Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 15
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Maralunga, Hönnuður Vico Magistretti, 1974-2014 L238 D86/95 H72/100 Verð Áklæði Category E 1.195.000,- Verð Leður Category X 1.899.000,- Cassina Dodo Hönnuður Toshiyuki Kita Leður category X. Verð 749.000,- CassinaWink Hönnuður Toshiyuki Kita Áklæði category E. Verð 519.000,- Cassina Dodo Hönnuður Toshiyuki Kita Leður category X. Verð 749.000,- arfari. Þetta er ekki bók þar sem er andvarpað og sagt: Æ, það er svo erfitt hjá okkur, heldur er verið að segja: Ég get þetta!“ Í nánasta umhverfi mæðgnanna eru nokkrir sem þegar hafa lesið bókina. „Amma og afi og annar yngri bræðra minna, sem er að ljúka menntaskólagöngu sinni ásamt eiginmanni mínum sem er hagfræðingur og hefur nokkra reynslu úr atvinnulífinu, eru öll búin að lesa bókina,“ segir Hjördís Hug- rún. „Áhugavert er hversu ólíka þætti fólk staldrar við eftir því hvar það er sjálft statt á lífsleiðinni. Þetta er bók sem ætti að vekja áhuga margra og sennilega mun fleiri en við áttuðum okkur á í fyrstu.“ Mikil þroskasaga En hvernig var fyrir þær mæðgur að vinna saman að bók? Kom aldrei upp ágreiningur? „Segja má að þessi samvinna hafi verið mikil þroskasaga fyrir okkur báðar,“ seg- ir Ólöf Rún. „Við erum mæðgur sem urðu samstarfsfélagar. Það verður að viðurkennast að það reyndist mér stundum erfitt að leyfa litla barninu að ráða. Í upphafi dró hin skipulagða dóttir mín með verkfræðimenntunina upp drög að samningi. Hann hefur aldrei verið undirritaður en unnið var í anda hans.“ Hjördís Hugrún upplýsir hvað stendur þar: „Samkvæmt þessum samningi átti að vera nokk- uð ljóst að dóttirin réði en utan vinnu áttu hefðbundin hlutverk móður og dóttur að haldast. Ekki mátti nöldra hvor yfir annarri við aðra fjölskyldumeðlimi fyrir utan maka. Gleði og vinnusemi voru boð- in hjartanlega velkomin í partíið en egóið átti að skilja eftir heima.“ Mæðgurnar eru sammála um að án samstarfsfélaganna Evu Lindar ljósmyndara og Jónatans Arnar Ör- lygssonar útlitshönnuðar hefðu Tækifærin vart orðið að veruleika. Hjördís Hugrún segist snemma hafa fengið áhuga á verkfræði. „Ég var átta ára þegar ég ákvað að verða verkfræðingur,“ segir hún. „Á tímabili velti ég líka fyrir mér hvort ég ætti að verða fréttamaður. Mamma var fréttamaður og pabbi er iðnaðarverkfræðingur og mér fannst það sem þau voru að fást við spennandi. Stærðfræðin og raun- greinafögin heilluðu mig þó meira og því varð verkfræðin fyrir valinu.“ Sér Hjördís Hugrún Ísland með öðrum augum en áður, nú þegar hún er búsett erlendis? „Mikil upp- lifun var þegar ég fór átján ára sem skiptinemi til Alaska. Eftir þá reynslu kunni ég mun betur að meta landið okkar. Síðan þá hef ég búið í Stokkhólmi í rúmt ár og í Zü- rich í rúm tvö ár og við erum ánægð þar. Ýmislegt er þó mun betra hér á landi. Í Sviss er til dæmis ekkert lögbundið fæðing- arorlof feðra. Að því leyti er staðan svo sannarlega margfalt betri á Ís- landi. Vinkonur mínar úr náminu í Sviss forðast að tala um barneignir í framtíðinni því þær ætla að verða framakonur og virðast margar líta svo á að frami þeirra og barneignir geti ekki farið saman. Mér finnst það synd,“ segir hún. Spurð hvort hún ætli að flytja heim til Íslands eftir námið segir hún: „Ég held að það gæti verið mjög áhugavert að vera eitthvað áfram erlendis en ég hugsa að á endanum langi mig heim.“ Ólöf Rún segir: „Ég var mjög ánægð með það þegar Hjördís Hug- rún kom heim um daginn og sagði: Á góðum degi er Ísland fallegast í heimi. Það hrærði móðurhjartað og ég hugsaði: Já, Ísland er langbest. Sannarlega er vel þess virði að kynnast annarri menningu og lönd- um en mikilvægt er einnig að gera sér grein fyrir hversu margt er gott á Íslandi. Aldrei að segja aldrei Ólöf Rún starfaði lengi sem frétta- maður á RÚV og átti þar farsælan feril. Spurð af hverju hún hafi hætt á RÚV segir hún: „Ég varð ást- fangin, sagði upp á RÚV og fór að elta mann um heiminn og hann mig. Nú erum við hjón. Ef einhver hefði sagt mér áður en ég hitti hann hvað ætti eftir að gerast í lífi mínu hefði ég sagt viðkomandi vera galinn, þetta gæti ekki staðist. En lífið er oft ótrúlegra en nokkur skáldsaga.“ Ólöf Rún segist verða vör við þann misskilning að hún búi í út- löndum. „Ég fæ þá spurningu oft núorðið hvort ég búi í útlöndum. Ég á lögheimili á Íslandi og bý hér. Fregnir af búsetu minni erlendis eru því stórlega ýktar,“ segir hún og brosir. „Eftir því sem ég ferðast meira því vænna þykir mér um Ís- land, finnst mér þó gaman að ferðast.“ Hún segist hafa nóg fyrir stafni: „Ég hef verið að skrifa viðtöl og greinar í lausamennsku og lesið inn fyrir skólavefinn og Hlusta.is þegar ég má vera að, því ég hef nóg að gera við að sinna mér og mínu fólki. Svo á ég fimm hesta sem þarf að hugsa um og hef fengist aðeins við fararstjórn í hestaferðum.“ Hún er spurð hvort hún sakni fréttamennskunnar og segir: „Frá- bært er að hafa fengið að vinna þessa vinnu, forréttindi í raun. Það gefur augaleið að ekki voru allir dagar jafn skemmtilegir, en það sem ég upplifði í störfum mínum í útvarpi og sjónvarpi við fréttir og dagskrárgerð fylgir mér í gegnum lífið og ég fékk að skyggnast inn í líf margra athyglisverðra ein- staklinga. Sá sem einu sinni er fjöl- miðlamanneskja er það ávallt í hjarta sínu. Tíma tekur að öðlast þá fjarlægð að njóta þess að vera ekki í daglega atinu þar. Ég hitti fólk á förnum vegi sem er notalegt við mig og segist sakna mín úr fjöl- miðlum. Þetta fólk spyr: Ertu alveg hætt? Þá segi ég: Aldrei að segja aldrei því maður veit jú aldrei.“ Morgunblaðið/Kristinn * Saga viðmæl-endanna sýnirað jákvæðni, bjart- sýni og þrautseigja hjálpar til að ná takmarki sínu. 1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.