjafirðinum. All- ir eru þeir fæddir á Akureyri. „Við erum að afla fyrir þjóðina. Vinnan hér er til þess að þjóðin eign- ist þessar upplýsingar,“ segir Odd- ur. „Við Reynir vorum rúm 30 ár á sjó og Þórir kafaði við skipin og ann- ars staðar. Við sýnum fram á hvað sjómenn geta lagt til íslenskrar menningar þegar þeir koma í land. Við kunnum að fiska og þá er hægt að ná í allar mögulegar og ómögu- legar upplýsingar í sambandi við ættfræðina,“ segir Oddur en fé- lagarnir halda sjómannadaginn há- tíðlegan um helgina eins og aðrir. Með þeim eru Nanna Halldóra Sigurðardóttir æviskrárritari og El- ín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, doktor í keltneskum fræðum. „Þær valkyrjur munu taka við þessu af okkur vík- ingunum!“ segir Oddur og hlær. REYKJAVÍK Hjá ORG í Skerjafirði. Reynir, Elín Ingibjörg, Nanna Halldóra og Oddur. Morgunblaðið/Golli „Við kunnum að fiska“ Fulltrúar Austurbrúar ses., Afls starfsgreinafélags og Djúpavogs- hrepps hafa undirritað viljayfirlýs- ingu um stofnun frumkvöðlaseturs á Djúpavogi. Tilgangur setursins er að styðja frumkvöðla við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og skapa þannig ný atvinnutækifæri. Þjónusta við frumkvöðla og aðstoð við stofnun og rekstur fyrirtækja verður hluti af grunnþjónustu Aust- urbrúar – sem annars sinnir at- vinnulífi, menntun og menningu með margþættum stuðningi. Austurbrú mun fyrst um sinn veita vinnu við stofnun frumkvöðlasetursins for- stöðu en stefnt er að því að ráðinn verði verkefnastjóri í haust, fáist til þess peningar. Sótt verður um styrk til atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytis og fleiri og leitað eftir sam- starfi við Nýsköpunarmiðstöð. Verkefnastjórn mun setja reglur um aðgang að frumkvöðlasetrinu og verður greitt fast mánaðargjald fyr- ir hverja vinnustöð. Afl starfsgreina- félag leggur setrinu til að byrja með til húsnæði í húsinu Sambúð í Mörk- inni Þá kemur 250 þúsund króna heimanmundur frá hreppnum. DJÚPIVOGUR Vilja frumkvöðlasetur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Silungur er nátengdur Mývatnssveit og forsætisráðherrum Norðurlanda var að sjálfsögðu boðið upp á það hnossgæti á Hótel Reynihlíð á mánudagskvöldið, eftir fund þeirra. Að vísu er ekki fiskur úr vatninu lengur á boðstólum, heldur frá eld- isstöðinni Haukamýri við Húsavík. Á veitingastaðnum Gamla bænum við Hótel Reynihlíð er silungur vin- sælasti rétturinn og óhætt að mæla með honum. „Við sykursöltum sil- unginn og geymum í kæli í 25 mín- útur, skolum hann svo og þerrum og og steikjum á pönnu,“ segir Theodór Páll Theodórsson yfirmatreiðslu- maður. Sítrónusafa og hvítlauk er því næst skellt yfir fiskinn og her- legheitin borin fram með kart- öflusmælki úr garði sem hótelið er með í Bjarnarflagi og sósu úr sýrð- um rjóma, hvítlauk og gúrku; sjá mynd. Ráðherrarnir fengu aðeins öðruvísi útgáfu af silungnum og var góður rómur gerður að matnum, segir Theodór Páll. MÝVATNSSVEIT Silungur var það, heillin Gómsætur silungur í Gamla bænum. Morgunblaðið/Skapti Sigrún Karlsdóttir hefur þjón-að ferðamönnum sem leiðeiga um Hvalfjörð í þrjá ára- tugi og hálfum betur. Fyrst í 20 ár sem þerna á Akraborginni og nú í 15 ár sem starfsmaður í af- greiðsluskýlinu við Hvalfjarð- argöngin. „Göngin voru opnuð í júlí 1998 og ég hóf störf hér í desember það ár,“ segir hún við Morgunblaðið. „Mér líkar starfið vel. Annars væri ég ekki búin að vera svona lengi. Það er erfitt að slíta sig frá þessu; til dæmis er einn, sem hætti vegna aldurs, kominn aftur! Reyndar bara í afleysingar en sumir kunna ekki að vera gamalmenni, til dæm- is þessi maður, Aðalsteinn Vil- bergsson sem er orðinn 68 ára.“ Tveir eru á vakt í skýlinu hverju sinni en göngin eru opin allan sól- arhringinn, allt árið. „Ég vinn átta tíma í einu; þrjú kvöld og þrjá morgna og er svo þrjá daga í fríi,“ segir Sigrún sem býr á Akranesi. Hún var eina vertíð í hvalstöðinni sem unglingur og í stuttan tíma vann hún hjá Norðuráli, þegar fyr- irtækið var að byggjast, „en ann- ars hef verið í samgöngunum,“ segir hún. „Það var mikil eftirsjá að Akra- borginni og fólk er enn að tala um hana. Margir vilja ekki keyra í Reykjavík og fannst gott að geta hoppað í skip og labbað upp í bæ þegar komið var suður. Akraborgin var hálfgerð þjónustumiðstöð; fólki fannst gott að leggja sig á bekkj- unum í afgreiðslusalnum áður en það fór suður til vinnu og eftir vinnudag á heimleið.“ Sigrún hittir gríðarlegan fjölda fólks í vinnunni en samskiptin eru yfirleitt ekki flókin. „Það er mjög misjafnt hve margir bílar fara um á hverri vakt, allt frá um 200 upp í 1.000.“ Hún segir langflesta kurt- eisa. „Að minnsta kosti við mig. Ég býð ekki upp á annað.“ Og hún finnur mikinn mun á fólki eftir hrun. „Flestir voru á hraðferð fyrir hrun og við vorum þau fyrstu sem urðu á vegi þeirra. Við lentum stundum í skömmum en þetta hef- ur mikið breyst. Fólk er miklu ró- legra núna.“ HVALFJÖRÐUR 35 ár í þjónustu við ferðalanga um Hvalfjörð ÍSLENDINGAR ERU YFIRVEG- AÐRI EFTIR HRUN SEGIR STARFSMAÐUR Í HVAL- FJARÐARGÖNGUNUM Langflestir kurteisir við mig. Ég býð ekki upp á annað, segir Sigrún Karlsdóttir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mörg hundruð bílar fara um göngin á hverri vakt; frá 200 upp í 1.000. Stofnaður hefur verið starfshópur í Fjarðabyggð um fjölgun útvarpsstöðva. Ungmennaráð óskaði eftir því í ársbyrjun að kannaðir yrðu möguleikar á upp- setningu fleiri útvarpssenda í þessum tilgangi. Fleiri útvarpsstöðvar? Örnefni eru fjöldamörg í Heimakletti í Vestmannaeyjum eins og víða annars staðar. Bæjaryfirvöld hafa nú ákveðið að setja upp skilti þar sem skilmerkilega er greint frá þeim öllum, á útsýnispalli sunnan við Skanssvæðið. Örnefni í Heimakletti Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja K raftaverk studio ROOF er hönnunarteymi í Hollandi sem framleiðir margskonar listaverk og hönnun úr endurunnum pappír. Verkin koma á flötu spjaldi sem raðað er saman.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.